Fálkinn - 07.03.1947, Side 5
FÁLKINN
5
Úr heimi brezkra kvikmynda:
Michael Redgrave.
Hann er einn af hinum frægari leik-
urum Breta nú á tímum og vann sér hylli
með starfi sínu fyrir leikfélagið „Liverpool
Rcpertory Co“, sem hann hóf 193b. Undan-
farið hafa verið tvö frœg leikfélög í London,
annað með hinum frægu leikurum Laurence
Oliver, Ralph Richardson og Sybil Thorn-
dike, en hitt er félag John Gielgud á Hay-
market. En bráðlega mun Redgrave-félagið
verða nefnt um leið og þes-si. Hann er mjög
fjölhæfur leikari og bindur sig ekki við á-
kveðna hlutverkategund. Hann leikur Hinrik
F., Antonius, Faust og verstu óbótamenn
jöfnum höndum.
Redgrave er fæddur 1908, yfir 6'
feta hár, jarphærður og fríður maður. For-
eldrar hans voru bæði leikarar og vildu ekki
að Michael færi inn á sömu braut. Hann
varð fyrst barnakennari i þrjú ár, en hann
vitdi lcika. Síðan hefir hann leikið bæði með
Laurence Oliver og Gielgud, en þegar stríðið
hófst gerðist hann háseti á flugvélaskipin'u
„Itlustrious“.
Redgrave hefir samið tvö leikrit.
Myndin er af honum í aðalhlutverkinu i
„Þrumuþór".
Hún var á döfinni fyrir 20 árum.
Þá átti að knýja fram ófrið með
því að myrða Charlie Chaplin, og
taka svo Filipp|Seyjar af Banda-
ríkjamönnuml!! Árið 1935 var jap-
anskur bóksali myrtur fyrir þá sök
eina, að hann hafði reynt að kenna
Japönum hinn ajneríska þjóðar^
knattleik, baseball. Má af þessu
marka að „Svarta drekanum“ fannst
mál til komið að lnjfjast handa þeg-
ar ráðist var á Pearl Harbor, en þá
árás hafði bófaklíkan undirbúið.
„Svarti drekinn“ færðist mjög í
aukana undir forustu Mitsuru Toy-
ama, sem dó fyrir tæpum tveimur
árum, 84 ára. Hann var ásýndum
eins og heimspekingur, með liorn-
spangagleraugu og sítt skegg, virt-
ist vera friðsamlegur einsetumaður,
en var eini maðurinn í Austurlönd-
um, sem gat kallað saman 50.000
manna vopnað lið á tveimur tímum.
Toyama hafði alist upp í ein-
kennilegri stofnun, sem gerð var
samkvæmt spartverskri fyrirmynd,
en þessum skóla stjórnaði kven-
forkur einn, sem Takaba hét og full-
yrti að hún liefði verið sköpuð kven-
kyns fyrir misgáning einan.
Toyama var af fátækri bændaætt
en ríkur maður tók hann að sér
í sonar stað og lét hann ferðast um
Japan. í því slangri komst hann
i tæri við „Svarta drekann“ og varð
einn af forustumönnum lians. Hann
var jafn ónæmur fyrir hótunum og
hóli. Var þess oft freistað að fá
hann til að taka þátt í stjórnmál-
um en Toyama neitaði jafnan og
kaus heldur að vera sá, sem miklu
gæti ráðið bak við tjöldin. Bylt-
ingaspelcingurinn Sun Yat-Sen var
mikill vinur lians, og liann hafði
blandað blóði við núverandi drottn-
anda Kínverja, Chang Kai-Chek, svo
að Toyama var orðinn álirifamaður
meðal gulra þjóða. Hann hafði njósn-
ara í Bandaríkjunum og morðingjum
lians skaut einnig upp í Indlandi.
Þegar Okuma greifi hóf samn-
inga við erindreka erlendra ríkja
1892, viðvíkjandi sérréttindum
þeirra í Japlan, sendi Toyama mann
með handsprengju í humátt eftir
greifanum, og missti hann annan
fótinn við það tilræði. Daginn eftir
kom Toyama brosandi og bliður í
sjúkravitjun til greifans, sem spurði
liann glottandi: „Ertu kominn til
að færa mér fótinn aftur?“ Toyama
hrá hvergi og svaraði: „Merkum
stjórnmálamanni hlýtur að vera það
gleðiefni að fá að fórna fæti sínum
fyrir ættjörðina.“ Og í endurminn-
ingum Okuma greifa, þar sem þessi
saga er sögð, bætir sjálft einfætta
fórnarlambið því við, að sér hafi ver
ið nauðugur einn kostur að dást
að þessum ættjarðar-bófa....
Núverandi stjórn „Svarta drekans“
vill helst láta heiminn yfirleitt en
þó sérstaklega amerikanska setuliðið
halda, að „drekinn“ hafi lognast
útaf um leið og Toyama. Amerík-
anskir blaðamenn hafa haft tal af
síðasta foringja drekans, Kuzuu, sem
kemur þeim fyrir sjónir eins og sak-
leysið sjálft. Hann er 72 ára og
hefir látið sér vaxa alskegg og sið-
an er hann likari hinum fræga fyr-
irrennara sínum en áður. Hann
segir að „Svarti drekinn“ sé ekki
nema nafnið tómt og að langt sé
síðan hann hætti að láta nokkuð
til sín taka. Og svo bætir hann þvi
við, að starf þessa félagsskapar hafi
jafnan verið friðsamlegs og menn-
ingarleg eðlis, þó að liann verði
hinsvegar að játa, þegait gengið er
á hann, að „einstaka félagsmenn
liafi stundum framið ppólitísk morð,
upp á eigin spýtur og án fyrirskip-
ana frá félagsstjórninni."
Kuzuu er fæddur i Japan en flutt-
ist til Iíoreu 19 ára gamall og fór
að gefa út dagblað þar. Hann liefir
gengt mikilsvarðandi embætti undir
þrem mismunandi ríkisstjórnum er
á síðustu áratugum hafa haft mikil
áhrif á japanskt þjóðlíf, og ennfrem-
ur var hann lengi hægri liönd Toy-
ama og síðar eftirmaður hans og
réð miklu um valdastefnu Japana
og yfirgang þeirra út á við.
Amerikumenn treysta ekki Kuzuu,
þeir treysta því ekki að „Svarti drek-
inn“ og um 200 önnur pólitísk leyni
félög, sem á síðustu árum hafa haft
úrslitaálirif á þjóðlíf Japana hafi
allt i einu liætt að vera til, og þeir
trúa því ekki lieldur að hinar gömlu
launmorðingjahugsanir og fyrirsáta-
hugsjónir séu gleymdar. Þeir telja
þvert á móti að „Svarti drekinn“
og önnur félög honum lík liafi farið
í felur og bíði eftir lientugu tækifæri
til þess að beita ofbeldi á ný, að
dæmi þýsku varúlfanna - og vitan-
lega koma aftan að andstæðingnum.
Bak við kurteisa framkomu og
hæverskt látbragð liinna brosandi
sigruðu Japana leynast öfl, sem
stunda njósnirnar sem hverja aðra
list og launmorðin sem vísindi.
*****
ölga í Palestínu.
Það virðist lítið kyrrast um í
Palestínu, og síðastliðin vika hefir
hefir orðið ein hin örlagaríkasta þar
í landi. Hér sjást enskir hermenn
koma með hóp Gyðinga, sem grun-
aðir eru um spellvirki, til yfirheyrslu
í herbúðum víð Jerúsalem.
■