Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1952, Qupperneq 15

Fálkinn - 12.12.1952, Qupperneq 15
JÓLABLAÐ FÁLKANS 1952 ^*^*^*^*^*^*^*^^^*^*^*^*^*^*^*^ H ferðarbyrjun norður í land haustið 1932, er hann hélt af stað úr Reykja- dk á 4. cyl. Chevrolet, daginn eftir „stólfótabardagann" við Templara- húsið, eða nánar tiltekið 11. nóv. Hann hafði komið að norðan tveim ilögum áður og lék þá allt i lyndi. En nóttina áður en haldið var af stað norður hafði hellirignt, svo að allar ar i Kjós og Hvalfirði, sem þá voru nbrúaðar, urðu illfœrar eða ófærar. Þetta var annað árið sem ekið var fyrir Hvalfjarðarbotn, og brýr hvergi komnar nema á Brynjudalsá og Botnsá. En árnar voru ekki einu tor- færurnar. Víða vorti skriðuhlaup yfir veginn og annars staðar kafhlaup. Einu sinni bilaði „tjakkurinn" þegar verið var að nota hann til að koma bílnum uppúr, stundum voru júffertur fengnar að láni, auk manna, til að koma bifreiðinni uppúr. — Þeir voru þrír saman í bílnum, félagarnir, og höfðu nokkurn varning meðferðis, en fljótlega var séð að nógu erfitt mundi að komast áfram flutningslaus, svo að farmurinn var seldur uppi i Hvalfirði, upp á, væntanlegt samþykki eigenda. Þar á meðal var sykur, sem vitanlega hefði eyðilagst ef hann hefði verið skilinn eftir við veginn. Ofsaveður og rigning var lengst af tímanum en hitt var þó verra live vegirnir liöfðu spillst. Má taka það til marks að þeir félagar voru fjóra daga að komast upp að Grund í Skorradal. Aðra nótt ferðarinnar gistu þeir á Þyrli, þriðju á Ferstiklu á Ilvalfjarðarströnd og fjórðu á Grund. — Guðmundur man hvert atvik ferð- arinnar iið fyrir iið og lýsir þeim skemmtilega og fjörlega eins og hon- um er tamt, og væri freistandi að rekja þá sögu hér, en rúmið leyfir það ekki. — En eftir að hafa heyrt liana má til sanns vegar færa, það sem Guðmundur segir í sögulokin: Það getur verið auðveldara að kom- ast yfir hálendið um hávetur en upp í Skorradal að haustlagi. Vitanlega reynir oft á þolinmæði og þrautseigju i vetrarferðum, jafnvel þó að snjóbíllinn sé kynjatæki og all- ur útbúnaður sé i fyllsta lagi. En Guðmundi hefir aldrei miðað jafn lítið áfram í vetrarferðum sínum og honum gerði í áðurnefndri ferð sinni upp í Skorradal. Hvort sem það er bifreið, liestar eða fæturnir, sem treyst er á i ferða- lögum varðar undirbúningurinn sjálfur mestu máli. Og vafalaust liefir það orðið áffarásælast í öllum ferðum Guðmundar að hann vandaði jafnan vel til undirbúningsins. Og svo er liann gæddur því skapi, að hann tekur mótlætinu með þolinmæði ef það kemur og lítur björtum augum á hlutina. Það er prédikað fyrir ferða- fólki að gott skap sé ekki siður nauð- synlegt í ferðalag en nestið, skórnir og hlífðarfötin, og reynslan sannar að sú prédikun er sist óþörf. En nú skal vikið að aðalefninu og fer hér á eftir frásögn Sigurðar Heigasonar af vetrarferðinni norður: Ferðalag þvert yfir landið með snjóbílnum. Talsverður undirbúningur var vi'ð- hafður fyrir ferðina og öfluðum við okkur allra nauðsynlegra hluta i ferðalag sem þetta, um hávetur. Næg- ar matarbirgðir voru hafðar með, og ])að þótt við hefðum orðið að dveljast allt að viku til tíu dögum einangr- aðir í óbyggðunum. Þá höfðum við einnig með okkur svefnpoka, skiði og skíðasleða til dráttar ef til þess kæmi að við þyrftum að yfirgefa bíl- inn einhverra hluta vegna. I bílnum var einnig áttaviti, hæðarmæiir og loftvog. Þá má geta þéss að snjóbillinn hefir talstöð og getur haft samband við Gufunes, Hornafjörð og Hrútafjörð. Því miður reyndist talstöðin okkar ekki óbrigðul. Oft var erfitt að ná sambandi og má geta þess að við náðum aðeins sambandi við Gufu- nes, aldrei við hinar stöðvarnar. Yið Gufunes náðist aðeins samband um það bil í einni af hverjum 3 eða 4 tiiraunum sem gerð var til að ná sambandi við stöðina. I ferðinni tóku þátt þessir menn: Sigurður Helgason, Guðmundur Jónas- son, Árni Oddsson og Magnús Jó- hannsson. Guðmundur var liinn reyndi ferðamaður og snjóbílsstjóri, Magnús er útvarpsvirki og kvikmynda- tökumaður, og hafði hann tveim hlutverkum að gegna aðallega. Farið var frá Lögbergi