Fálkinn - 28.03.1947, Side 10
10
FÁLKINN
Hvar er Lundy?
Lundy (Lundey) er lítil eyja við
Englandsströnd, ekki langt frá Brist-
ol, og er hún eign manns, sem er
bæði einþykkur og sérvitur. Hann
hefir m. a. sett á stofn sérstaka póst-
málastjórn fyrir eyna, sem telst ekki
undir ensku póstmálastjórnina. Gef-
ur hann því út sérstakt frímerki,
en þau eru vitanlega ekki gild nema
á eynni sjálfri. Fyrir peningana, sem
koma inn fyrir sölu frímerkjanna,
leigir hann sér menn til að bera
út póstinn.
Þessi sami maður hefir lika einu
sinni reynt að gefa út sérstaka pen-
ingaseðla fyrir Lundey, en j)að
fannst ensku fjármálastjórninni of
grátt gaman, og bannaði honum það
og gerði seðlana upptæka.
En ef þú rekst einhverntíma á
frímerki, sem Lundy stendur á,
þá veistu hvaðan það er komið.
Það er hvergi talið í frímerkjaverð-
skrám og hefir ekkert gildi. En samt
er gaman að eiga það.
Blaðamennirnir.
Framhald af bls. 6.
móti þeim opnar ritari lians dyrn-
ar og blaðamennirnir streyma inn
og þeir sem koma fyrstir raða sér
kringum skrifborð forsetans - venju-
lega eru svo margir á fundi, að
aðeins þeir sem næstir eru geta
náð til forsetans.. Forsetinn stendur
upp úr sæti sínu og fer að tala
við blaðamennina, oftast byrjar
hann með því að lesa upp einhverja
tilkynningu, og síðan spyr hann
hvað þeir vilji vita. Spurningarnar
eru borna fram munnlega. Blaða-
mennirnir ávarpa hann „Mr. Presid-
ent“. Stundum spyrja 2-3 um eitt-
hvað samtímis, og fersetinn á-
kveður þá sjálfur hverjum hann
svarar fyrst. Engin takmörk eru
sett fyrir því hve oft sami maður-
inn megi spyrja.
Svörunum er skipt í 3 flokka: 1)
Það sem hægt er að telja ummæli
forstans sjálfs, 2) það sem telst vera
frá opinberri heimild en þó ekki frá
forsetanum, og 3) það sem talið er
trúnaðarmál og bannað er að minn-
ast á í blöðunum. Flest svörin falla
undir 1. flokk. Stundum gefur liann
skýrslu, sem leyfilegt er að birta i
heilu lagi eða vitna í.
Eins og stendur eru það 48
blaðamenn frá erlendum blöðum,
sem hafa leyfi til að mæta á þess-
um fundum. 17 eru frá Englandi,
7 frá Kína, 6 frá Ástralíu, 5 frá
Rússlandi (Tass-fréttastofunni), 3
frá Canada og tveir frá hverju
landinu: Frakklandi, Sviss og Gyð-
ingalandi, en einn frá Danmörku,
Spáni, Hollandi og Filippseyjum.
Margir af útlendingunum eru starfs
menn l'réttastofa en ekki blaða, svo
sem Tass, Canadian Press, Australia
Associated Press og Central New
of China. Ensku fulltrúarnir eru
flestir fyrir mörg blöð hver. Stund-
um fá kunnir höfundar og blaða-
rnenn,, sem dvelja um stundarsakir
við fréttasöfnun í Bandarikjunum,
að sækja þessa fundi í eitt eða fleiri
skipti. Verða þeir að fá meðmæli
sendiherra síns og amerískur em-
bættismaður er með þeim á fund-
inum. Svona lieimsækjendur fá
ekki að bera fram spurningar, en
þeir geta skrifað hjá sér það sem
' fram fer og hafa leyfi til að birta
það, samkvæmt þeim reglum sem
settar eru hinum föstu blaðamönn-
um. | ^
Ævintýri ú veiðiför.
— Heldurðu uð ég viti það ekki! — Þetta með regkþokuna lœrðum
i þínum augum er ég ekki annað við ú herœfingunum........./
en húsgagn. *****
LEYNDARDÓMUR ÁLFSBÆJAR
1. Sveinn vaknaði við hávaða.
Hann var í frii og dvaldist nú á
gamla búgarðinum hans frænda
síns. Þar hafði hann oft og tíðum
heyrt ýmiss konar kynjahljóð. -
Sveinn settist upp í rúminu og hlust-
aði. Það var áreiðanlega ekki hest-
ur, sem sparkaði í hesthúsvegginn.
Herbergi Sveins var upipi á lofti
við liliðina á herbergi vinnumanns-
ins, og nú var klukkan aðeins hálf
ellefu, svo að Niels frændi gat ekki
ennþá verið kominn aftur úr bænum.
2. Sveinn tók skjóta ákvörðun óg
stökk fram úr rúminu. Svo læddist
hann fram á loftið og opnaði hljóð-
lega dyrnar að herbergi Jens Ant-
ons. Vinnumaðurinn svaf eins og
steinn, og Sveinn varð að ýta dug-
lega við honum, áður 'bn hann opn-
aði augun. „Heyrðir þú ekkert, Jens
Anton“. „Nei, ég heyri ekki neitt,
þegar ég sef!“ Sveinn sagði honuni
nú frá hávaðanum, sem hann hafði
heyrt niðri, og þá reis Jens Anton
á fætur og náði í vasaljósið.
3. Þeir læddust nú báðir niður
loftstigann, fóru gegnum eldhúsið og
inn í dagstofuna. Þar var ekkert
athugavert, en Jens Anton fór strax
að snuðra í allar áttir. En þá kippti
Sveinn snöggt í handlegginn á hon-
um, og án þess að segja orð benti
liann á skothurðina inn í betri
stofuna. Birtu bar úr stofunni und-
ir hurðina, einliver hlaut því að
vera þar inni.
4. Jens Anton rcif dyrnar upp á
gátt, en varð grafkyrr og lirópaði
undrandi: „Andrés! Hvað ert þú
að gera liérna.“ - Sveinn réðst undir
eins að manninum, sem stóð uppi
í sófanum og lýsti með vasaljósi á
vegginn. Stóra málverkið lá á gólf-
inu með brotinn ramma. Þctta var
skýringin á skarkalanum. Maðurinn
i sófanum vatt sér snarlega við,
stökk niður á g'ólf og gaf Sveini vel
útilájið kjaftshögg svo að hann féll
endifangur. Síðan hljóp hann að
glugganum og lientist út um hann.
Framhald i næsta blaöi.