Fálkinn - 12.06.1953, Qupperneq 11
FÁLKINN
11
Treyja handa þeim minnstu
Efni: 120 gr. óbleijað bómullargarn
n. 8.
Prjónar: 2 prjónar nr. 2’/i og 2
prj. no. 3.
Prufan: 20 l..á prj. No. 3 verða 7 cm.
breiðar.
A ð f e r ð i n :
Bakið: Fitja upp 70 1. á prjóna no.
2V> og bregðið 4 prjóna (1 sl. 1 br.).
Fær á prjóna no. 3 og' prjóna slétt.
l>egar komnir eru 17 cm. eru 2 1.
felldar af i byrjun 2 fyrstu prjónanna
og svo 1 1. á hvoruni prjón þar til
34 1. eru eftir. Þá er fært á prjóna
no. 2Vi og brugðnir 4 prjónar. Fellt
af.
Böndin sem notuð eru til að binda
jakkann saman eru prjónuð þannig:
Á vinstri hlið baksins eru 4 I. teknar
upp 8’/Í! cm. uppi mælt frá neðri
brún. Prjónað á prjóna 2Vs. Brugðið
þar til bandið er 14 cm. Hægra niegin
eru prjónuð 2 bönd af sömu lengd,
annað 3% cm. en Iiitt 8V2 cm. mælt
neðan frá.
Hægri barmur. Fitja upp 00 1. á
prjóna no. 2Vi og bregð 4 prjóna.
Fær á prjóna no. 3 og prjóna slétt
nema 4 fyrstu lykkjurnar eru brugðn-
ar, mynda kánt. Þegar barmurinn er
14 cm. er tekið úr næst fyrir innan
burðgna kantinn á hverjum sléttum
prjóni en ekki á röngu prjóninum.
Þegar komnir eru 17 cm. er líka tek-
ið úr á röngunni. Fell af 2 1. j byrjun
fyrsta rönguprjónsins og svo 1 1. í
byrjun hvers rönguprjóns þar til eft-
ir eru 22 I. Far á prj. no. 2% og bregð
4 prjóna. Fell af. Prjóna band 8V2
cm. uppi í kantinum eins og það sem
er vinstra megin á bakinu.
Vinstri barmur. Hann er prjónaður
eins og sá hægri aðeins í öfugri röð.
Spegilmynd af hinum. Prjóna 2 bönd
i brugðna kantinn eins og á hægri
hlið baksins.
Ermin: Fitja upp 50 1. á prjóna no.
2Vi og bregðið 1 1. slétt og 1 1. brugðna.
Prjóna svo slétt á prjóna no. 3. Þegar
komnir. eru 0 cm. er aukið út í ann-
7c/7Z—51 *-
*^9cm—fr5um
r
nc
i
arri og næst siðustu lykkju og auk
þannig út á 6. hverjum prjón þar til
komnar eru 56 1. Þegar ermin er 15
cm. er tekið úr 2 1. í byrjun tveggja
'fyrstu prjónanna og svo 1 1. í byrjun
hvers prjóns þar til 18 1. eru eftir.
Bregð svo 4 prjóna með prjónum no.
2Vz. Fell af.
Frágangur: Legg prjónið milli
blautra dagblaða og breið þau svo
til þerris. Þá er saumað saman. Stöku
böndin á vinstri hlið á bakinu eiga
að snúa inn en þau 2 til hægri snúi
út á við.
Þegar búið er að sauma saman er
heklað 50 crn. band sem dregið er í
brugðninguna í hálsinum og smá-
skúfar festir á endana.
Húsráð
Vitið þér —
að til þess að geta geymt kókosmakka-
rónur, án 'þess að þær þorni og harðni,
má láta sneið af nýju hveitibrauði
ofan i kökukassann og skipta um
sneið öðru hvoru.
Rúskinnshanzka má hreinsa á eftir-
farandi liátt. Leysið góða sápuspæni
upp i volgu vatni og hellið einni skeið
af salmíaki saman við. Þvoið síðan
hanskana upp úr þessari upplausn,
og séu þeir mjög óhreinir verður að
endurtaka tilraunina. Skolið þá síðan
i hreinu sápuvatni, sem sé blandað
einni teskeið af salatolíu, það kemur
í veg fyrir að lianskarnir harðni. Snú-
ið röngunni út pg látið þá þorna hægt
(ekki i námunda við o'fn eða miðstöð).
Þegar þeir eru farnir að þorna, á að
nudda þá öðru hvoru, þangað til þeir
eru alveg þurrir.
Eins og við höfum allar orðið var-
ar við vill koma gljái aftan á pils
þegar mikið er setið í þeim. Gljáanum
er hægt að ná af á eftirfarandi hátt.
Steinkið blettinn með ediksvatni,
leggið rakan klút yfir og pressið vel.
En gætið þess vel að láta pilsið þorna
í gegn áður en þér notið það.
Vorhattarnir. — Nú fara þeir að
koma frá frönsku hattastofun-
um, hér eru tveir frá Achille.
Sá efri minnir á alpahúfu sem
brotin er upp að framan, fóðr-
uð með hvítu og hnapp úr filti
að ofan. Hinn er úr svörtu filt,
líkist útbreiddum vængjum og
skreyttur hvítum vængjum stíf-
uðum.
T iskum.yn.dir
ÓVENJULEG SAMSETNING. — Það
er mjög óalgengt að það fari saman
svokallað „prinsessusnið" og ermar
sniðnar út í eitt. Þessi sumarkápa frá
Ben Zuckermans tízkuhúsinu sam-
einar þetta tvennt á skemmtilegan
hátt. Þrátt fyrir hina víðu handvegu
er frakkinn fallega aðskorinn í
mittið.
SÍÐDEGISKJÓLL. — Síðdegiskjóll
sá, er mynd þessi sýnir, er afar lát-
laus og einfaldur. Hvít líning prýðir
hálsmálið, en það sem sérkennir
kjólinn er stykkið, sem lagt er yfir
mjaðmir og myndar slá í annarri
hliðinni.