Fálkinn - 24.09.1954, Page 10
10
FÁLKINN
— Heldurðu að það sé komið nóg af
pipar í sósuna?
— Nei, þakka yður hjartanlega fyrir,
herra prófessor. Þér skuluð vera viss
um að við hugsum hlýtt til yðar þeg-
ar við notum hann.
Haltu bara fast í lampann — svo
skal ég snúa þér.
Starf Sameinuðu þjóðanna og
Bandaríkjanna gegn mýraköldunni í
Asíu er þegar farið að bera sýnilegan
árangur. Mauríce Pate, forstjóri
barnahjálþar Sameinuðu þjóðanna,
segir að í lok þess árs muni barátt-
an gegn mýraköldunni iiafa komið
125 milljónum manna að liði. Hann
telur vafalaust að liægt verði að út-
rýma veikinni alveg. Og lækningu á
þeim sem fá veikina hefir stórfarið
fram síðustu 30 árin. Er hægt að lækna
flesta að fullu og flugunni sem ber
veikina er liægt að útrýma.
Napoli Englands.
„Sjáið Harwich og deyið!“ er yfir-
skrift auglýsingar i blaði i Harwieh.
Og síðan er það upplýst að hvergi í
Englandi sé jafn ódýrt að komast í
jörðina og þar.
Nýi dansinn sem mest hefir breiðst
út í New York i vor og sumar heitir
„Kangaroo“, og er það nafnið á
ástralska pokadýrinu kengúru, sem
allir kannast við. Dansinn var fyrst
sýndur i ungmennafélagi • nokkru
í Brooklyn og hefir breiðst út
með meiri hraða en nokkur annar
dans, að undanteknum „charleston".
Það einkennilega við kengúru er að
dansendurnir snerta aldrei hvor ann-
an og að allir verða þeir að syngja
danslagið. Höfundurinn er lúðurblás-
ari sem heitir Jimmy Ross og iýsir
hann dansinum svo, að hann sé lik-
astur knattspyrnuleik, sem allir þátt-
taknedurnir syngi, eða þá indiána-
dansi. Hann segist hafa komið dansin-
um á framfæri vegna þess að hann hafi
álitið hann þarfan, „og nafnið valdi ég
svona, vegna þess að mér þykir vænt
um pokadýr,“ segir Jimmy Ross.
Breska rósaræktcndafélagið hefir
bannað innflutning á amerískri rós,
sem gengur undir nafninu „Litibet“,
en það var gælunafnið á Elisabeth
drottningu. Telur félagið nafn þetta
óviðeigandi á henni.
Maður nokkur sem vildi losna við
köttinn sinn tók hann með sér i bil
og sleppti honum 50 kílómetra ieið
frá heimilinu. En eftir tvo daga sat
kisa á þröskuldinum heima. Maður-
in gerði aðra tilraun og fór nú 100
kilómetra leið með köttinn, en samt
var hann kominn heim aftur eftir
nokkra daga. Næst ók hann óraleið og
fór síðan gangandi með köttinn langt
inn í skóg — svo langt að hann villtist
i skóginum og vissi engin betri ráð en
— að láta köttinn ráða ferðinni til
baka.
Vitið þér...?
að hátt hveitiverð veldur óbein-
línis stórfelldum uppblæstri í
mið- og vesturríkjum Bandaríkj-
anna?
Háa hveitiverðið veldur þvi að
bændurnir rækta hveiti ár eftir ár á
ökrum sínum í stað þess að hafa sáð-
skipti eða láta þá gróa upp á milli.
Hveitiræktin liefir gert moldina þurra
og lausa, og þetta ásamt þriggja ára
þurrkum liefir valdið því að moldar-
fok hefir eyðilagt sjö milljón hektara
af akurlendi. Til þess að varna þessu
eru djúpplægð varnarbelti i ökrunum.
Þau eru i bogum.
PÍNA, PUSI OG SIGGI SVARTI
1. mynd: „Ég vil vera trúður, segir Nilli. „Þá þarf. ég að hafa langt nef og
gera ýmislegt skemmtilegt.“ — 2. mynd: „Og ég vil vera linudansmær,“ segir
Pína, „og ganga með sólhlíf. Það hefi ég séð í raunverulegum sirkus.“ — 3.
mynd: „Þú getur ekki gengið á línu,“ segir Pusi. „Víst get ég það,“ segir Pína.
„Við skulum reyna,“ segir Nilli.“ — 4. mynd: „Hérna eru tvær stengur. Það
þarf að reka þær niður í jörðina,“ segir Nilli. „Pusi, komdu og hjálpaðu mér.“
— 5. mynd: „Og hérna er band, sem má strengja milli súlnanna. Nú getur Pína
reynt.“ — 6. mynd: „En ég hefi enga sólhlíf. Hlauptu lieim til hennar mömmu
þinnar og vittu, hvort hún á nokkra.“ — 7. mynd: „Hérna kem ég með sólhlif-
ina,“ segir Nilli. „Við megum nota hana.“ — 8. mynd: „Nú er allt í lagi. Reyndu
að ganga á línunni, Pína.“
að fjöldi barna í Bandaríkjunum
hefir týnt lífi í gömlum kæliskáp-
um, sem legið hafa í húsagörðum,
eftir að þeir urðu ónýtir?
Krakkarnir fara stundum inn í
þessa gömlu skápa þegar þau eru í
feluleik og skella á eftir sér hurðinni.
En þau geta ekki opnað innan frá og
kafna i skápunum. — Þetta varð til
þess að farið var að borga verðlaun
þvi fólki, sem skilaði gömlum kæli-
skápahurðum. En af þvi að séðir
„kaupsýslumenn“ fóru að nota sér
þetta, var það ráð tekið að safna skáp-
unum á öskuhauga og mölva þá með
jarðýtum.
að sum dýr hafa gaman af
myndum?
'Tilraunir liafa sýnt að hestar hafa
t. d. gaman af að skoða myndir af
hestum, en ekki hundum, og að frænd-
ur vorir aparnir reyna að grípa í
myndina, ef lnin er af apa með ávöxt.