Fálkinn - 22.09.1944, Blaðsíða 11
F Á L K I N N
11
Hetjusagan at
Sam Logan.
SAM LOGAN nefnist 22 ára gamall
flugmaður frá Kansas, U.S.A. í
júní í fyrra var hann sendur i flug-
vjelasveit, sem átti að taka á móti
50 japönskum Zero-flugvjelum, yfir
Russeleyjum í Kyrrahafi. Sjálfur
flaug hann á Vaught Corsairflug-
vjel. Þetta var annað skifti sem
Sam var í orustu. í fyrra skiftið
hafði hann skotið niður japanska
vjel yfir Bougainville. En í þetta
skifti var hann sjálfur skotinn niður.
Hann lenti í návígi við Japana
i 20.000 feta hæð. Alt í einu fór
vjel hans að hristast ákaft. Sam leit
aftur og sá þá að stjelið var i tætl-
um. Hann skreið upp úr sætinu og
tók í handfangið á fallhlífinni. Hún
opnaðist og fór að síga hægt og
hægt, en loftið i kring var hrannað
af drynjandi flugvjelum og vjelbyssu
kúlnahríð.
Nú fyrst hófst æfintýrið í alvöru.
Zero-fvjelin, sem hafði skotið á hann
steypti sjer yfir hann og skaut af
vjelbyssunni. Sam tók í fallhlifar-
taugina við og við til þess að hrað-
inn yrði sem ójafnastur, svo að
erfiðara væri að hitta hlifina. Enda
misti Japaninn marks. En svo flaug
hánn i hring og bjó sig undi" nýja
atlögu.
Sam var furðulega rólegur. Hann
tók eftir öllu og hugsaði skýrt um
allt — hraðann og hvernig vjel ó-
vingrins ljeti að stjórn, bjarma-
hringinn af skrúfunni á vjelinni.
En nú skaut Japaninn ekki — liann
var búinn með skotfærin. Hvað
fetlaði hann sjer þá? Þarna stakk
hann sjer niður að Sam. Og nú
Skildi Sam. Hann dokaði við eina
eða tvær sekúndur, greip fast i
snúruna á fallhlífinni og reiknaði
út fjarlægðina. Svo lyfti hann sjer
og baðaði út fótunum. Skrúfuvængj-
irnir, sem Japaninn hafði ætlað
að nota til að brytja hann i smátt,
vældu undir honum. Hann var svo
nærri fjandmanninum, að hann
hefði getað sparkað í vjelina hans.
Zero-vjelin rjetti sig aftur og flaug
krappan boga til þess að geta gert
nýja atlögu að honum. Sam tók í
snúruna til þess að hraða fallinu
og vjelin kom aftur æðandi að hon-
um. Svo fann hann högg og ákafan
sársauka. Hann leit niður fyrir sig.
Hægri fóturinn var farinn af honum
og blóðið fossaði úr stúfnum.
Japaninn gerði nú fjórðu atrenn-
una og Sam barðist enn upp á lif
og dauða.Hann hafði mist annan
fótinn en hvorki dómgreindina nje
íhyglina. En nú bar þarna að am-
eríkanska vjel og Japaninh flýði.
Og Sam Logan fjell áfram niður á
við.
Maður, sem flugvjelaskrúfa sker
fótinn af þar ' sem hann hangir í
lausu lofti, missir meðvitundina af
ákomunni eða blóðmissinum — og
þegar hann kemur til jarðar blæðir
honum til ólífis eða hann druknar.
Sam Logan gerði hvorugt. Hann var
með fullu ráði og æstur i skapi —
langaði til að lifa til þess að liefna
sín á Japananum.
Hann dátt ofan í tjörn og vatnið
litaðist ráutt kringum hann. En
hann óttaðist það ekki. Hann hafði
lært hvað liann átti að gera, og
það gerði hann. Hann náði í gúmmí-
bátinn og bljes hann upp. Og svo
komst hann upp i hann. Svo reyrði
hann snæri eins fast og hann gat
um lærið fyrir ofan hnje. Blóðrás-
teptist. Sam brosti. Og svo náði hann
sjer í súlfattöflu og morfíntöflu.
Lagðist svo fyrir og beið.
Hvað lialdið þið að liann hafi
verið að hugsa um? Hann var að
hugsa um mann, sem heitir Alexis
de Seversky, því að hann mundi að
Seversky liafði mist fótinn í sið-
ustu heimsstyrjöld, en varð einn af
duglegustu flugmönnum veraldar,
Græskar með sítrón.
