Fálkinn - 25.05.1945, Síða 11
F Á L K I N N
11
Dm stjörnnspeki
Efíir Jón ÉrnasDn
Stjörnulestur frh.
Sól og Júpíter í samstœðu. —
Afstaða þessi er mjög heillarík.
Mun hún veita þér ágæt tækifæri
til þess að lifa þannig, að hið göf-
ugasta og besta, sem þú hefir yfir
að ráða, geti komið í ljós og notið
sín. Þú munt komast í kynni við
þá, sem mega sín mikils og lijálpar
verðurðu ætið aðnjótandi þegar þörf
krefur. Framtaksliæfileikinn styrkist
við þessa afstöðu. En vissara er að
lifa reglusömu lífi, því þér er létt
að fá hinu fullnægt.
Sól og Satúrn í slæmri afstöðu. —
Afstaða þessi mun hafa örðugleika
nokkra í för með sér og sorgir munu
verða á vegi þínum. H'indranir
munu koma i veg fyrir að þú getir
fengið öllum áætlunum þinum full-
nægt. Hafðu gætur á að verða ekki
fyrir kælingu, því að hún er þér
óholl og eykur veiklun líkamans.
Sól og Úran í slæmri afstöðu. —
Afstaða þessi er heillavænleg öllum
þeim, sem geta til fullnustu svarað
þeim áhrifum. Sérkennilegur ertu
i ýmsum atriðum og hefir sjálfstæð-
an vilja. Þú vilt helst framkvæma
hugsanir þínar án íhlutunar og þu
hefir skynjað þær glögglega. Þú
liefir mikil áhrif á aðra menn og
þér er létt að ráða þeim. Þú ættir
að vera víðsýnn og heimspekilegur
i hugsunarhætti og frjálshyggja ætti
að vera þér eiginleg.
(Framanskráð lýsing er hyggð á
afstöðum i 1. liúsi, stjörnumerki
því sem yfir því er og ráðanda þess,
sem er Sólin. Er talið að hlutaðeig-
andi, sem á stundsjána, sé séður
að mestu leyti í þessari afstöðu.
Sumir telja að jafnvel áttatiu hundr-
aðshlutar hans sé þar að finna).
Einstaklingseðlið. — Sól í ljóni. —
Lífskraftur sólar, sem flýtur í gegn-
um merki þetta, gerir þig lijarta-
góðan og kærleiksrikan. Þii hefir
sterkar tilfinningar og góðan vilja,
en farirðu út úr jafnvægi, eru þær
örðugar og létt er að hafa áhrif á
þær. Þú ættir þvi að hafa nákvæmt
taumhald á tilfinningum þinum. Þú
ert veglyndur, einlægur og þolgóður
og liefir hneigð til sjálfsþroska. Þú
ert óeigingjarn, en elskar völd og
metorð.
(Vegna þess að Sólin ræður stund-
sjánni og hlutaðeigandi er sólar-
barn, verður ekki meira sagt um
þessa afstöðu. Sumt af þvi, sein
koinið er hér á undan, er falið í
lýsingum þeim, sem þegar hafa ver-
ið gerðar af Sólinni og Ljónsmerk-
inu, sem hún er í og er merki lienn-
ar. Væri annað merki á austur-
sjóndeildarhring og önnur pláneta
ráðandi i stundsjánni, hefði mildu
meira verið sagt um einstaklings-
eðlið en liér er birt.)
Persónuleikinn. — Tungl í Ljóni. —
Eðli þessarar afstöðu hirtist í þvi
að þú hefir yndi af að stjórna öðr-
um og ráða og takast á liendur
mannforráð og ábyrgð, sem því er
samfara. Góðhjartaður ertu og hefir
opnar tilfinningar og ert hreinn og
beinn í öllum viðskiftum, en hefir
þó tilfinningar til þess að draga þig
í hlé. Tilfinningu fyrir fögrum list-
um hefirðu og elskar samræmi.
Þú hefir innsæi og þér er létt að
skynja lilutina og verða hugmynd-
ir þínar þér því mjög að gagni.
Þegar dramb er yfirunnið og sjálfs-
tilfinning, þá eru gallar orðnir fáir.
