Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1952, Page 8

Fálkinn - 12.12.1952, Page 8
4 JÓLABLAÐ FÁLKANS 1952 X)óra og Tlaraldur cru bœði stariandi músik-prófcssorar Zónlislarhá- skólans í Xaupmannahöfn. - 8n hdmili þcirra cr íslcnskt, þó að hjónin búi í Vanmörku. HARALDUR í Kaldaðarnesi var hann kallaður fyrst þegar farið var að tala inn hann liti í frá. Har- aldur Sigurðsson frá Kaklaðarnesi var hann nefndur síðar, en nú mun algengast að kalla liann Harald Sig- urðsson prófessor, en liklega er sum- um af eldri kynslóðinni tarnt ennþá að bæta „frá Kaldaðarnesi" við, jafn- vel þó að prófessorstitillinn sé not- aður. Og þó er Haraldur ekki fæddur í Kaldaðarnesi, heldur í Hjálmholti, en þar dvöldust foreldrar lians um tima áður en þa.u fluttust að höfuðbólinu Kaldaðarnesi. Sigurður Ólafsson sýslumaður hafði áður verið sýslu- maður í Skaftafellssýslu nokkur ár en fékk veitingu fyrir Árnessýslu 1891 og dvaldist hjá Ólafi föður sínum í Hjálmholti uns hann tók Kaldað- arnes til ábúðar, en þá jörð keypti liann eftir komu sína vestur i Árnes- sýslu og sat liana með svo mikilli prýði, að hún var jafnan talin höfuð- ból Suðurlands á þeim árum. Haraldur fæddist 5. maí 1892, en hann var ekki orðinn gamall þegar það fór að spyrjast, að þarna væri undrabarn á ferð. Hann lærði alla tóna og lék sér að því að endurtaka þá á hljóðfærið undir eins og hann hafði fengið mátt í fingurna til að ná tónum úr hljóðfærinu, og beitti hökunni, þegar fingurnir náðu ekki nótunum. Honum var ásköpuð alger tónheyrn, en það er fátítt. Áður en haim varð altalandi vissi hann tón- inn í hverri nótu án nokkurrar við- miðunar. Ef liann var leiddur að hljóðfærinu og spurður, hvernig hljóðið væri í þessari og þessari nótu, kom það rétt af vörum lians á svip- stundu. Þótt stutt væri á margar nót- ur í einu og hann væri í öðru her- bergi og sæi ekki til, taldi liann þær allar upp viðstöðulaust. Einnig gat hann t. d. sagt, livaða nótu osta- kúpan gæfi frá sér, ef barið var í liana. Og hann hermdi eftir mörgum liljóðum á hljóðfærið, svo sem liljóð- inu í skilvindunni. Allt þótti þetta furðulegt. Hann gretti sig ef hann lieyrði falskan tón, en iðaði af ánægju þegar faðir hans lék fyrir hann á hljóðfærið, en í rauninni var Sigurð- ur sýslumaður fyrsti kennari hans. Og það var lán Haralds að alast upp hjá foreldrum, sem sáu þegar i stað, hvað í honum bjó, og liöfðu getu til að láta hann fá að þroska sína ágætu hæfileika undir leiðsögn liinna bestu kennara, sem völ var á. Haraldur var aðeins sextán ára er hann fór utan og settist í píanódeild Tónlistarháskólans í Kaupmanna- höfn, hinnar ágætu listastofnunar, sem Haraldur hefir nú 'starfað sem kennari við í rúm þrjátíu ár. Þaðan útskrifaðist hann fjórum árum síðar, 1912, og hafði hann haft sem aðal kennara öll árin Mary Schou, sem liann minnist jafnan með miklu þakk- læti og aðdáun. Þess skal getið að hún minntist Ilaralds jafnan með líkum tilfinningum. Samtímis píanó- náminu slundaði Haraldur einnig organistanum hjá prófessor Otto Malling og lauk prófi í þeirri grein. Líklegt er að Haraldur muni hafa haft í liuga þessi árin að hverfa til íslands að loknu námi og framhalds- námi, og því muni hann hafa lagt stund á orgelleikinn jöfnum höndum, enda er skylt að taka aukanámsgrein. Því að á þessum árum var svo ástatt í tónlistarlífi Reykjavíkur og íslands yfirleitt, að afkomuvonir voru litlar fyrir verulega kunnandi tónlislar- menn. Þá var hér enginn tónlistar- skólí, engin hljómsveit •— nema lúðra- félagið — en karlakórar, sem eru það Haraldur og Dóra æfa sig undir hljómleika. Á veggnum bak við sést málverk Jóns Stefónssonar af Eiríks- jökli. Danskur gestur kom í heimsókn, og þegar hann sá málverkið, sagði hann: „Sikken en flot isanretning“. elsta í músikmenningu höfuðstaðar- ins, áttu örðugt uppdráttar, enda var fólkið fátt og peningaráð lítil á móti því sem síðar varð. Organistaembætt- ið við Dómkirkjuna mun hafa verið eina launaða embættið í tónlist, og ef ég man rétt, voru árslaunin 800 krón- ur. Um annað var ekki að ræða, nema söngkennslu í skólum og einkakennslu í píanóleik. Það var engin furða, þó að efni- legasta tónlistarmanni, sem þá var uppi, litist ekki á að hverfa heim til þess að eiga að setja bú hér. En hins vegar kom hann oft heim í sumar- leyfunum og hélt þá hljómleika, og þeir urðu jafnan hátíðastundir þeirra, sem gaman liöfðu af góðri tónlist. Fólk hlakkaði til þessara hljómleika —: miklu meira, held ég, en það hlakk- ar til skemmtana nú, enda var það svo sjaldgæft þá að fá að heyra eitthvað, sem var mjög gott. Á þeim árum voru það auk Haralds Pétur Á. Jónsson og síðar Jón Norðmann og Páll ísólfs- son, sem settu svip á tónlistarlífið í Reykjavík. Síðar fóru útlendir gestir að koma hér við og við. Þá var Báran aðaltónlistarhús bæj- arins, en stundum Templarahúsið, uns Nýja Bíó við Austurstræti kom til sög- unnar, og síðan livert samkomuhúsið af öðru. Veggfóðrið í Iðnó þótti gleypa í sig liljóðið, en í Bárunni voru timb- ur.þil. En að öðru leyti skorti margt á, að Báran gæti fullnægt nútímakröf- um. Það var annað livort í fyrsta eða annað skiptið, sem Haraldur og frú Dóra héldu liljómleika í Reykjavík eftir fyrri heimsstyrjöldina, að hér voru mikil húsnæðisvandræði, svo að maður nokkur hafði tekið á leigu her- bergi það, sem listamönnum var ætl- að að hafast við í í hléunum. Leigj- andinn hafði vitanlega gengist undir að verða burt úr herberginu meðan hljómleikar voru lialdnir. En af ein- hverjum misgáningi fór það svo, að þegar þau hjónin komu inn í „lista- mannaklefann" í einu liléinu, var leigj- andinn þar fyrir albúinn til að hátta, en reykti af kappi, svo að loftið var orðið þykkt og miður heppilegt fyrir söngkonu að eiga að anda því að sér. Haraldur getur hlegið dátt þegar hann minnist þessa atviks, sem hann telur það skringilegasta, sem komið hafi fyrir sig á hljómleikum sinum. „Ann- að hvort hefir manninum þótt veðrið slæmt eða konsertinn óþarflega lang- Úr stofuhorni á Maglemosevej. 1 skápnum er mikið af íslenskum bókum.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.