Fálkinn - 11.07.1947, Blaðsíða 14
14
F Á L K 1 N N
LÚÐRASVEIT REYKJAVÍKUR
Gísli Guðmundsson fyrsti form.
Lúðrasveitarinríar.
Hinn 7. júlí 1922 var stofnað til
fyrirtækis hér í Reykjavík, sem síð-
an hefir veitt borgarbúuni margar
ánægjustundir. Það er Lúðrasveit
Reykjavíkur. Áður böfðu starfað hér
Lúðrasveitirnar Harpa og Gígja, en
])ær sameinuðust í liinu nýja félagi,
25 ÁRA
sem varð 25 ára á mámulaginn var.
Þjóðverjinn Otto Böttcher varð
fyrsti stjórnandi Lúðrasveitarinnar,
dugandi maður og áhugasannir, en
síðar liafa stjórnað sveitinni dr.
Franz Mixa, dr. Páll ísólfsson, Karl
Runólfsson tónskáld og nú siðast
Albert Klahn, sem verið hefir stjórn-
andi hennar mörg undanfarin ár.
Verður ráðið af þessum nöfnum,
að Lúðrasveit Reykjavíkur hefir
jafnan verið undir forustu ágætra
tónlistármanna.
Ilitt er eigi minna um vert, að
sveitin hefir líka verið skipuð mönn-
um með ódrepandi áhug'a fyrir tón-
listinni. Flestir ef ekki allir þessir
menn hafa <lags daglega öðrum
störfum að gegna en að sinna tón-
listinni, en samt hafa þeir gefið sér
tíma til að stunda æfingar og varið
til þess flestum tómstundum sín-
um. Hafa forustumenn félagsskap-
arins jafnan staðið vel á verði um
að gera starfið sem hest og happa-
drýgst.
Árið eflir að félagið var stofnað
réðst það í að byggja Hljómskáí-
ann í Tjarnargarðinum og fékk þar
rúm lil æfinga sinna. Félagið lagði
lika fyrstu undirstöðuna að Tón-
listarskólanum, sem nú er orðinn
mikil stofnun og merkileg; þó að
Tónlistarfélagið annist nú rekstur
hans var fyrsta starfið unnið af
Lúðrasveitinni, enda átti hún og
þátt i stofnun Tónlistarfélagsins.
2n Hljómskálinn var til skeminsta, og
15 ár samtals, aðal atlivarf skólans,
sem á síðasta ári hafði um 300 nem-
endur og hefir orðið til að gerbreyta
öllu tónlistarlífi bæjarins eða rétt-
ara sagt til að skapa það.
Hvenær sem Reykvíkingar eiga
sér hátíðisstund á almannafæri er
leitað til Lúðrasveitarinnar um að-
stoð. Án hennar er hvorki hægt að
lialda 17. júni eða 1. desember, svo
Guðjón Þórðarson, núv. formaður.
að nefnd séu dæmi. Og stundum
leggur Lúðrasveitin land undir fót
og heimsækir fjarlæga bæi, svo sem
í Norðurlandsförinni fyrir nokkrum
árum og nýlega Vestmannaeyjaför-
inni í ár, og er hvarvetna aufúsu-
gestur.
Fýrsta stjórn Lúðrasveitarinnar var
skipuð þeim Gisla Guðmundssyni,
bókbindara, .Birni Jónssyni kaup-
manni, Pétri Helgasyni, Óskari lieitn
um Jónssýni prentara og Karli Ó.
Runólfssyni. Hafa þeir þessara
manna sem enn lrfa komið mjög
við sögu og starf sveitarinnar síðan.
En núverandi stjórn skipa Guðjón
Þórðarson (form.), Kári Sigurjóns-
son, Oddgeir Hjartarson, Magnús
Sigurjónsson og Sigurður Þorgríms-
son. Starfandi mpðlimir eru alls 24,
()g eru þeirra elstir þeir Sigurður
Hjörleifsson og Stefán Gunnarsson,
sem báðir hafa verið í sveitinni
frá upphafi.
Reykvikingar minnast Lúðrasveit-
arinnar með þakklátum hug á 25
ára afmælinu og fá tækifæri til að
fjölmenna á afmælishljómleika þá,
sem hún ráðgerir að halda á hausti
komaiida.
Kristín Árnadóttir,ekkja Púls Árna-
sonar lögregluþjóns verður 70 ára
12. júlí.
Gullbriiðkaup átta 6'. þ. m. Halldóra
frá Iirjánsstöðum
Pétursdóttir og Þorkell Þorleifsson
i Grimsnesi.
Frú Jóhanna Bjarnad. frá Hrapps-
ey á Breiðafirði varð 80 ára 10 jiití.