Tungl var í 1. húsi. — þetta bend-
ir á löngun til frægðar, starfsemi
og breytingu. Hugrænt hefir þú
þrá til þess að standa í fararbroddi
í öllu því, sem þú kemur nærri. Þú
sækir upp á við, vilt skipuleggja
og leggja jafnvel i nýja og sér-
kennilega áhættu. Afstaða þessi fel-
ur í sér almenningshylli, en einnig
andstöðu og illkvittni frá þeim,
sem lægra eru settir og utanaðkom-
andi áhrifum. Hún getur einnig veitt
þér frægð óg álit í sambandi við
þína eigin hæfileka og verðleika.
Tungl og Júpíter í samstæðu. —
Friður mun sérkenna líf þitt og
liamingja mun veitast þér og hag-
sæld. Hverskonar örðugleikar, sem
mæta þér í lffinu, og þú munt yfir-
vinna þá. Þú hefir þjóðlega hæfi-
leika og meiri von er til þess að
þú verðir heppinn í öllum þínum
ákvörðunum. Þú gætir náð og liald-
ið hárri stöðu og fengið viðurkenn-
ingu. Þú nýtur hamingju, og ytri
kringumstæður munu aðstoða þig í
því að viðhaída lienni. Þeir, sem
eru fæddir undir þessum álirifum
ná góðri aðstöðu og umhverfi svo
vöxturinn verði hagfeldari. Þú getur
eignast áhrifarika vini.
Tungl og Satúrn í slæmri afstöðu.
Stjörnuspekilega séð er afstaða þessi
mjög slæm og bendir á slæm örlög
er hafi sorg og örðugleika i för með
sér. Þú ættir að hafa gætur á þvi
að takmarka eigingirnina og gefa
henni sem minnst svigrúm, þvi sé
lienni gefinn laus taumur undir
þessum áhrifum, er líklegt að þau
takmarki frelsið. Eldri menn en
þú sjálfur er líklegt að hafi tak-
markandi áhrif á líf þitt og þeir,
sem standa þér nærri, og hafa að
einhverju leyti yfir þér að segja.
Heilsan gæti orðið varasöm, veikl-
un, sem ætti upptök sín í hugarvíli
eða slæmri liffærastarfsemi.
Tungl og Úran í góðri afstöðu. —
Afstaða þessi styrkir hneigð þína
til dulfræða, einkum stjörnuspeki og
þvílik efni. Þú liefir segulmagris-
orku yfir að ráða og lækningakrafti
og ef þú gætir iðkað faslhyggli,
þá gætirðu komið miklu til leiðar.
Þú múnt brjóta af þér gamla híekki
og ytri áhrif þegar hinn liærri liugs-
analiæfileiki fer að gera vart við
sig.
Hugrænir hæfileikar. — Merkúr í
Ljónsmerki- — Afstaða þessi styrk-
ir mjög liina hugrænu hæfileika
þína, eykur viljann og gerir þig
léttan á velli, góðhjartaðan, kurteis-
an og þýðan. Þú hefir næmar til-
finningar fyrir liugrænu jafnváegi.
Þekkiugu hefir þú, sem kemur
frekar frá hjarta en liöfði og því
fer innsæið að nokkru leyti i gegn-
Kartöflnr
Soðnar kartöflur.
Kartöflur er gott að láta liggja
i köldu vatni góða stund áður en
þær eru soðnar. Séu þær nýjar skal
láta þær ofan i sjóðandi vatn, en
gamlar lcartöflur i kalt vatn. Vatnið
saltað.
Steiktar kartöflur.
Stórar ekki fullsoðnar kartöflur
eru skornar í þykkar sneiðar. —
Smjör er brúnað og kartöflusneið-
arnar látnar i það á pönnu, stráðar
salti og pipar. Brúnaðar báðumegin
við vægan hita. Hristið pönnuna við
og við.
Kartöflur í rjómasósu.
10 kartöflur eru skrældar hráar
og liálfsoðnar, þá eru þær færðar
upp úr og kældar, skornar í sneið-
ar og látnar í smápott með 30 gr.
smjör og skorinni steinselju. Þetta
er látið malla í 10 mín. undir hlemm
í þetta er lirært 1 dl. rjóma og
1 eggjarauðu. Hrært yfir éldinum
þar til það þykknar, en má ekki
sjóða. Látið í ögn af salti.
