Fálkinn - 12.06.1953, Qupperneq 10
10
FÁLKINN
Louis Pasteur
Framhaldsmyndasaga
fyrir unglinga.
5. Um það leyti sem Pasteur var
sem allra glaðastur yfir árangri sín-
um dó móðir lian's. Það gerðist svo
snögglega að hann komst ekki heim
til að vera við banabeð liennar. Nú
gat hann ekkert unnið um sinn. Hann
var úrvinda af sorg í margar vikur.
En gamli kennarinn hans hafði
heyrt um þessa efnafrœðitilraun hans,
sem hafði gengið svo vel. Hann heim-
sótti hann til að sjá hvernig hann
færi að þessu, og það varð stórvið-
burður í lífi hins unga manns.
Prófessorinn-faðmaði hann að sér og
sagði: „Barnið mitt, ég elska vísindin
svo mikið að ég fæ hjartslátt af að
sjá þetta.“ Hann öfundaðist alls ekki
ylfir þvi að Pasteur skyldi takast þetta
sem hann liafði verið að glíma við
sjálfur í þrjátíu ár.
ö. Skömmu síðar varð Pasteur
prófessor við háskólann í Strass-
bourg. Hann var aðeins 27 ára gam-
all. Hann var hoðinn í samkvæmi til
háskólarektorsins og varð þegar ást-
fanginn af dótur hans. Þau opinber-
uðu trúlofun sína hálfum mánuði
seinna og eftir fjóra mánuði giftust
])au.
Daginn sem Pasteur gifti sig fór
hann á rannsóknarstofuna og ætlaði
að verða þar dálitla stund, en varð
þá svo niðursokkinn í verkefnið að
liann gleymdi alveg giftingunni. Til
allrar hamingju fundu vinir hans
hann og fóru með hann heim og létu
Iiann hafa fataskipti og giftingin fór
fram.
Þetta varð farsælt hjónaband. Kona
Pasteurs hjálpaði honum og skildi
liann. Hún sætti sig við að hann fengi
sér aldrei frí, en ynni þvert á móti
ivöfalt írídagana, því að þá átti hann
sjálfur.
7. Síðar fékk Pasteur embætti i Lille.
— Hann var ágætur kennari og svo
áhugasamur að nemendurnir smituð-
ust af honum. Nú vildu margir læra
efnafræði og eðlisfræði, sem ekki
höfðu hugsað um það áður. Hann
heimtaði af nemendunum að þeir
hefðu inigmyndafhig en væru þolin-
móðir um leið. Hann fór með þeim
til að skoða verksmiðjur og fleira
og það vakti óhuga hjá þeirn.
Það var afdrifaríkt fyrir Pasteur
að hann settist að í Lille. Þar er rnikil
vínyrkja í kring. Og þess vegna fór
Pasteur að rannsaka hina mörgu
sjúkdóma, sem vinviðurinn varð fyrir
og gerðu aft mikið tjón.
8. í þá daga liéldu flestir vísinda-
menn að sýklarnir „kæmu af sjálfu
sér“. En Pasteur sannaði tilraunina
að þetta væri ekki rétt. Andstæðing-
ar hans höfðu beyg af honum og
sögðu: „Varið þið ykkur á honum
Pasteur, honum hefir aldrei skjátlast
ennþá!“ Pasteur var nefnilega svo
þolinmóður að hann sagði aldrei frá
tilraunum sinum fyrr en hann var
orðinn alveg viss um árangurinn.
Hann komst að raun ura að sýkin í
Vínviðnum var að kenna sýklum. Og
hann fann ennfremur, að ef vínið
var hitað upp í GO stig þá drápust
þessir sýklar, án þess að vínið
skemmdist. Með þessari aðferð, sem
var nöfnd „pasteurisering" forðaði
hann frönsku þjóðinni frá margra*
milljónatuga tjóni. (Framhald).
Vitið þér...?
að í Irlandi, Nýja Sjálandi, Ástra-
líu, Sviss, Kanada, Svíþjóð, ís-
landi, Finnlandi, Bandaríkjunum,
Argentínu, Noregi, Danmörku,
Bretlandi og Hollandi borðar fólk
meira næringargildi en í öllum
öðrum löndum heims, nfl. yfir
3000 hitaeiningar (kalóríur)?
í Grikklandi, Tyrklandi og ítaliu
er næringin 2400—2600 hitaeiningar,
en í Austurlöndum miklu lægra, en
þar deyr fólk oft úr hungri. í Burma
og Indlandi er næringargildið fyrir
neðan tvö þúsund liitaeiningar.
FULLKOMINN GLÆPUR.
Framhald af bls. 9.
liringt niður á stöð.“ Sá seki var enn-
þá snöktandi. Eg sneri mér að Perk-
ins og sagði: „Farðu niður og reyndu
að fá eitthvað meira npp úr náung-
anum en ég ætia að verða hér eftir
og athuga hvort ég get ekki fundið
eitthvað sem fyllt getur upp í eyð-
urnar, og kannske fundið mynd af
henni, svo hittumst við seinna.“
Perkins hafði ekkert við þetta að
athuga og því síður Kozlewski, því
hann vildi fá nafn sitt í blaðið og
það rétt skrifað.
