Fálkinn - 07.03.1947, Side 6
e
F Á L IC I N N
..
R. L. STEVENSON:
GIJLLEYJAM
MYNDAFRAMHALDSSAGA
19. „Eg held að ég sé að verðb,
veik, Jim, hvað cigum við að gera?“
sagði móðir min allt i einu á flótt-
anum. Til allrar hamingju var brú
í nágrenninu, þar sem hægt var að
koma henni í skjól og felur. — En
forvitni min lét mig ekki i friði,
svo að ég fór að njósna um, hvað
væri á segði i kránni.
20. t broddi fylkingar voru þrír
menn. Sá, sem var í miðjunni var
tvímælalaust blindi maðurinn, sem
kom með bréfmiðann. Hann var
sýnilega höfuðpaurinn. „Brjótið upp
hurðinal“ öskraði hann. Þeir, sem
fyrstir urðu inn, fundu líkið og köll-
uðu út að Bill væri dauður. „Leitið
í vösum hans og kistunniT' sagði
sá blindi.
21. En sú leit bar skiljanlega lít-
inn árangur, og höfuðpaurinn varð
æfur og trylltur, þegar kortið hans
lcapteins Flints fannst ekki, þvi að
til þess að hremma það var förin
farin. ,,Bölvaður piltungsþrjóturinn“
hrópaði hann. „En hann skal verða
fundinn. Leitið um húsið hátt og
lágt!“ — Siðan var öllu umturnað
i húsinu, og allt brjótanlegt var brot-
iiið. En hvergi var neitt að finna.
Copyright P. I. B. Bo« 6 Copcohagtn
22. Þá heyr'ðist hœttumerki i
grenndinni, sennilega frá einhverj-
um varðmanninum í sveitinni. Hóp-
urinn bjóst þá til að flýja, en blindi
beiningamaðurinn — forkólfur þorp-
arana — barði i allar áttir en
komst ekki fótmál, þ.vl að félagar
lians skildu hann eftir hjálparlaus-
an.
23. Nú heyrðist viðvörunarslcot,
og hófaskellir urðu greinilegri og
greinilegri. Brátt kom það i Ijós,
að það var riddaralið héraðsins,
sem var áferðinni. Það geystist á-
fram og blindi beiningarmaðurinn
tróðst undir hestafótunum og bærði
ekki á sér lengur, cn félagar hans
voru allir á bak og braut.
2't. Með hjálp riddaranna kom ég
mömmu heim á bóndabæ, þar sem
henni var vcitt góð aðhlynning.
Síðan tvimennti ég með einum ridd-
aranum til héraðsfógetans og læknis-
ins dr. Livesey, til þess að gefa
skýrslu um atburðina á kránni. Við
riðnm greitt, og ég righélt mér um
mitti riddarans.
25. Dr. Livesey var ekki heima.
Hann hafði verið kallaður til ein-
hvers herra Trelawny, og þangað
fór ég. „Nei, Jim Hawkinsi hvað
er þér á höndum?" sagði hann, er
ég kom inn. Eg gaf skýrslu af við-
burðinum, og bæði dr. Livesey og
hr. Trelaumy hlýddu eftirvæntiny-
arfullir á frásögn mína.
26. Að síðustu rétti ég þeim pakk-
ann, sem ég hafði fundið hjá kap-
teininum, og þeir opnuðu hann með
ákefð. í honum var bók með reikn-
ingum, sem hljóðuðn upp á háar
fjárhæðir, og ýmsum útreikningum.
Stjörnulestur
Eftir Jón Árnason, prentara
Nýtt tungl 21. febrúar 1947.
Alþjóðayfirlit.
í aðalatriðum er stundsjá þessi
ekki þróttmikil, því megnið af plá-
netunum eru í veikum merkjum og
breytilegum áhrifum. Hjálparstarf-
semi œtti þó að aukast, jafnvel þó
að fjárhagsatriðin og framkvæmdir
verði fyrir ýmsum truflurium. Meiri
hluti pláneta eru í vatnsmerkjum,
sem benda á aukna samúð, en það
jafnvægist að nokkru við það að
öll merki loftþrihyrningsins eru set-
in plánetum, sem styrkja huglífið.
Lundúnir. — Nýja tunglið, Merkúr
og Mars eru 3. húsi. Umferða og
flutningamálin munu mjög á dagskrá
í Englandi. Örðugleikar ýmsir munu
birtast i þessu sambandi og óá-
nægja meðal verkamanna í þeim
greinum. Eldur gæti komið upp í
samgöngutækjum, einkum í sam-
bandi við járnbrautir og slys sýni-
leg. Þötta er slæm afstaða. Þó geta
góð áhrif Merkúrs eitthvað bætt úr.
Blaðaumræður um þessi efni koma
til greina. — Venus i 2. húsi. Fjár-
hagsmálum undir slæmum áhrifum,
þvi Venus hefir slæmar afstöður.
—Úran í 7. húsi. Örðugleikar, sem
birtast fyrirvaralaust í utanrikismál-
um. — Satúrn í 9. húsi. Hefir allar
afstöður slæmar. Örðugleikar mikl-
ir í sambandi við nýlendurnar og
viðskiptin þar.
Berlin. — Fjárhagsmálin munu
mjög á dagskrá í Þýskalandi, því
Mars, Sól og Tungl eru 2. húsi og
hafa slæmar afstöður. Útgjöldin
munu aukast mjög og bankaörðug-
leikar geta komið til greina. — Úr-
an í 7. húsi. Hefir afstöður ‘slæm-
ar og veldur örðugleikum í viðskipt-
um við aðrar þjóðir og áróðri gegn
valdhöfum og lögleysur og lögbrot
k.oma í ljós. — Neptún i 10. húsi.
Hefur slæmar afstöður. Ráðendur
munu komast i örðuglcika og missa
álit og hátt settir menn eiga á hættu
að komast í vandkvæði og tapa í
veraldlegum og siðferðilegum efnum.
Satúrn og Plútó í 8. húsi. Kunnir
öldungar inunu deyja.
Moskóva. — Mars, Sól, Tungl og
Merkúr í 1. húsi Örðugleikar meðal
almennings og óánægja mun sýni-
leg. Heilsufarið slæmt og hitasóttir
gera vart við sig. — Úran í 4 húsi.
Örðugleika munu ráðendurnir eiga
Framh. á bls. li
Og þar var lika kort kapteins Flints
af „Treusnre Island“ (Gulleyjan). Á
eynni voru merktir staðir eins og
„Spueglass Hill“ (Kikishæð) og
„Skeleton Island" (Beinagrindarey).
27. Yfirleitt var kortið nákvœml,
og siglingarleiðir við eyjuna voru
merktir, og innan skamms fór djarf-
legum hugmyndnm að skjóta upp
í kolli dr. Livesey, og hr. Trelaway.
Þeir hugðu á siglingu til Gulleyj-
unnar í leit að fjársjóðum kapteins
Flints. „En við megum ekki fara
óðslega að neinn," sagði dr. Lives-
ey, „því að fleirum er kunnugt um
sjóðina en okkur, og það eru karl--
ar, sem láta sér ekki allt fyrir brjósti
brenna."