Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1952, Side 37

Fálkinn - 12.12.1952, Side 37
JÓLABLAÐ FÁLKANS 1952 33 GABRIELE d’ANNUNZIO: FJársjiódiir fátæMim^aima INU SINNI voru, ég man ekki í hvaða landi, fátæk, gömul hjón. Og þau voru svo fátæk að þau áttu ekki neitt, nei, ekki agnarögn. Þau áttu engan mat til að láta í búrið, og ekkert búr til að láta mat í. — Þau áttu ekkert hús til að hafa búr í, og ekki heldur lóð- arblett að byggja hús á. Ef þau hefðu átt hús hefðu þau getað átt hús. Og ef þau hefðu átt hús mundi þau vafa- laust hafa fundið matarbita þar, — þótt ekki væri nema brauð- skorþa. En með því að þau áttu hvorki lóð, hús, búr, lé brauð- bita voru þau verulega fátæk. En þau kvörtuðu minna yfir brauðleysinu en húsnæðisleysinu. Brauðbita gaf fólk' þeim, og stundum eitthvað ofan á það, meira að segja stundum sopa af víni, þegar heppnin var með. En þau hefðu frekar kosið að vera sársvöng ef þau hefðu bara átt hús, hús sem hægt væri að ilja upp með þurrum greinum, og sitja svo við eldinn og tala saman. Það besta í heiminum eru fjór- ir veggir, sem maður getur átt heimili á milli. Án fjögurra veggja er manneskjan flökkukind. Eitt dapurlegt jólakvöld leið þeim verr en nokkurn tíma áður. En kvöldið var dapurlegt hjá þeim einum; allir aðrir höfðu eld á arninum til að ilja á sér fæt- urna. Þau ráfuðu kveinandi fram þjóðveginn, en þá mættu þau ketti sem mjálmaði vesaldarlegá. Þetta var afar aumingjalegur köttur; engu beisnari en gömlu hjónin, því að hann var ekki skaddaður. Hefði hann verið sæmilega í hárum mundi honum hafa liðið miklu betur. Og ef hón- um hefði liðið betur mundi bjór- inn ekki hafa verið svona teygð- ur á löppunum á honum. Og ef það hefði verið mundi kötturinn Goya hirt — vel snyrt Hið besta er ekki of gott In Paris. London. New York zesomen r/fooje Rosc Lotion } GOYA LTD. 161 NEW BOND STREET, LONDON W. I. % % hafa getað veitt rottur og þá hefði hann ekki verið svona magur. En af því að það var varla hár eftir á honum, en aðeins skininn bjórinn, var kettinum sannarlega vorkunn. — Fátæklingar eru góð- ir og hjálpa hverjir öðrum inn- byrðis. Þess vegna tóku veslings hjónin köttinn upp, en datt ekki í hug að éta hann; þau gáfu hon- um hins vegar fleskbita sem ein- hver góð sál hafði gefið þeim. Þegar kötturinn hafði étið fleskið fylgdi hann fátæku hjónunum í gamlan, yfirgefinn kofa. Þar voru tveir kollustólar og hlóðir, sem sáust snöggvast er Ijósrák frá tunglinu féll á þær — svo hurfu þær. Kötturinn hvarf um leið og gömlu hjónin sátu eft- ir yfir tómum hlóðunum. — Æ, sögðu þau, — ef við hefðum nú svolitla hlýju! Það er svo kalt. Og það væri svo gam- an að ilja sér dálítið og fara að segja ævintýri. En þarna var enginn eldur á arni, því að þau -voru svo fátæk — svo bláfátæk. Allt í einu kveiknaði í tveim- ur kolamolum innst á hlóðunum, og þeir glóðu og urðu eins og gull. Og gamli maðurinn neri saman höndunum og sagði við konuna sína: — Finnurðu þennan yndislega hita? Og hún teygði hendurnar móti eldinum. — Blástu í eldinn, þá blossar hann upp. — Nei, svaraði hann, — þá brennur hann svo fljótt út. Svo fóru þau að tala um gamla daga og voru áhyggjulaus, því að þau lífguðust við hitann. Fátæklingarnir þurfa lítið til að gleðjast, og þeir eru sælir. Hjónin gíöddust af hjarta yfir þessari góðu gjöf Jesúbamsins. . Þau sátu alla nóttina og hjöl- uðu og hituðu sér. Þau voru viss um að framvegis mundu þau njóta verndar Jesú, því að kola- molarnir lýstu eins og stjörnur. Og þegar dagaði sáu þau kött- inn sitja lengst inni í hlóðunum. Hann starði á þau. Og það var ekkert sem hafði hlýjað þeim um nóttina, annað en bjarminn úr þessum augum. Mjög handhœgur. Ovidjafnanlegúr fyrir yöar dyrmœtu silfurmuni 38(1) Aumi eiginmaðurinn! Mr. John Giordavo hafði stungið upp á því við konuna sína, að hún færi í skemmtiferð á skipi frá New York til Kaliforníu um Panamaskurð- inn, sér til hressingar og skemmt- unar. En þegar liún var komin út í rúmsjó varð hún þess vísari að skip- ið sem liún var á, var að fara til Ítalíu. Þegar hún kom heim til New York nokkrtun vikum seinna, var maðurinn horfinn! Grænlandshundurinn er til fleiri hluta nytsamlegur en að draga sleða. Hárið af honum er eins og besta ull, ef menn hafa hirðu á að safna þvi. Það gerði bóndi einn i Rana í Norður- Noregi, og á einu ári safnaði hann efni i ferna sokka af Grænlandshund- inum sínum! FÁLKINN - VIKTJBLAÐ MEÐ MYNDUM - Afgreiðsla: Bankastræti 3, Reykjavík. Opin kl. 10-12 og 1-6. Blaðið kemur út á föstudögum. Áskriftir greiðist fyrirfram. Ritstjóri: Skúli Skúlason. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested. - IIERBERTSprent.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.