Fálkinn - 07.03.1947, Síða 7
FÁLKINN
7
Andrés önd. — Maðurinn við hljóð-
nemann getur hrósað sér af þvi að
eiga best þekktu rödd i heimi. Hann
heitir Clarence Nash, og það er rödd
hans, sem heyrist, þ.egar Andrés önd
hin frœga persóna Walt Disney,
opnar gogginn á hvíta léreftinu. —
Hér heldur Nash á líkani, sem börn
um víða verötd kannast við.
Bakarinn, sem kemur með brauð
til íbúanna í frönsku Ölpunum,
skeytir litið um vandfýsni eða aðrar
kreddur. Hann kemur með brauðin
umbúðalaus á sleða og rambar með
hann eftir götunuml
Woolworth Building. — Þetta er
hinn frœgi skýjakljúfur Woolworth
Building i New York. Hann var
reistur árið 1912 af Woolworth-
firmanu, sem hefir lengi verið ein
freegasta bazar-verslun i Ameríku.
Það hefir verslanir um víð og dreif
vestan hafs, þar sem aðeins hafa
verið tvær verðtegundir, 5 og 10
cent. Það voru bræðurnir Chartes
Summer Woolworth og Frank Win-
field Woolworth, sem Mofnuðu fur-
irtækið. Þeir voru synir blásnauðs
bónda, en urðu síðan einir rikustu
menn í heimi. Charles er nú látinn.
V.2-flugsprengjan. — Atomsprengjan hefir engan veginn drcp-
ið áhuga hernaðarsérfræðinga á V,2-flugsprengjunni. 1 til-
raunsatöðvum ameriska hersins í White Sands, New Mexico,
er stöðugt unnið að fullkomnun þessa vopns undir forystu
þýskra sérfræðinga. Á myndinni sést V.2-sprengja í tilrauna-
stöðinni. Hún er fest í skotturninum áður en henni er skotið.
Neðst til vinstri eru amerískur verlcfræðingur og þýskur
rakettusérfræðingur að tala saman.
Þjóðnýting. — Nú hafa Bretar sem
kunnugt er þjóðnýtt kolanámurnar.
Mynd þessi er frá kolanámu í Kent,
þar sem verkamennirnir hafa skrif-
að á eina skófluna: „First National
Coal 1/1 ’V7.“
Nýtísku vatnspóstur. — Þessi tegund
af vatnspóstum er nýjung vestanhafs
og er áhaldið mjög hentugt l sveita-
skólum, þar sem rennandi vatn er
ekki nálægt. Það þarf aðeins að
dæla nokknr slög, til þess að vatns-
súlan standi i boga upp\ í loftið
nokkurn tíma, svo að hœgt er að
fá sér vat.nssopa bollalaust.
GRAFREITURENN. — Orustan við El Alamein hefir vafalaust
breytt meiru um framvindu stríðsins en flestar aðrar orustur
styrjaldarinnar, að Stalingrad-orustunni þó undanskilinni. —
En þótt þar tækist að stöðva sókn Rommels og hrekja hann
öfugan sömu leið og hann kom, þá var það ekki gert fórnar-
laust. Á sandauðninni við El Alamein féllu 8000 Englendingar
úr 8. hernum og fjöldi særðist. Hinir föllnu hvíla nú í grafreit
úti í sandauðninni, þar sem ráðgert er að reisa þeim veglegan
minnisvarða. Myndin er tekin á minningarhátíð, sem haldin
var við grafreitinn.
asus.
Ivan Iíoniev marskálkur hefir nú ver-
ið skipaður æðsti maður „territor-
ialherjanna“ rússnesku eftir Sjukov
marskálk. 1 styrjöldinni kvað mikið
að Koniv og var hans getið í skeyt-
um. Ilann var hershöfðingi i Úkra-
inu og ásamt Budjeny hershöfðingja
rak hann þjóðverja til baka eftir að
þeir voru komnir með her sinn
austur fyrir Svartahaf og voru um
þ,að bil að ná oliiúindunum á Kák-