Kartöfluklattar.
Kaldar, soðnar afgangskartöflur
eru marðar vel. Móti % 1. kartöfl-
um er 25 gr. hveiti, 2 hrærð egg og
salt. Þetta hrært með góðri mjólk
þar til það er mátulega þykkt. Látið
með skeið á pönnuna og bakist ljós-
brúnt.
Si.inir
Brún súpa með eggjabollum.
Hrá kjötbein eru brúnuð i potti
og færð upp á fat. 1 gulrót og 1
purra eru brytjaðar smátt og steikt-
ar í sömu feitinní. Þá eru þær, á-
samt beinunum, látnar í pott og 2
1. sjóðandi vatni hellt yfir. Salt og
pipar og 1 lárberjalauf látið út í.
Þetta er látið sjóða i 2 tíma, þá
eru beinin færð upp úr og súpan
síuð, það er bætt í liana salti, ef
þarf, og tomatkrafti. Hún er jöfnuð
með 1 barnaslc. kartöflumjöl rétt
áður en liún er borin fram.
Eggjabollurnar: 2 liarðsoðnar egg-
jarauður eru muldar gegnum sikti
og hrærðar sarnan við 1 barnask.
af bræddu smjöri, 1 tesk. hveiti,
salt, sykur og hvítan pipar eftir
sniekk. Úr þessu eru búnar til smá-
kúlur sem látnar eru út í súpu-
um liugann. Þreyttu ekki heilann
um of með mikilli vinnu. Þú gætir
stjórnað öðrum. Ilugsun þín er ein-.
veldiss'innuð.
Merkúr var í 3. húsi. — Afstaða
þessi styrkir námshæfileikann og
vekur hjá þér hneigð til þess að
fást við fleiri en eitt verkefni í
senn. Þú hefir smekk fyrir öllu
sérkennilegu og vilt fást við slík
verkefni. Þetta er sterk afstaða
Merkúrs. Gott að þroska fastliygli.
Meira.
diskana um leið og ausið er upp.
Þær eru ekkert soðnar.
Áfasúpa (ósoðin).
1% 1. áfir, 150 gr. haíramjöl, 1
egjarauða, 1 dl. rjómi, 4-5 matsk.
sykur, sítrónusafn. Haframjölið sax-
að i vél, og áfunum hrært út í.
Eggjarauðu lirært með sykrinum og
súpunni helt yfir. Þeyttur rjómi lát-
inn siðast.
Grænmeti
Blómkál.
Grófu grænu blöðin eru tekin burt
en fínu ljósu blöðin næst liöfðinu
skilin eftir. Leggurinn er jafnaður
að neðan og skorinn kross í endann
Áður en blómkálið er soðið er því
livolft í skál með köldu vatni svo
sníglar og ormar sem í jiví kunna
að vtra skríði burt. Láti maður edik
i suðuvatnið vérður blómkálið livítt
og fallegt.
Agúrkur.
Þær eru sjaldan notaðar sem
grænmeti, en eru þó mjög bragð-
góðar. Þær eru skrældar og skorn-
ar í þykkar sneiðar og kjarninn
tekinn úr. Þær eru látnar í krukku
með vatni og smjörögn og látnar
ofan i sjóðandi vatnspott og soðnar
þannig.
Ef þjer viljið láta Rinso yð-
ar verða sem drýgst skuluð
þjer nota þessa aðferð. Með
henni endist hver pakki þriðj-
ungi lengur.
MLNNA VATN ER
GALDURINN.
Notið helming þess vatns,
seni þjer voruð vön, og að-
eins tvo þriðju af Rinsó, móli
þvi seni þjer voruð vön. Lát-
ið hvitu þvottinn fyrst liggja
i Rinsobleytinu í 12 minutur,
og siðan mislita þvottinn i
sama bleyti. Þvoið þvottinn
siðan og skolið hann.
Þessi aðferð fer svo vel með
þvottinn að hann endist leng-
ur.
RINSO
X-R 209-786