Vi kg. græskar, 250 gr. sykur, 1%
Græskarið er skrælt og kjarninn
tekin burt. Það er hreinsað vel úr
dl. edik, börkur af tveimur sitrónum.
Fyltir tómatar.
8 tómatar, 2-3 laukar, 25 gr. smjör-
líki, 5 sneiðar franskbrauð. Lok er
skorið af tómötunum og holað inn-
an úr þeim.
Laukur og fransbrauðið er slcorið
í teninga og brúnað í smjörinu,
ásamt þvi sem tekið er innan úr
tómötunum. Salt og pipar látið út í
og tómatarnir fylltir með þessu.
Lokið látið á. Þá er tómötunum
raðað í eldfasta skál og bakaðir i
ofninum í 10 min.
Egg og tómatar.
Egg eru harðsoðin og rauðan tek-
in úr. Tómatsultan lijer að ofan
látin i holuna, eggjunum raðað á
fat, og látið i ofnin 5-10 min.
Tomatar með hrærðum eggjum
0-8 tómatar, 4 hrærð egg, 8 mat-
skeiðar mjólk eða rjómi, salt, pipar
og hökkuð steinselja. Lok er skorið
af tómötunum og tekið innan úr
þeim. Eggin eru hrærð með mjólk-
inni, salt og pipar látið i, þetta látið
í tómatana og saxaðri steinselju
stráð yfir. Hitað í ofni í 10 mín.
Ristaðar fransbrauðssneiðar látnar
á fat og 1 tómat á liverja sneið.
Sumarrjettur.
6 tómatar, 1 agúrka, 4 egg, 8 mat-
skeiðar mjólk, 6-8 reyktar sildar,
salt og pipar.
Tómatarnir og agúrkan er skorin
í sneiðar látnar á fat og sildin ofan
á. Eggin hrærð með mjólk, og salti
og pipar. Þessu helt yfir og fatið
latið í ofninn i 15 mín.
Saft og sultur
Bláberjasaft.
1 1. bláber, 250 gr. sykur. Beriu
eru hituð þar til þau bresta. Þá
er saftin mæld og sykurinn látinn
út i og soðið i 5 min. Froðan tekin
af og saftin látin á heitar flöskur.
Lokað.
eigi að síður. Því skyldi ekki hann,
Sam Logan, geta fengið gerfifót og
farið að fljúga aftur. Og í næsta sinn
sem hann hitti Zero-vél, þá ....
Hátt á lofti liringsólaði njósnar-
flugvjel. Ilún hafði sjeð manninn í
bátnum, en vissi ekki hvort hann
var vinur eða óvinur. Sam tók
málmspegil og sendi merki um hver
hann væri. Flugvjelin kom nær, hún
var ineð flotholtum og lenti hjá
honum. Eftir klukkutíma var Sam
kominn á spítala. Og nú liefir hann
fengið gerfifót og er farinn að fljúga
aftur.
Krækiberjasaft.
Berin eru hituð, færð upp á grisjað
ljereft í gatsýjunni og undin í ljereft-
inu milli handa sjer svo lengi sem
nokkur safft kemur úr berjunum.
Þá er saftin mæld og sykur látin út
i, 350 gr. sykur móti 1 1. saft, og
saftin soðin í 5 -10 mín. Froða tek-
in of og saftin látin á flöskur, sem
strax er lokað.
Ribsberjasaft.
3 kg. ribsber, 1,6 I. vatn 250 gr.
sykur i hvern liter af safti. Berin
eru látin í pott með vatni og vin-
sýru, hrært vel , og svo látið standa
óhreyft í jvo daga. Þá eru berin síuð
og saftin mæld. Sykurin látin í
og hrært vel i 5 mín.
Látið á flöskur og lokað.
Rabarbarasaft soðin.
Leggirnir eru skornir niður og
soðnir í 2 <11. vatns á hvert
kg. leggi. Saftin er síuð og mæld og
soðin með sykri 5-10 mín (1 I.
saft, 300 gr. sykur). Froðan er tekin
af og látin á volgar flöskur. Bundið
yfir.
Rabarbarasaft.
3 kg. rabarbari, 2,6 1. vatn, 12 gr.
vinsýra 125 gr. sykur.