árla dags 28. febrúar. Veður var liið ákjósan- legasta alian þann dag. Farið var sem leið liggur frá Lækjarbotnum um Mosfellsheiði norðan Iíárastaða og sunnan Ármannsfells. Öxará rann öll ofan á ís og þótti okkur heldur byrja iila því búast mátti við að fleiri ár og vötn yrðu erfið viðureignar. Frá Bolabási var lialdið sunnan Skjaldbreiðar og sem leið liggur sunnan Hlöðufells og alla leið að sæluhúsi Ferðafélags íslands við Hagavatn. Á þeirri leið urðu nokkr- ar tafir og þá sérstaklega rétt áður en komið var að Hagavatni. Tafir þessar orsökuðust af bleytu og krapi sem var erfitt viðureignar og gjalda varð varhug við. Frá Hagavatni var haklið laust eftir hádegi norður, vestan til við austasta hnjúk Jarlhettna, og þaðan að Hvítár- vatni. Er nálgaðist Hvítárvatn varð Ijóst að þar var mikið krap og lentum við i nokkrum töfum við ár og læki er runnu ofan á á þeirri leið. Var ætlunin að keyra beint yfir Hvitár- vatn en vegna krapsins urðtmi við að fara yfir brúna á Hvítá. Þaðan var haldið að sæluhúsi Ferðafélags- ins við Hvítárnes, og virtist állt vera þar í góðu lagi. Veður þennan dag var hið besta, heiðríkt og logn að miklu leyti. Er komið var i Hvítárnes hvessti snögglega af norðri og fylgdi því mikill skafrenningur, sem orsak- aði talsverða blindu. Frá Hvítárvatni var haldið að Hveravöllum og gekk sú ferð vel að því undantekriu að erfiðleikar voru áframltaldandi vegna kraps og bleytu. Sömuleiðis var ekki hægt að fara hratt yfir vegna skafbylsins, sem skall á okkur í Iívítárnesi. Er kontið var að Hveravöllum um kl. 6.30 var tekið að dimma og eins og áður segir harður skafbylur á. Að- komán þar var góð að undanteknu þvi að enginn hiti var i húsinu, eða réttara sagt mjög takmarkaður hiti. Athuguðum við af hverju þetta staf- aði og gátum lítillega lagfært það um kvöldið. Gistum við á Hveravöllum þá nótt og höfðum þar viðstöðu allan næsta dag vegna snjónmggu sem gerði það að verkum að útsýni var aðeins 20—30 metrar. Vegna reynslu okkar af bleytu og krapi fyrri dag- inn þótti okkur ekki ráðlegt að halda áfram undir slíkum kringumstæðum. Þann dag notuðum við til þess að hreinsa ofninn i vatnskassanum úti, en á ofninn hafði sest liveraleðja, sem einangraði hann algerlega þann- ig að vatnið í kerfinu liitnaði svo að segja ekki neitt. Má gera ráð fyrir að frosið hefði á kerfinu ef við hefð- um ekki komið á þessum tíma. Fórum við litillega á skiði um nágrennið þennan dag þar sem fyrirsjáanlegt var að ekki yrði lialdið áfram. 1. mars rann upp með norðan og norðaustan stinningskalda og tals- verðum skafbyl, en heiðríkt var. Var afráðið að halda áfram þrátt fyrir talsverða blindu af völdum skaf- renningsins, og þá farið sem leið liggur austur á bóginn og tekin stefna á Sátu sem er norðan til i Hofsjökli. Allar ár og lækir á þeirri leið voru á ís og urðu engar tafir af þeim sök- um. Hins vegar virtist okkur snjólítið víða og melir víða upp úr strax og komist var austur fyrir Blöndu. Þegar á jökulinn kom var þar talsvert meiri skafrenningur en niðri á jafnsléttu og íór svo að við urðum að fara niður af jöklinum, þó ætlun okkar hafi verið að fara lengri leið þar uppi. Veður- hæðin var meiri á jöklinum, en hins vegar færi mjög gott, slétt yfirleitt og hefðum getað náð þar töluvert mikl- ura liraða ef ekki hefði verið skaf- renningur. Á jöklinum komumst við mest í um 12 hundruð metra hæð. Þegar niður á jafnsléttu kom var gott veður, og hélst það þar til við konmm að Laugarfelli í sæluliús Ferðafélags Akureyringa. Er það prýðilegt hús, nýlegt og vistlegt, en ekki hefir enn verið lagt hit'akerfi i liúsið, sem vænt- anlega verður þó gert þar sem heitir liverir eru við bæjardyrnar. Ferðin frá Hveravöllum að Laugar- felli hafði tekið okkur um 5 klukku- stundir. En í Laugarfell kom versn- aði veðrið aftur og gerði norðaustan skafrenning sem byrgði mjög útsýni og hlaut að tefja för okkar. Afráðið var þó að halda norður á bóginn og freista að komast lil byggða þann Hvítárvellir. í miðri baksýn sést í Skriðjökulinn niður í Hvítárvatn og skriðufell.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.