Fálkinn - 07.03.1947, Side 3
FÁLKINN
HEIÐURSBORGARAKJÖR Á AKRANESI
Ólafur Finsen, læknir, flytur þakkarávarp.
kjörið meS því að syngja „ísland
ögrum skorið“. Þá þökkuðu hinir
öldruðu heiðursborgarar fyrir þá
virðingu, er þeim væri sýnd, og
síðan' var sunginn sálmur. Þá flutti
séra Jón Guðjónsson bæn, og að
lokum var sunginn sálmur. Var at-
liöfnin mjög hátíðleg, og verður hún
Akurnesingum lengi minnistæð. Um
kvöldið var heiðursborgurunum svo
lialdið samsæti.
Ólafur Finsen gegndi héraðlæknis
störfum í Skipaskagalæknishéraði á
árunum 1894- 1937, en lét þá af em-
bætti vegna aldurs. Hann er nú um
áttrætt. Hefir hann alla tið verið
mjög' vinsæll maður í starfi sinu og
samviskusamari embættismaður mun
vart finnast. Hafði hann vakandi
áhuga á öllu því, er betur mætti vera
í heilbrigðismálum liéraðsins og fé-
lagsmálum, og var hann ötull leið-
beinandi i störfum lijúkrunarfélags-
ins og sjúkrasamlagsins. Þá er það
og rómað live fljótur hann var að
bregða við, ef á hann var kallað til
læknisstarfa. Og það, sem ef til vill
mun lengst halda uppi hróðri hans,
Á bæjarstjórnarfundi 6. þ. m.
voru kjörnir tveir heiðursborgarar
Akranesskaupstaðar. Það eru þeir
Ólafur Finsen, fyrrv. héraðslækn-
ir og sr. Friðrik Friðriksson, sem
hljóta þessa sæmd, enda liafa þeir
báðir verið styrkar stoðir 'Akra-
nesbúa á undanförnum áratugum
og njóta þar mikilla vinsælda. Báð-
ir eru þeir líka þjóðleunnir fyrir
störf sin i þágu menningar- og
framfaramála. - Fálkinn sneri sér
til Ólafs B. Björnssonar, forseta
bæjarstjórnar Akraness og leitaði
frétta hjá honum.
Laugardaginn 1. mars var kjörinu
lýét með mjög hátiðlegri atliöfn í
Akraneskirkju, hófst hún kl. 6 e. h.
með þvi að heiðursborgararnir gengu
ásamt prófasti, presti, bæjarstjórn,
bæjarstjóra, embættismönnum bæjar-
ins og sóknarnefnd inn kirkjugólfið.
Drengir innan fermingaraldurs stóðu
heiðursvörð. Sr. Sigurjón Guðjóns-
son, prófastur flutti því næst bæn,
og voru sálmar sungnir fyrir og
eftir. Þá talaði Ólafur B. Björnsson
forseti bæjarstjónar úr kórdyrum og
aflienti hinum kjörnu heiðursborg-
arabréf. Að þvi loknu bað hann
menn rísa úr sætum og staðfesta Sr. Friðrik Friðriksson flytur þakkarávarp.
Eyjótfur Jóhannsson rakarameistari
varð 55 ára 3. þ. m.
Halldór Arnórsson gervilimasniiður,
Grettisgötu 2 verður 60 ára 10. þ. m»
Finnsknr frjálsiþróttakennari.1
Fyrir nokkru kom hingað til lands-
ins finnskur frjálsíþróttakennari
Yrjö Nora og mun hann dveljast hér
á landi fram á næsta haust við
íþróttakennslu hjá Glimufélaginu
Ármann. Nora er kunnur íþrótta-
maður. Hann var keppandi í lands-
liði Finna í frjálsum íþróttum og
meðal annars Finnlandsmeistari í
400 metra grindahlaupi í nokkur ár.
Síðustu 12 árin hefir hann verið
þjálfari iþróttasambandsins finnska
í frjálsum íþróttum og kennt þær
við þá deild íþróttakennaraháskól-
ans i Helsingfors. Hann er énn-
fremur iþróttakennari við Töölö
menntaskólann í Helsingfors. Nora
gegnir auk þessa ýmsum mjög mik-
ilsverðum trúnaðarstörfum og hefir
3
er hið fórnfúsa og mikla starf, sem
hann innti af höndum árið 1918,
þegar „spánska veikin“ gekk. Slikt
mun nær einsdæmi.
Sr. Fr. Friðriksson er landskunnur
og óþarfi er að fjölyrða um störf
hans i þágu kirkju og ungdóms al-
mennt, því að þau eru svo kunn.
Eítir að K. F. U. M. hafði verið
stofnað á Akranesi árið 1911 fyrir
forgöngu Sumarliða Halldórssonar,
þá iór sr. Friðrik fljótt að hafa hönd
í bagga með starfsemi þess, og var
hann leiðbeinandi æskulýðs Akra-
ness um langt skeið. Dvaldist liann
þar alltaf öðru liverju milli þess sem
hann var í Hafnarfirði og Reykja-
vik, og nokkuð stöðugt frá 1932,
að undanskildum þeim árum, sem
liann var í Danmörku.
Prestsstörfum gegndi hann á Akra-
nesi meðan sr. Þorsteinn Briem var
ráðherra. Vegna starfs síns i þágu
æskulýðsins var einnig samþykkt á
bæjarstjórnarfundi, að skíra nýgerð-
an barnaleikvöll „sr. Friðriks-völV'
Ljósmyndirnar tók Árni Böðvars-
son.
liann verið formaður íþróttakennara
félagsins þar i landi i nokkur ár,
ennfremur á hann sæti i fræðslu-
ráði íþróttasambandsins finnska.
Ýmsir iþróttamenn, sem Nora
hefir kennt eru heimsfrægir t. d.
Rautio sem vann þrístökkið á Ev-
rópumeistaramótinu og langstökkv-
arinn Símola, sem stekkur yfir
7.50 metra.
Hér er þvi um mjög mikilhæfan
þjálfara og íþróttafrömuð að ræða
og er íslenskum iþróttamönnum
Yrjö Nora.
mikill fengur að slíkum manni. Það
er iþróttasambandið finnska og
ríkisþjálfari ‘ Finna, Armas Valsle,
sem hafa stuðlað að því, að Nora
fengi fri frá störfum til þess að
takast þessa ferð á liendur.
íslenskir íþróttamenn bjóða Nora
hjartanlega velkominn til landsins
og eru þakklátir fyrir, að nú hefir
tekist samvínna milli okkar og
hinnar ágætu íþóttaþjóðar, Finn-
lands.
Prófessorinn (úti á þekju): „Nú
ætla ég að sýna ykkur innyflin í
froskinum.“ (opnar böggul og finn-
ur í honum nokkrar brauðsneiðar).
„Hvað er nú þetta — ég sem át
bitann minn fyrir 20 mínútum!“