Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1952, Blaðsíða 39

Fálkinn - 12.12.1952, Blaðsíða 39
JÓLABLAÐ FÁLKANS 1952 **œ*^*œ*^*^*»*«*»*£X*£**œ*^*œ*»<*tf 35 vinna. Nú vissi hann hvað hann ætlaði sér. Hann byrjaði að læra iæknis- fræði daginn sem hann varð þrí- tugur og svo liðu sjö löng ár, sem hann telur sjálfur þau erfiðustu á ævinni. Það var góðri heilsu hans að þakka að hann gat lok- ið náminu. En jafnframt náminu hélt hann guðfræðifyrirlestra á háskólanum og prédikaði í St. Nicolaikirkjunni. Skömmu eftir að hann tók læknaprófið kvæntist hann Hel- en Bresslau, dóttur kunns sagn- fræðings i Strassbourg. Hún hafði verið einkaritari hans og hjálpað honum með ferðaundir- búninginn. Hún var hjúkrunar- kona og það kom sér vel síðar. Hann hafði afráðið að reisa sjúkrahús í Afriku og peningun- um til þess safnaði hann með hljómleikahaldi og sölu rita sinna, líka fékk hann fjárstyrk hjá söfn- uðum Elsass. Á föstudaginn langa 1913 lögðu þau hjónin af stað til Lambarene við Ogowefljót í frönsku Mið-Af- ríku — þar átti stöð hans að verða. Þar ætlaði hann að hefja baráttu sína gegn holdsveiki, svefnsýki, mýraköldu, sárasótt og öðrum sjúkdómum, sem voru meinvættir leifanna af svertingja- stofni þeim, sem þarna bjó áður en þrælasalan og brennivínið kom til sögunnar. Hvernig var þessi Afríka, sem þau hjónin voru komin í? Þegar þau sigldu upp Ogowefljótið virt- ist þeim það paradís. En það var paradis sníkjudýranna. Maur- inn át allt, gluggatjöldin jafnt sem gólfborðin. Moskítóflugurnar gerðu hvert skref hættulegt. Rotturnar átu upp rísgrjónin þeirra. Óargadýrin rifu í sig geit- urnar, sauðféð og hænsnin. Og allt lífrænt úldnaði í heitu raka- loftinu. Schweitzer og kona hans urðu að berjast við háskalega örðug- leika. Sjúkrahúsið, sem hann hafði safnað fé til og átti að vera fullgert er þau kæmu, sást hvergi — það var ekki byrjað á því. Varð Schweitzer að gera sér sjúkra- stofu í gömlu hænsnahúsi, glugga- lausu með götum á þakinu og skítugu. Svertingjarnir komu með sjúklinga í þennan ,,spítala“ úr þorpum sem voru 300 km. burtu, til að fá hjálp hjá „hinum mikla Oganga — lyfjamannin- um“. Viðtalstíminn byrjaði kl. 8^ á morgnana. Túlkurinn Jósef, galo-svertingi sem áður hafði verið kokkur, hjálpaði Schweit- zer með sjúklingana, en sem gam- all kokkur notaði hann eldhús- mál um sjúklingana. „Þessum manni er illt í hægra bóg“, eða „þessari er illt í vinstri kótelett- unni“. Schweitzer hafði ósköpin öll að gera. Sjúklingunum fór sífjölg- andi. Varð að útvega þeim húsa- skjól í pálmalaufskálum. Hann varð að fæða þá og sýna mikla þolinmæði og varúð gagnvart þessum hjátrúarfullu aumingj- um, sem ekki þekktu neinar heil- brigðisreglur. Fyrstu níu mánuð- ina tók hann á móti tvö þúsund sjúklingum. Eina hvíld hans va^ að spila á kvöldin á hljóðfæri sem Bach- félagið í París hafði gefið hon- um. Þarna í frumskógunum lék hann tónverk Bachs. Þegar fyrri heimsstyrjöldin hafði staðið í þrjú ár fréttist það til Lambarene að tíu hvítir menn, sem þar höfðu dvalist, væru failn- ir. Þá sagði einn gamli sverting- inn: ,,Æ, eru þeir búnir að drepa svona marga? Hvers vegna reyna ekki kynkvíslirnar að semja?