Fálkinn - 07.01.1949, Qupperneq 3
FÁLKINN
3
Matarskortur í Shanghai.
1 Shanghai, stærstu borg i Kína og einni ar stærstu borgum
heimsins, hefir að undanförnu verið hálfgerð hungursneyð.
Fyrir nokkru þraut rísbirgðirnar alveg, og þegar loksins feng-
ust nokkrir skipsfarmar frá Hongkong var hið mesta ófremd-
arástand komið á í borginni. Myndin er frá einni verslun-
argötunni í borginni, þar sem börn og fullorðnir hafa skipað
sér í raðir fyrir framan matvöruverslanirnar til þess að fá
risskammtinn sinn. Lögregluþjónn (með hvíta húfu) sér um
að enginn troði sér fram í röðinni.
Griðrof á Jöwu
Sá atburður á erlendum vettvangi, sem mesta athygli og
gremju hefir vakið siðustu vikur, er tvímælalaust griðrof
llollendinga á Indonesum á Jövu. Engin þjóð hefir orðið til
De Gaulle leitar fylgis verkamanna. Myndir þessar eru tekn-
ar á hinum geysifjölmenna fundi verkamanna, sem de Gaulle
stofnaði nýlega til í París. Að ofan: De Gaulle flytur ræðu.
Áróðursstjóri flokks hans, Andre Malraux, hlýðir á með at-
hygli. Að neðan: Nokkrir af áheyrendum.
að taka svari Hollendinga í þessu máli, og í Öryggisráðinu
róa þeir einir <í báti. Hollendingar telja siálfir, að um lög-
regluaðgerðir einar sé að ræða og þetta sé því einkamál þeirra.
En allt um það þá sætir framkoma þeirra í Indónesiu megnri
andúð. Efri myndin er af hollenskri vélaherdeild á leið til
stöðva Indonesa, en sú neðri af nokkrum Indonesum á flótta
frá vigstöðvunum.