Fálkinn - 13.01.1956, Page 9
FÁLKINN
9
hún hafði drukkið var líka farið
að sjá á henni.
— Við erum ein hérna, sagði
hún. — Étið mig . . . étið mig
hægt ...
JÓMFRÚ ODDY spillti öllu með
þvi að koma inn í stofuna í sömu
svifum. Hún horfði kringum sig
og hallaði undir flatt, tíl þess að
átta sig betur á því sem væri að
gerast. Það gat ekki farið fram-
hjá henni að eitthvað lá í loftinu.
Irene reyndi að breiða yfir
þetta. Hún sagði: — Bill var ein-
mitt að segja mér, að hann hefði
átt heima hérna í heilt ár núna.
Ég var að segja honum hve mér
fyndist hann viðfelldinn. Og
hann sagði mér að hann væri af
annarri stjörnu. Er það ekki
skrítið? Hugsið þér yður að mér
skuli falla við menn af öðrum
stjörnum?
— Er það satt? sagði jómfrú
Oddy. — Þökunni er að létta. Haf-
ið þið tekið eftir því?
— Vitanlega, hélt Irene áfram
— er hann ekki af annarri stjörnu.
Ég hefi þekkt hann of lengi til
þess að hann geti verið það. Og
hann er líka viðfeldnari en svo.
— Það er ekki gott að vita,
sagði jómfrú Oddy. — Hvernig
ætti maður að vita það. Við gæt-
um verið af annarri stjörnu, hvert
okkar sem er. Þetta geta ekki
verið eintómir karlmenn. Ætli
eitthvað af kvenfólki hafi ekki
slæðst með. Hvernig gætu þeir
annars ... ? Hafið þið nokkuð að
drekka?
Hún fór fram í eldhúsið án þess
að bíða eftir svari. Hún hélt
áfram að rausa þar: — Það verð-
ur dimmt í nótt!
Dyrnar að ganginum lukust
upp. Burgess, ungi lyfjafræðing-
urinn 'kom inn. Hann gekk slett-
ingslega.
— Það fer að verða dimmt úti,
sagði hann. — Get ég fengið í
staupinu? Hann hellti rommi og
vatni í glas. Meira af rommi en
vatni. Hann deplaði til mín aug-
unum. Eins og frakkur strákur
mundi hafa gert. — Maður verð-
ur að hafa úr sér hrollinn, sagði
hann.
Svo sperrti hann allt í einu upp
augun, eins og hann væri fyrst
nú að taka eftir Irene. Hann gekk
til hennar og tók handleggnum
um herðarnar á henni. Hann
glotti.
— Það þarf meira en áfengi til
að halda á þér hita, gullið mitt,
er það ekki?
— Gin dugir mér, svona fyrst
í stað, þökk fyrir.
Hún rétti fram tómt glasið, og
þegar hann leit við til að fylla
það, sá ég í augum hennar, að
mér hafði skjátlast er ég hélt að
hann væri of ungur handa henni.
— Jameson var að hringja,
sagði Burgess. — Hann sagði að
sér hefði seinkað. Kannske þeir
hafi uppgötvað að nokkrar mill-
jónir vanti í sjóðinn hjá honum
þegar þeir voru að telja í dag.
— Bill er af annarri stjörnu,
hélt Irene áfram.
— Ha, hann? Nei, það er ég,
sem er af annarri stjörnu. Komdu
með mér niður í herbergið mitt,
þá skal ég sýna þér stjörnubún-
inginn minn.
Irene skríkti. — Allt í lagi. Við
skulum þá koma.
— Hvað drekkur þú, Bill?
— Viskí.
— Þarna sérðu. Ég drekk
romm af því að ég er utan úr
himingeimnum. Og segðu að ég
hafi ekki varað þig við mér.
Hann tók í axlirnar á henni.
Svo fékk hann sér í glasið aftur.
Það lá vel á honum.
Jómfrú Oddy stóð í dyrunum.
— Var einhver að segja, að Jam-
eson mundi koma í seinna lagi?
— Já, hann var að hringja. Það
er kannske best að við frestum
borðhaldinu þangað til hann
kemur. Við getum haldið áfram
að drekka á meðan. Hvað má ég
bjóða þér?
Það var Irene, sem hann horfði
á. Hún rétti honum tóma glasið
sitt.
KLUKKAN varð sjö, og Jame-
son var ekki kominn enn. Klukk-
an hálfátta var Burgess orðinn
mikið svínkaður. Hann gerðist
frekur.
— Ég held að ég verði að ná í
nokkrar grammófónplötur. Við
þurfum hljómlist. Vill einhver
hjálpa mér? Hvað segir þú,
Irene? Þá get ég sýnt þér stjörnu-
búninginn minn um leið.
Hún strauk gljáandi kjólinn.
Nú var þetta sama augnaráð
komið aftur.
Hún riðaði dálítið áður en hún
komst út að dyrunum.