Brytjaðir leggirnir eru látnir í
pott með vatninu og vnísýrunni
Breitt yfir pottinn og látin bíða i
5 daga. Diskur er látinn liggja ofan
á pottinum til þess að halda rabar-
baranum niðri i vatninu. Eftir þenn-
an tíma er saftin siuð og látin standa
um stund og síuð aftur. Þá er sykr-
inum hrært út i, látinn renna og
saftin látin i flöskur.
Ósæt rabarbarasaft.
Leggirnir eru soðnir í svo miklu
vatni að fljóti vel yfir. Saftin undin
úr leggjunum og látin á flöskur.
Notuð í súpur og grauta, einnig
góður svaladrykkur með sykri og
vanillc.
Rabarbaramauk.
1 kg. rabarbari, Vj kg. sykur, van-
ille. Leggirnir eru skornir í smá bita
og sykri stráð yfir hvert lag i skál-
inni. Látið standa til næsta dags,
hrært upp og látið á krukkur. Bund-
ið yfir. Þessi rabarbari er ágætur í
kökur t. d. formkökur, smákökur, í
ábætisrjettá, súrur og grauta.
Rotvarnarefni látið i sje það geymt
lengi.
Rabarbarasúra.
Rabarbarinn er brytjaður og fleg-
inn. 1 kg. leggir í 3 1. vatn, og einn
sitrónbörkur. Þetta er soðið þar til
leggirnir eru meyrir. 35. gr. kartöflu-
mjöl hrært út í. Borðað með tvíbök-
um.
Bláber.
750 gr. bláber, 400 gr. sykur.
Berin eru látin yfir eld ásamt sykr-
inum, látin sjóða hægt og froðan
tekin ofan af, soðið i 15 mín. Þá
eru berin færð upp á gatasigti, og
þvínæst látin i hreinar krukkur,
en saftin soðin i 10-15 min. Pott-
urinn tekinn af og saftin látin rjúka.
Hellt volgri yfir berin og bundið
yfir.
Heil jarðarber.
Vi kg. jarðarber, 375 gr. sykur,
3 teskeiðar edik.
Berin eru lögð í skál og sykri
stráð á milli laga. Þetta látið biða
næsta dags. Þá eru berin sett yfir
eld og suðan látin koma upp þrisv-
ar með stuttu millibili. Látið á
hreinar heitar krukkur og bundið
yfir.
Jarðarber.
1 kg. jarðarber, safi úr 2 sítrón-
um, 600 gr. sykur.
Berin eru skoluð og þeim helt í
gatasikti. Þá eru þau látin í pott
ásamt sitrónusafanum, og soðin við
vægan hita í 5 mín. Sykurinn látinn
smátt og smátt út í og soðið enn í
2 - 3 min., tekið af eldinum, látið
í krukkur og bundið yfir. Á þennan
liátt halda jarðaberin best hinum
fagra rauða lit sinum.
Sólber.
% kg. sólber, 300 gr. sykur. Berin
eru þveginn vandlega og íátin í
pott ásamt sykrinum og soðin í
10 mínútur. Froðan tekin af og
berin látin í heitar krukkur. Lög-
urinn, sem soðin er örlítið lengur,,
látin yfir berin.
HRÁSULTUN.
Auk þess sem lirásultun er bæði
ljettari og ódýrari en niðursuða er
hún lika hollari þvi liin dýrmætu
bætiefni haldast óskemd, og sultan
verður ferskari og bragðbetri. En
hún geymist ekki eins vel.
Ribsber.
750 gr. ribs, 275 gr. sykur. Berin
eru þvegin og látin á gatasikti. þá
eru þau marin i skál, þar til lögn-
um er náð. Sykur og rotvarnarefni
látið út i lögin og hrært i 5 mín.
Látið á flöskur og bundið yfir.
Hrásultuð sólber.
Vi kg. sólber, 375 gr. sykur, 1 mat-
skeið edik.
Berin eru látin í skál og stráð á
þau sykrinum. Edikinu rennt yfii,
breitt yfir skálina og lnin látin
standa á köldum stað. Hrært við og
við frá botninum, því sykurinn
sækir niður. Þegar sykurinn er
bráðinn og jafn eru berin látin á
krukkur og bundið yfir.
Krækiber í sykri.
Krækiber eru vandlega týnd og
skoluð. Góð súrmjólk eða skyr, sem
þynt er með vatni, er látið í dunk
og berjunum hrært saman við. Á
þennan hátt má geyma berin óskemd
svo lengi sem vill.