Fálkinn - 12.12.1952, Síða 10
6 JÓLABLAÐ FÁLKANS 1952
í Louvre-safninu fræga í París eru á
veggjunum auglýsingar urn að bannað
sé að taka ljósmyndir í safninu eða
nota stækkunargler til bess að skoða
myndirnar. En skemmtiferðafólk virð-
ir þetta bann siundum að vettugi og
þá verða umsjónarmennirnir að taka
í taumana. Hér sést unisjónarmaður
vera að skipta sér af manni, sem skoð-
ar eitt listaverkanna gegnum stækkun-
argler. —
Hús Haralds og Dóru á Maglemosevej. Við dyrnar út í garðinn standa Haraldur, Dóra og Elísabet.
Hún er orðin kunn liér á landi og
víðar fyrir frábæra tónlistargáfu. —
Fyrir fimm árum hélt hún fyrstu op-
inberu liljómleika sína. Það var á
Akureyri, 26. ágúst 1947, og til minn-
ingar um það á hún fallega mynd af
Akureyri, með ágröfnum skildi, gjöf
frá tónlistarfélaginu á Akureyri. Hálf-
um mánuði síðar hélt hún liljómleika
hér í Reykjavík og Hafnarfirði. Hún
minnist oft þessara fyrstu liljómieika
sinna (sem eiginlega voru haldnir í
leyfisleysi, því að nemendur Tónlist-
arháskólans mega í rauninni ekki
halda opinbera hljómleika, og hún var
enn í skólanum er liljómleikarnir voru
haldnir) og heldur mikið upp á Akur-
eyrarmyndina sína, fyrstu heiðursr
gjöfina, sem hún fékk á listamanns-
brautinni.
Elisabet er snillingur á tvö bljóð-
færi, klarinet og píanó. Að loknu
námi við Tónlistarháskólann í Höfn,
en þar hlaut hún ágætiseinkunn við
burtfararpróf, hélt hún til Parisar og
stundaði þar framhaldsnám lijá fræg-
um kennurum i báðum greinum í
tvö ár. í fyrrasumar lék hún tvo kon-
serta eftir Mozart (kiarinet- og píanó-
konsert) með hljómsveitinni í Tivolis
Konsertsal og fékk hina ágætustu
dóma. En í janúar næstkomandi stend-
ur til, að hún haldi fyrstu sjálfstæðu
hljómleikana sína í Kaupmannahöfn.
Alit bendir til þess, að þessi stórefni-
lega listakona mundi lialda vel uppi
merki foreldra sinna.
Hér eru engin tök á að rekja lista-
feril Haralds Sigurðssonar eða frú
Dóru. Það hefir verið gert talsverl
ýtarlega af Þórði Kristleifssyni í
sunnudagsblaði Visis 19. nóv. 1944,
og vísast þeim þangað, sem vilja vita
meira um Dóru og Harald. En þess-
um línum er aðeins ætlað að vera
fylgibréf með nokkrum góðum mynd-
um, sem nýlega voru teknar á heimili
þeirra hjóna.
Fyrsta stórviðurkenningin, sem
Haraldur hlaut á erlendum vcttvangi,
voru Mendelsohn-verðlaunin, er hann
fékk á námsárum sinum í Þýskalandi.
'Hann mætti fyrir íslands hönd á
Norðurlandahljómleikum, sem Alex-
andra Bretadrottning gekkst fyrir i
London 1923, og víða liefir hann
komið fram og þau hjónin bæði á
tónlistarþingum. En um það vill Har-
aldur sem minnst tala, eins og allt
það, sein er honum til lofs. Mér er
nær að halda, að ef honum hefði
einhvern tíma tekist illa upp á hljóm-
leikum, væri hann fáanlegri til að
minnast á þiað. En honum tekst aldrei
illa upp. Ásköpuð gáfa og takmarka-
laus þjálfun ráða vafalaust mestu um
Úr anddyri hússins á Maglemosevej.
þetta, en nokkru ræður án efa
skaplyndi háns, glaðlyndið og jafn-
lyndið, sem jafnan einkenna hann
hvar sem hann fer. Og sama lýsingin
á vafalaust við um frú Dóru.
Þau eru hamingjusamar manneskj-
ur. Og Island stendur í meiri þakkar-
skuld við þau en flestir gera sér
grein fyrir. Með hljómleikum sínum
hér á landi og með „uppeldi“ sínu
á ungu íslensku tónlistarfólki liafa
þau glætt tónlistarsmekk íslendinga.
Með flutningi íslenskra tónsmíða cr-
lendis hafa þau kynnt þá hlið ís-
lenskrar menningar meðal þjóða, sem
varla vissu, að íslensk tónm^nning
var til. Og gert það á þann hátt, að
cigi verður á betra kosið.
Okkur sárnar stundum, að þessi
yndislegu hjón skuli starfa í öðru
landi. En ef til vill fór best sem fór.
Það er vafasamt, hvort þau liefðu
getað gert íslandi meira gagn í
iíeykjavík en þau hafa gert þar sem
þau eru.
Skúli Skúlason.
SKItÍTIN UMGERÐ.
Ridgeway hershöfðingjafrú túk ný-
lega þátt í veislu í París. Þar tókst
tjósmyndaranum að ná mynd af
henni — gegnum veiðihorn.
Um þessar mundir halda bréfdúfu-
félögin í París 100 ára afmæli. — Á
afmælisdaginn var 3.500 dúfum sleppt
frá Place du Trocadero í París, en
þaðan flugu þær hver heim til sín.
Hér sjást nokkrar úr hópnum fljúga
yfir líkneski Fochs marskálks, sem
er skammt frá Trocadero-torginu. —
nvuiv jc.it r ALiLiHitiKI.
Unga stúlkan á myndinni er eins og
heysáta á milli tveggja asna og veit
ekki hvorn hún á að kjósa. Því að
þeir eru báðir jafn fallegir þessir
smávöxnu asnar frá Ceylon.