“ Sá sami hallmælti Evrópumönnum fyrir grimmd. Stríðið væri ekk- ert nema vitfirringslegt grimmd- aræði úr því að þeir föllnu væru ekki étnir! Meðan þessu fór fram braut Schweitzer heilann um ráðgátur lífsins og um tortímingu siðmenn- ingarinnar. Hann fór að hugsa um að skrifa mikið rit um menn- ingarheimspeki og gera upp reikninga mannkynsins. Hann byrjaði á þessu verki á baklaus- um stól í tréskúr suður í Lamber- ene. Skrifaði tvo tíma á dag og undir eins og hver örk var búin hengdi hann hana á snúru undir loftinu til að bjarga henni frá maurnum. Árið 1917 varð hann að hætta um sinn. Stríðið var komið suður í miðja Afríku, og nú fór að kvis- ast að hann og konan hans væru njósnarar. Þau voru flutt til Bordeaux og þaðan í fangabúðir fyrir útlendinga suður í Pyrenæa- fjöllum. Schweitzer reyndi að full- komna sig í vísindum og fræðast meira. 1 fangabúðunum var fjöldi manna, sem setið höfðu í háum stöðum. Hann talaði við þá og fræddist um bankamál, húsa- byggingar, kornrækt o. fl. og það kom honum að gagni síðar. Hann hélt við tónlistinni með því að æfa sig á nótnaborði, sem einn af föngunum bjó til. Hann var lasburða er hann var látinn laus 1918 og varð að láta gera á sér uppskurði. Hann fór til Strasbourg og gerðist læknir við borgarsjúkrahúsið og gerðist jafnframt aðstoðarprestur við St. Nicolaikirkju eins og forðum. Hann skrifaði stórt rit, saman- burð á trúbrögðum mannkynsins og líka skrifaði hann greinar um Afríkudvöl sína. Árið 1920 fékk Nathan Söder- blom erkibiskup hann til að koma til Svíþjóðar og halda fyrirlestra og orgelhljómleika. Or þessu urðu mikil ferðalög. Hann hætti lækn- is- og prestsstörfunum í Stras- bourg og var nú á sífelldum ferða- lögum og hélt fyrirlestra og kirkjuhljómleika. Árið 1923 hafði hann lokið við tvö fyrstu bindin af menningarheimspeki sinni, sem hann byrjaði á í Lambarene. Svo gekk hann á námskeið í fæð- ingarhjálp og tannlækningum og fór aftur til Afríku. önnur dvöl hans í Lambarene varð þrjú ár. Sjúkrahúsið var bágborið þegar hann kom aftur, en nú hafði hann fleiri aðstoðar- menn. Nú byggði hann nýtt sjúkrahús nokkru ofar við ána og notuðu til flutninganna vél- bát, sem sænskir velunnarar höfðu gefið honum. Þeir inn- fæddu voru ekki alltaf jafn hjálp- fúsir. Schweitzer segir þessa sögu af svertingja, sem þóttist of fínn til að vinna: „Um miðjan september byrja rigningarnar. Þá er um að gera að timbrið sé komið undir þak. — Á spítalanum er varla nokkur verkfær maður og þess vegna byrja ég að draga saman timbrið, með tveimur duglegum mönnum. Eg kem auga á svertingja, sem situr í hvítum fötum hjá sjúklingi, sem hann er að heimsækja. „Halló, kunningi!“ kalla ég „Viltu ekki hjálpa okkur?“ „Eg er menntamaður og legg mig ekki niður við að draga timbur,“ svaraði hann. „Þá geturðu verið ánægður,“ svaraði ég, „mig langaði líka til að verða menntamaður en tókst það ekki.“ Árið 1927 voru sjúklingarnir fluttir í nýja spítalann, en Schweitzer fer til Evrópu til að halda fyrirlestra í tvö ár. Árin 1929—32 fer hann aftur í Lam- barene. Næst fer hann til Evrópu til að taka við Goethe-verðlaunun- um á 100 ára dánardegi skáldsins i Frankfurt. Nú gat hann byggt sér hús í átthögum sínum í Elsass. Þetta hús varð samkomustaður allra Schweitzer-vina. 1937—38 var Schweitzer enn í Lambarene. En 12. jan. 1939 fer hann heimleiðis í hressingar- ferð, en til baka réttum mánuði síðar. Þegar hann var staddur í Biscayflóa á heimleið heyrði hann nfl. til Hitlers í útvarpinu og þótt- ist þá vita að ný styrjöld væri ekki langt undan. Og þá afréð hann að fara sem fyrst til Lam- barene aftur og undirbúa sjúkra- húsið undir striðsárin. öll ár síðari styrjaldarinnar stjórnaði hann sjúkrahúsinu. Það voru eigi síst Ameríkumenn og Svíar, sem hjálpuðu honum peningalega. Frh. á bls. 45. Ung svissnesk hjúkrunarkona, Trudi Bechsler vinnur tíu tíma á dag við að skipta um umbúðir á sárum 200 holdsveikra manna, sem hún hjúkrar í Lambarene.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.