Fálkinn - 24.09.1954, Side 6
6
FÁLKINN
FRAMHALDSGREIN.
t
KVENHETJAN
FRÁ ALASKA
HALDIÐ TIL
ÓSMEYKUR. — Það er alls ekki
sjaldgæft að íkornar verði mannelsk-
ir og sníki mat hjá fólki. Þessi sem
sést á myndinni er að minnsta kosti
ekki hræddur við börn og borðar með
bestu lyst úr lófanum á þeim.
ÓVENJULEGUR HOLLVÆTTUR.
Hópur íþróttamanna frá Norður-
Rhodesíu, sem fór á mót í Vancouver,
hafði sjaldgæfan hollvætt með sér í
ferðinni. Það er svokaliaður hálf-api
eða lemúr, og er ekki stærri en svo að
hægt er.að hafa hann í vasanum.
ÞJÓÐDANSAR. — í júlí komu d ans-
arar úr ýmsum löndum heims saman
á þjóðdansamót í Norður-Wales, og
settu svip á umhverfið'meðan á mót-
inu stóð. Þetta var talsvert mislitur
söfnuður og hér á myndinni sést
dansfólk frá Nígeríu, Belgíu og Frakk-
landi, vera að skiptast á eiginhandar-
ritum.
Ég náði í blikkdunk fullan af mold
neðan úr geymslunni undir gólfinu.
Þegar ég hafði komið trénu fyrir í
honum, stóð það traustum fótum. Ég
setti það upp á mitt borðið, og þav
skal það standa út árið.
Á veggjunum í skálanum hefi ég
komið fyrir sedrusviðar- og óðjurtar-
greinum. Það er hátíðarsvipur á öllu
og ég er sjálf i hátíðarskapi.
Saltað dádýrakjöt var í pottinum. Eg
hafði sett ýmislegt krydd út i, þvi
að þetta átti að vera kalkúninn minn.
Mig vantar Don til að skera kjötið og
Lloyd til að rétta diskana.
Ég vona, að þessi jól verði ekki
döpur fyrir Lloyd. Eg vona, að hann
reyni að gera sér það besta úr öllu og
reyni að komast í jólaskap, eins og ég.
Nú er hann sennilega kominn austur
aftur. Fólkið mitt hlýtur að hafa látið
liann koma til sín, strax og þau fengu
vitneskju um, að okkar Don væri sakn-
að. Sennilega hefir hann verið tregur
til þess að fara i fyrstu, en þegar öll
von var úti, hefir hann áreiðanlega
verið feginn að fara burtu frá Alaska.
Þetta verða fyrstu jólin hans án
foreldra sinna. Eg vona, að hann sakni
okkar ekki of mikið. Ég vil ekki, að
liann sé dapur á jóladaginn.
Ég vil, að Don sé ’lika hamingju-
samur. Eg vona, að guð láti fisk eða
fugl að minnsta kosti seðja hungur
lians um jólin. Við getum ekki verið
saman, en samt ættum við ekki að
þurfa að gefa okkur sorginni á vald.
Don hefir dug og greind til þess að
horfast i augu við hið ömurlega og
gera sér sem mest úr þvi mögulega. Ég
ætla mér líka að notfæra mér mína
möguleika til liins ýtrasta.
Lausamjöll liggur eins og hvit sæng
yfir öllu og mjúkar snjóflygsur svífa
til jarðar. Það er jólaveður, eins og
allir vilja hafa það.
Ég hekl þær venjur, sem ég hefi
ætíð haft i heiðri á hverjum jólum,
eftir því sem ég get. Það er búið að
leggja kvöldverðinn á borðið með því,
sem venjulegt er á aðfangadagskvöld.
Eg befi búið til lítinn sokk fyrir barn-
ið til þess að hengja upp og sett dá-
lítið af brjóstsykri og rúsínum i hann
— eins og hún sé þegar kominn í heim-
inn. Það er kveikt á ölhun lömpum,
og nú syng ég jólasálma og rifja upp
liðin ár.
Mér liður eiginlega ágætlega. Barnið
virðist hreyfa sig eðlilega og stækkar.
Eg hefi mat og húsaskjól, ljós og hita,
ýmislegt góðgæti og jólatré. Eg er inni
lega þakklát fyrir þetta allt — fyrir
allt, sem ég hefi þetta aðfangadags-
kvöld.
Ég sé í anda bernskuheimili mitt á
jóladagsmorgun, og ég minntist jól-
anna með eiginmanni mínum og syni.
Eg get hlegið með sjálfum mér að
þessum skemmtilegu endurminning-
STRANDAR.
uiri,. og ég syng sömu jólasálmana og
við vorum vön að syngja.
Og loks kemur myrkrið. Það er bú-
ið á lömpunum og ljósið smádvínar.
Aðfangadagskvöldið er senn á enda.
