Fálkinn - 24.09.1954, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
Blaðið ísafold
80
ísafoldarprentsmiðja.
Hinn 19. sept. s.l. átti ísafold —
elsta blaðið, sem nú er gefið út á ís-
landi — 80 ára afinæli. Það var Björn
Jónsson, sem siðar varð ráðherra, cr
stofnaði til þessarar blaðaútgáfu, en
hann var þá nýkominn heim frá námi.
Eins og kunnugt er var Björn einn
þróttmesti ritsnillingur og stjórnmála-
skörungur liér á landi um langt skeið
Björn Jónsson.
ognaut blaðið hinna miklu starfskrafta
hans lengi. Er hann lét af ritstjórn,
tóku þeir við um nokkurt skeið hvor
á eftir öðrum, Ólafur Rósinkrans og
Einar H. Kvaran.
Árið 1909 gerðist Ólafur Björnsson,
sonur Björns Jónssonar, rilstjóri ísa-
foldar. Hann liafði þá nýiega lokið
hagfræðinámi ytra og sneri sér að
blaðamennskunni af lífi og sál. Isa-
fold naut þó ekki starfskrafta hans
lengi, því að hann lést árið 1919, að-
eins 30 ára gamall.
Ólafur hafði stofnað Morgunblaðið
árið 1913 áSamt Vilhjálmi Finsen og
gerst einn af merkustu og mikilvirk-
ustu brautryðjendum blaðaútgáfu hér
á landi.
Eftir lát Ólafs Björnssonar gegndi
Vilhjálmur Finsen ritstjórnarstörfum
við Isafold, en hann var þá jafnframt
Ólgfur Björnsson.
ritstjóri Morgunhlaðsins. Síðar var
Einar Arnórsson ritstjóri blaðsins um
nokkurt skeið, en eftir það varð ísa-
fold vikuútgáfa af Morgunblaðinu og
liefir ritstjórn beggja blaðanna að
miklu leyti verið sameiginleg síðan.
Núverandi ritstjórar eru þeir Vaitýr
Stefánsson og Sigurður Bjarnason.
Árið 1930 var vikublaðið Vörður,
sem Sjálfstæðisflokkurinn gaf út,
sameinað ísafoldu, og heitir blaðið nú
ísafold og Vörður.
Ungfrú Emily, ensk stúlka, hefir
nýlega fengið 3.500 sterlingspunda
skaðabætur fyrir líkamsmeiðsli, og það
var unnustinn hennar sem varð að
borga peningana. Svo var mál með
vexti að. þau voru i bíltúr saman og
rákust á annan bíl og Emily meiddist
m. a. í andliti. Hefir tekist að laga
þessi meiðsli að öðru leyti en þvi að
smávöðvi við annað augað hefir lam-
ast, svo að Emily er alitaf að depla
auganu. Þetta liefir liaft í för með sér
ýmiss konar misskilning og stundum
óþægilegan. Til dæmis réðst kona með
offorsi á liana fyrir að liún liefði verið
að gefa manninum sínum undir fót-
inn með þvi að depla augunum. Og í
annað skipti varð Emily að reka ung-
um manni löðrung til að losna við
hann, því að hann hafði misskilið
augnadeplið. Nú verður Emily vesling-
urinn alltaf að ganga niðurlút til þess
að augað hættulega sjáist síður. Dóm-
arinn féllst á málstað hennar og unn-
ustinn varð að greiða skaðabæturnar.
Flokkur Akurnesinganna við heimkomuna frá Þýskalandi.
Ljósm.: Bjarnleifur Bjarnleifsson.
Murnesingor hðini heim iir heppnisför um Þýshaland
Knattspyrnumenn frá Akranesi eru
nýkomnir lieim úr keppnisför frá
Þýskalandi. Léku þeir þar alls fjóra
leiki við mjög sterk iið og stóðu sig
með mestu prýði, þótt þeir töpuðu öll-
um leikjunum nema einum, en það
varð jafntefiisleikur við Þýskalands-
meistarana.
Flokkurinn fór utan 28. ágúst, og
var Gísli Sigurbjörnsson aðalfaraT-
stjóri, en jafnframt voru í för með
knattspyrnumönnunum forvígismenn
knattspyrnumála á Akranesi. Þá var
Magnús Jónsson, markmaður úr
Fram, með í förinni.
Fyrsti leikurinn var háður við úr-
valslið Hamborgar og töpuðu Akur-
nesingar þeim leik með engu marki
gegn tveimur. Var röskur helmingur
liðs Hamborgar skipaður sömu mönn-
um og voru hér í vor í boði Akurnes-
inga. Annar leikurinn fór fram i
Hannover, en þar var Jeikið við styrkt
lið Þýskalandsmeistaranna, og lyktaði
leiknum með jafntefli, tvö mörk
gegn tveimur. Síðustu leikirnir voru
háðir í Braunsclvweig og Berlín, en
þar var leikið við úrvalslið frá Neðra
Saxlandi og úrvalslið frá Berlin. Þjóð-
verjar unnu báða leikina, þann fyrri
með sjö mörkum gegn þremur, en liinn
síðari með fimm mörkum gegn
þremur.
Það er ánægjulegt til þess að vita,
hve tíð gagnkvæm heimboð knatt-
spyrnumanna frá Vestur-Þýskalandi
og Islandi eru orðin, og vonandi verð-
ur áframhald á slikri samvinnu. Hér
heima hefir verið fylgst vel með
keppnisferð Akurnesinganna, þvi að
miklar vonir eru tengdar við hið góða
og vel þjálfaða knattspyrnulið þeirra,
sem hefir orðið þjóðinni til sóma á
margan liátt og lyftistöng fyrir ís-
lenska knattspyrnu. *
t
CHU TEH,
yfirhershöfðingi kínversku kommún-
istaherjanna. Nafn hans hefir mjög
borið á góma í sambandi við vaxandi
átök milli herja Chang Kai sheks og
Pekingstjórnarinnar við strendur
meginlandsins.
Hvað er bjartsýni?
iSir Winston Churchill sagði nýlega:
Ég liefi alltaf verið bjartsýnn. Þegar
flaskan er orðin hálftóm segi ég að
lnin sé hálf-full. — Leikarinn Hans
LOUIS MOUNTBATTEN,
núverandi. yfirmaður breska flotans
í Miðjarðarhafi. Það er nú almennt
talið í London, að jarlinn verði gerð-
ur að æðsta manni breska flotans
(First Sealord) innan skamms.
Albers segir að það sé bjartsýnn mað-
ur, sem ekki drepur á hreyflinum
þegar konan hans þarf að skreppa inn
í búð og segir: „Ég verð ekki nema
augnablik!“