Þegar ])eir voru farnir fór ég að
litast um í herberginu og kom auga
á skáp með opinni sluiffu og ég gekk
að henni og tók til að róta til í henni
og þegar ég var kominn niður í hana
miðja þá snerti hönd mín eitthvað
sem fékk hjartað i mér til að slá ör-
ara. Það var þykkur húnki af seðlum,
og ég sagði við sjálfan mig: „Francie,
sé þig í kvöld“ og leit síðan til dyr-
anna en sá engan og ætlaði að stinga
peningaseðlunum í vasann en leit um
leið í spegilinn fyrir ofan skápinn, og
sá það sem fékk hárin á höfði mér
til þess að rísa og kaldan gust fara
um mig allan. Kvenmaðurinn, sem
lá í rúminu og samkvæmt frásögn og
fleiru átti að vera dauð, tók að lireyf-
ast og núa háls sinn. Hún horfði til
mín og sá græna búnkann sem var
rétt að hverfa í vasa minn og á næstu
andrá mundi hún ná sér nægilega,
sem hún líka gerði og hrópaði „þjóf-
ur“.
Eg þrýsti peningunum i vasann og
íók þrjú skref í áttina til hennar, og
ég vorkenndi veslingnum niðri sem
var að gráta yfir engu án þess að
'vita það. Áður en ég vissi af var ég
Uúinn að kreppa höndum mínum um
íiáls hennar og herti að þangað til
þær voru hvítar af áreynslunni og
um leið datt mér i hug það sem Perk-
ins hafði minnst á um „Hinn full-
komna glæp“, og brosti og sagði: „Þú
færð ekki að öskra meira, góða, því
enginil skal standa í vegi fyrir ham-
ingju minni og að ég fái mina elsku-
legu Francie aftur. *
AfmœlísspÁ
fyrir vikuna 9. maí til 15. maí.
Laugardagur 9. maí. — í fjárhags-
legu tilliti mun velgengni þín vaxa
jafnt og þétt, og jafnframt munu þér
verða fengin ábyrgðarmeiri störf í
liendur. í ástamálum þínum mun
verða töluvert öldurót. — Hinir ó-
venjulegu atburðir sem kunna að
koma á daginn munu að jafnaði vera
meinlausir og munu leysast auðveld-
lega.
Sunnudagur 10. maí. — Þú virðist
hafa heppnina með þér, þegar um er
að ræðá starf sem liggur fyrir utan
liinn venjulega verkahring þinn. Það
er nú tími til þess kominn að þú losir
þig undan afskiptasemi annarra, því
þú munt ná bestum árangri með því
að ókveða sjálfur um áætlanir þínar.
Hvað ástamálin áhrærir munu þetta
verða skemmtilegir mánuðir.
Mánudagur 11. maí. — Á þessu ári
munu koma í Ijós nýir möguleikar
i fjórhagslegu tilliti. Þú munt fá tæki-
færi til þess að tryggja eignir þínar
betur en óður, og það mun koma að
góðu haldi um langa framtíð. Það
munu verða talsvert not fyrir hæfi-
leika þinn til þess að umgangast annað
t'ólk, og frami þinn mun að miklu
leyti vera undir því kominn að þú
skiljir að þú þarft að koma fram með
þolinmæði og starfsvilja.
Þriðjudagur 12. maí. — Miklar
breytingar eru á leiðinni. Verið get-
ur að þú flytjir búferlum eða fáir
annan starfa. Þessi breyting niun
verða til góðs i fjárhagslegu tilliti. Lif
þitt verður þrungið af starfsvilja og
það benda allar likur lil þess að helg-
ustu vonir þínar rætist á þessu ári.
Miðvikudagur 13. maí. — Þú munt
þurfa á allri þinni þekkingu og dugn-
aði að lialda ó þessu ári. Það munu
koma í ljós möguleikar til frama og
inntekta á næstum liverju því sviði,
sem þú leggur fyrir þig. Þér er betra
að vera heldur hlédrægur við hitt
kynið, sem þér hefir ekki enn tekist
að skilja fullkomlega. í nálægri fram-
tíð munt þú öðlast yfirskyn yfir hina
rómantisku hlið tilveru þinnar.
Fimmtudagur 14. maí. — Þú munt
hafa mikið að starfa næstu mánuði,
og þér mun takast að komast betur
áfram í starfsgrein þinni. Þú munt fá
fé til úrlausnar ábyrgðarmiklu verk-
efni. í ástarmálum biða þín betri
timar, en vegna hins tímafreka starfs
þíns, munt þú ekki hafa nægilegan
tíma til einkaafnota, að þér finnst.
Föstudagur 15. maí. — Sú starfs-
orka sem þú leggur i vinnu þina næstu
12 mánuðina, mun koma til með að
ha'fa áhrif næstu 5—6 árin, og ekki
hvað síst í fjárhagslegu tilliti. Einka-
líf þitt mun einkennast að meiri
reglusemi. Þér ber að leitast við að
lifa lífinu þannig á næstunni að þú
öðlist sem mesta hvíld. Taktu því
ekki á þínar herðar skyldur sam-
kvæmis- og félagslifsins.
Drekkið Cgils-öi
— Er hann ekki indæll. — Sjáðu:
hann vill að þið farið heim!
Drekkið^
COLA
'Spur) DHYKK