Þetta var á margan hátt yndislegt
aðfangadagskvöld og jóladagurinn
varð mér einnig ánægjulegur. Allan
morguninn stóð ég í matartilbúningi
og ég borðaði indæla máltið.
EFTIR hádegismatinn fór ég út að
viðra mig, en síðan settist ég niður
til að tefla skák. Það er hægri liöndin
á móti þeirri vinstri. Eftir hvern leik
flutti ég mig liinu megin við borðið.
Hægri höndin vann — ég hefi senni-
lega verið hliðhollari henni.
Þegar skákinni var lokið, settist ég
niður við borðið og fór að rifja upp
fyrir mér gamlar jólaminningar. Eg
vona, að um næstu jól verði fjölskyld-
an aftur sameinuð og ég fái að njóta
návista eiginmanns mins og Llóyds
litla — að ógleymdu ófædda barninu,
sem vonandi verður áugasteinn okkar
allra, þegar jól ljóma i skammdeginu
að ári.
Það snjóaði alla nóttina og það snjó-
ar ennþá, svo að nú eru konmir sex
dagar sífelldrar snjókomu. í morgun
lék ég mér í snjónum eins og ég væri
orðin ung á ný. Eg hnoðaði snjóbolta
og kastaði þeim upp í loftið. Síðan
gekk ég alla leið út að lindinni, þar
sem ég hafði náð í vatnið. Snjólagið
er orðið 10 fet á dýpt eða meira, og
ég náði engu vatni.
Ég liefi aldrei vitað jafn undarlegt
veðurfar. Það hætti allt í einu að snjóá
fyrir hádegi og glampandi sólskin var
í heilan klukkutíma. Þá kom þoka og
síðan krapaslydda, en nú er farið að
frjósa á ný.
Ég ætla að fara niður að ströndinni.
Eg skal. Guð hefir gefið mér gott færi,
og ég ætla að notfæra mér það.
Ég ætla að leggja af stað í býtið í
fyrramálið. Ákafinn er svo mikill, að
ég verð að halda aftur af mér fremur
en hitt. Annars veit ég ekki, hvers
vegna ég þarf að fará niður að strönd-
inni. Eg er svo önnum kafin við und-
irbúninginn undir ferðina, að ég má
ekki vera að þvi að lmgsa um það.
Ég veit ekki, hvað ég mun finna
niðri við ströndina, en ég veit, hvað
ég mun ekki finna. Engan mat, lítinn
eldivið, engan rúmfatnað, vondan
legubekk, sárafáa potla og pönnur,
enga vatnsþró og ekkert af hinum
ýmsu smáhlutum, sem ég hefi hér.
Samt verð ég að fara. Eg ætla að taka
með mér allt, sem ég get.
ÉG VANN sío mikið í dag, að ég fékk
verk í vinstri siðuna. Eg varð að hvíla
mig, þangað til liann fór. Eg er að búa
til stóra böggla, sem ég ætla að renna
niður snævi þakta brekkuna. Eg er
búin að' fylla alla poka, sem ég hefi
fundið, og sumt vef ég innan i segl-
dúk og vef sprengiþræði utan um.
Það var heppilegt, að ég fann ís-
skóna, sem karlmennirnir notuðu í
fyrra, þegar hálka var uppi í gljúfr-
inu. Annan hefi ég ólað við hækjuna,
en hinn er á öðrum fætinum. Eg hefi
farið, þrjár ferðir fram á brekkubrún-
ina og dregið nokkuð af farangrinum
þangað, svo að ég hafi minna að gera
á morgun.
Ég verð að hraða mér, svo að ég
komist af stað, áður en veðrið breyt-
ist til.hins verra. Eg er búin að nota
ósköpin öll af sprengiþræði til að vefja
utan um bögglana, en ég verð að eiga
nægilegt eftir til þess að hnýta þá
saman, áður en þeir leggja af stað í
ferðina niður til strandar. Siðan ætla
ég að binda sjálfa mig við lestina.
Annað hvort hlýtur ferðin að heppn-
ast eða hún getur orðið afdrifarík fyr-
ir mig. Þegar lagt hefir verið af stað,
verður ckki hægt að snúa við.
Ég er viss um, að það er komið fram
á miðja nótt. Nú hcfi ég líka gcngið
frá flestum bögglunum og ætla að sofa
dálitla sturnl, áður en ég legg af stað.
MORGUNINN, sem ég fór úr cfri skál-
anum, sprengdi ég nokkuð af dýna-
FÍLREKI f ZOO. — Nino Marcel er
18 ára og hefir alist upp í Hollywood
og gegnir því starfi að stjórna fílun-
um þar. Hann brá sér nýlega í
skemmtiferð til London og fór auð-
vitað í „Zoo“-dýragarðinn þar og at-
hugaði fílana. Þeir voru svo þægir við
hann að hann hefir leyft sér að bjóða
ungri stúlku með sér í „útreiðartúr"
á einum þeirra.