Fálkinn - 11.07.1947, Page 2
2
F Á L K 1 N N
„Þeir
héldu,
uö ég
væri
í fang-
elsi,“
sagði
hann.
Ferðaskrifstofa ríkisins
gefur ferðamönnum upplýsingar um allt, sem lýtur að
ferðalögum, skipuleggur og efnir til orlofs- og skemmti-
ferða.
Skrifstofan starfar einnig á Akureyri um sumartímann
og er þar í húsinu nr. 5 við Strandgötu, sími 475.
I Reykjavík er skrifstofan við Arnarhólstún, sími 1540
(þrjár línur).
Ferða&krifstofa ríkisins.
Nú er „Giilleyjan“ á enda og
ævintýrum skipsdrengsins Jim lok-
ið. í næsta tölublaði Fálkans hefst
ný myndaframhaldssaga. Það er hin
fræga skáldsaga Victors Hugo,
„VESALINGARNIR“, sem valin lief-
ir verið.
Saga galeiðuþrælsins or þrungin af
viðburðum. Hún mun veita lesend-
um á öllum aldri ósegjanlega gleði
og varpa ljósi á sálarlíf vel meitl-
aðra persóna, sem höfundur sýnir
okkur i sögu sinni. Hún er í senn
ævintýraþrungin og raunsæ. Þeim,
sem hafa lesið þessa bók Hugos
eða séð kvikmyndina um galeiðu-
Jirælinn fyrrverandi, sem lierst fyr-
ir að fá mannréttindi í þjóðfélag-
inu að lokinni þrælkun, verður það
til ánægju að rifja upp þessa klass-
isku skáldsögu. Þetta er saga af
manni, sem vill hafa sig upp úr
vesæld, en reynist brautin torsótt,
þar sem fortíðin verður honum oft
að fótakefli, og enn eimir eftir af
spillingu þrælkunaráranna. Ilann
kemst þó til metorða og gerist þá
málsvari hinna fátæku, en lifsgeng-
ið er fallvalt, og galeiðustimpillinn
bregður öðrum blæ yfir lif hans en
hann sjálfur hefði æskt.
Fylgist með frá byrjun.
Landbúnaðarsýningin
er án vafa mesta sýning, sem hér hefur verið haldin.
Aðsóknin, sem verið hefur, sannar það líka, að landsmenn
hafa kunnað að meta hana. — Dómar blaðanna eru lof-
samlegir og ánægja sýningargesta nærri einróma. — —
Sýningin er enn um sinn opin klukkan 2—11
siðdegis, en óvíst að hún standi nema til
sunnudagskvölds þann 13. þessa mánaðar.
Komið því iiii þegar!
Landbúnaðarsýningin