Fálkinn - 11.07.1947, Page 16
16
F A L K I N N
Meiri mjólk, því að ALFA-LAVAL vélin er smíðuð þannig, að hún
hefur sérstaklega góð áhrif á mjólkurhæfni kúnna
Betri mjólk, því að með ALFA-LAVAL vélunum er hægara að framleiða
hreina og gerlalitla mjólk,en með nokkurri annari mjaltaaðferð
Ódýrari mjólk, því að ALFA-LAVAL vélarnar þurfa svo lítið afl og vara-
hlutaeyðslan er mjög lítil
ALFA-LAVAL mjaltavélum fylgir prentaður leiðarvísir á íslensku. Sérfróður
maður, sem er í þjónustu vorri, setur vélarnar upp og vér
munum sjá um, að ávallt sé fyrir hendi nægur forði varahluta
Bændur: athugið hvað nágranninn, sem hefur ALFA-LAVAL mjalta-
vél, segir um vélina sína, áður en þér festið kaup á mjaltavél annarsstaðar
EINKAUMBOÐ FYRIR ÍSLAND :
SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA