Fálkinn - 13.01.1956, Page 4
4
FÁLKINN
on þó varð ég biðinni feginn eftir á.
Því að um miðja nótt veiktist einn
franski blaðamaðurinn skyndilega,
hann mun liafa fengið botnlangabólgu-
kast, og var sendur beina leið á spít-
aia. Það hefði ekki verið neitt gam-
an að sjá hann engjast sundur og sam-
an í flugvélinni cinlivers staðar úti
yfir hafi.
Til Azoreyja eru 1620 mílur enskar
og 8 tíma flug með vélinni sem við
flugum í, en hún var af gerðinni
„North Star“ og mjög svipuð Sky-
mastervélum að stærð og gerð. Ekki
sáum við land frá Frakklandsströnd
til Azoreyja nema norðvesturhornið á
Spáni svolitla stund. Á Azoreyjum
höfðum við tveggja tíma viðstöðu. —
Staðurinn, sem við lentum á þar, er
eins konar Keflavik. Bandaríkjamenn
hafa einnig gert flugvöllinn. Bréfin
sem við sendum frá þessum stað, cr
lieitir Lajes, voru frimerkt með banda-
riskum frimerkjum en ekki portú-
gölskum.
Annars var ég fyrir talsverðum von-
brigðum er ég kom til Azoreyja. Ég
hafði hugsað mér suðræna gróður-
dýrð þarna, en pálmarnir náðu ekki
nema í öxl. En landslagið var ein-
kennilega íslenzkt, enda eru eyjarnar
byggðar upp af eldgosum. Úr lofti sá
niaður fjölda af eldgígum.
Áformað hafði verið að fljúga til
Gander á Nevv Foundland, en vegna
liagstæðs veðurs gátum við sparað
okkur krókinn og farið beint til Hali-
fax. Lentum við á Shearwater-flug-
slöðinni og „náðum háttum“ á Nova
Scotian Hotel í borginni, þó að við
hefðum verið 19 tíma á ferð frá Paris.
ÞANN 17. mai s. 1. söfuðust blaða-
menn frá 13 þjóðum saman í París. —
NATO — Norður-Atlantshafsbandalag-
ið, hafði í samráði við utanríkis- og
landvarnaráðuneytið í Kanada böðið
þeim í kynnisför vestur um haf, eink-
um til að kynna þeim þann þátt, sem
Kanadamenn eiga í samstarfi NATO,
en hann er gildur, því að fráteknum
Bandaríkjunum er Kanada eina ríkið
í sambandinu, sem frá öndverðu hefir
verið veitandi en ekki þiggjandi í þeim
félagsskap. Og fyrsta tillagan um
stofnun hans kom frá Kanada.
Palais Chaillot hefir bækistöð NATO
i París. Þetta er mikil höll á Signu-
bökkum andspænis Eiffelturninum,
sem er handan við ána og heitir brúin
yfir Signu þarna á milli Jena-brú.
Höllin var upprunalega byggð sem
sýningarhöll og er um 80 ára gömul,
en fyrir 25 árum var henni breytt
mikið. Þarna er nú hið mikla skrif-
stofubákn NATO.
Þarna komum við saman í upplýs-
ingadeildinni að morgni 18. mai, blaða-
mannahópurinn sem átti að fara til
Kanada, annar sem skyldi fara til
Þýskalands og sá þriðji, en för hans
var heitið til Grikklands og Tyrklands,
Skógurinn er ein mesta tekjulind Kanada. Hér sést skógarhöggsmaður vera
að fella myndarlega furu vestur í.Klettafjöllum.
— Ljósmynd: National Film Board.
Til Azoreyja og Halifax.
í flughersdeildinni á Orlyflugvellin-
um i París var allur Kanadahópur-
inn kominn saman rétt fyrir miðnætti.
Nema Portúgalinn. Hann sneri við í
fússi í París, sagðist hvorki skilja
frönsku eða ensku og yrði að fá túlk
með sér ef hann ætti að fara. En ekki
var það látið eftir honum. Þarna voru
saman komnir þrír Frakkar, þrír Þjóð-
verjar, tveir ítalir og einn frá hverju
þessara landa: Brctlandi, Belgíu, Dan-
mörku, Hollandi, íslandi, Grikklandi,
Lúxemburg og Tyrklandi. En i Hali-
fax bættist i hópinn maður frá Banda-
rikjunum.
Við töfðumst á flugvellinum fram-
undir morgun, því að eitthvað var að
loftskeytum flugvélarinnar. Leiddist
okkur biðin þarna i flugskálanum um
nóttina, öllum nerna þeim sem höfðu
sölsað undir sig sófana í biðsalnum
og sváfu þar svefni liinna réttlátu,
Blaðamenn í boði
NATO fyrir utan
Palais Chaillot,
með Eiffelturninn í
baksýn.
en í lionum var Guðni Þórðarson
blaðamaður. Þetta voru liópar nr. 25
—27 í röðinni, þeirra, sem farið hafa
kynnisfarir til ýmissa NATO-landa
undanfarin ár.
Við vorum fyrst kynntir jieim far-
arstjóra okkar, sem var fulltrúi NATO,
— Paul Lieven, sem skýrði okkur frá
tilhögun ferðarinnar. Næst hlýddum
við á ávarp Giuseppe Cosmelli, að-
stoðar-aðalritara og loks voru flutt
tvö stutt erindi um NATO og starf-
semi þess. Allar ræður voru fluttar
bæði á ensku og frönsku. Loks kom
fyrirspurnartími og svöruðu tveir af
fulltrúum NATO spurningum blaða-
manna. Þá var blaðamönnum boðið til
hádegisverðar þarna í upplýsinga-
deildinni, en við Guðni kusum frem-
um að þiggja boð sendiherrahjónanna
okkar, sem búa þarna skammt frá, og
borðuðum við þar.
Síðdegis fórum við út fyrir borgina
til bækistöðva SHAPE, sem cr her-
málastöð NATO. Lítið sáum við þar
af vígbúnaði, en yfirmenn úr hernum
skýrðu frá starfseminni. Að endingu
var okkur sagt að vera ferðbúnir á
gistiliúsum okkar kl. 11 að kvöldi, þvi
að hugsast gæti að við legðum af stað
vestur yfir haf um lágnættið. — í ferð-
inni til SHAPE var leiðsögumaður i
okkar bifreið fslendingm* — Óttar
Þorgilsson. Hann er fastur starfsmað-
ur hjá NATO, og Lieven fararstjóri
lét mikið af dugnaði lians og kunnáttu,
er hann barst í tal siðar.
Kanada er næststærsta ríki í
heiini og næstmesta skógarland í
heiini. Aðeins Sovétsamveldið er
framar. En í Kanada býr meira en
tífallt færra fólk en í Sovjet-Rúss-
landi og í nágrannaríkinu Banda-
ríkjunum. Engin þjóð í heimi á
hlutfallslega eins mikinn náttúru-
auð og Kanadamenn.