— Ef við erum ekki komin aft-
ur eftir hálftíma þurfið þið ekki
að gera leit að okkur. Þá erum
við flogin út í geiminn.
Við heyrðum þau ganga niður
stigann.
— Herra minn trúr, sagði jóm-
frú Oddy. — Haldið þér að hún
hafi verið orðin svolítið ... og
hann Jameson, að hann skuli
vera svona seinn. Það er síðan
þeir fóru að losa um þessi atóm ...
Ef til vill var það veðrið, sem
hún átti við. Það var aldrei hægt
að vita hvert jómfrú Oddy var
að fara.
— Burgess er langtum of ...
hann er mjög ungur ...
Irene hlaut að hafa dottið í
ganginum. Við heyrðum dynk, og
svo stundi einhver. Ég brosti í
kampinn. — Haldið þið bara
áfram, hugsaði ég með mér. —
Brjótið á ykkur lappirnar!
— Haldið þér kannske að við
ættum að ...
— Þér skuluð ekki kvíða
neinu, jómfrú Oddy. — Þau hafa
ekki drukkið svo mikið ...
EN eftir tíu mínútur fór mér að
verða um og ó. Þegar kortér var
liðið var ég orðinn órólegur. Við
heyrðum hvorki hljóð né stunu
að neðan. Ég stóð upp.
— Kannske ég ætti að fara og
líta eftir þeim . ..
— Já, fyrir alla muni. Það er
aldrei að vita, nema ... Og hann
Jameson, að vera svona seinn.
Ég tók stigann í tveimur skref-
um. Svo kom ég auga á Burgess.
Hann lá endilangur á grúfu fyrir
utan dyrnar hjá sér. Ég sneri
honum á bakið. Hann var með-
vitundarlaus. Ég gat athugað
hann betur seinna.
Herbergisdyrnar hans stóðu
opnar. Þar logaði ljós. Ég fór inn.
Irene lá á rúminu í gullna kjóln-
um, sem var í reglulegum felling-
um. Hún hlaut að vera allsgáð-
ari en ég hafði haldið.
— Ég vissi að þú mundir koma,
sagði hún æst. Kinnarnar voru
kafrjóðar og augun skær. — Ég
vissi að þú mundir koma.
Hún benti mér að koma nær.
— Komdu til mín.
Hún hafði ráðið þetta fyrir-
fram. Svo rétti hún út höndina
og slökkti ljósið í loftinu, en lítill
náttlampi logaði.
— Komdu, elskan mín.
Liturinn á kjólnum var þannig,
að hún virtist fljúga á gullnu skýi.
Ég lokaði hurðinni.
Þá vissi ég að ég varð að vera
þarna. Eins og hún sjálf. Þar var
engin leið til baka. Og bað var
engin hætta á að við yrðum ó-
náðuð. Jameson var ekki kominn.
Burgess var meðvitundarlaus.
Jómfrú Oddy mundi ekki þora að
fara niður ein.
Ég stóð við rúmið með hönd-
ina á ljóstenglinum.
Hún talaði hratt. Orðin komu
eins og þungur straumur.
— Ég þarfnast þín, Bill. Þú
getur heldur ekki lifað einn. Þú
getur ekki haldið áfram að hrinda
öðru fólki frá þér. Mér finnst að
þú sért hræddur við fólk ...
Ég kyssti hana. Svo slökkti ég
ljósið og teygði hendurnar fram
til hennar. Áður en ég snerti við
henni sagði hún: — Vertu ekki
að eyða tímanum í vindlinga, ekki
núna ...
Ég reyndi að rétta aðra hönd-
ina upp að andlitinu, en hún hélt
um þær báðar og dró mig nær.
Allt í einu fann ég að það var
eins og hún stirðnaði. Svo fór
hún að brjótast um. Hún reyndi
að hrópa, en vissi að enginn gat
lieyrt til hennar.
— Það eru ekki vindlingar,
hrópaði hún í angist og skelfingu.
— Það eru augun í þér ...!
giftast Vcbbic og Eddic ?
Það er vandfundið jafn vinsæll
fólk meðal áheyrcnda og stéttar-
systkina og þau Dehbie Reyn-
olds og Eddie Fislier, enda gerðu
blöðin sér mat úr trúlofunar-
fregninni þeirra i fyrra. Debbie
er fædd í E1 Paso í Texas, en Þar
var faðir hennar járnbrautar-
starfsmaður. Þau bjónin eru
besta fólk, gera litlar kröfur til
lifsins og eru blátt áfram. Sonur
þeirra, bróðir Debbie er 25 ára
vélvirki og kvæntur, og hefir
sest að i Burbank i Kaliforníu og
þangað er öll fjölskyldan komin
núna og Debbie unir sér svo vcl
heima, að bún befir ekki kært
sig um að eignast íbúð sjálf held-
ur fer hún daglega á milli Holly-
wood og Burbank ])ó að það sé
15 mílna leið. Henni var fyrst
veitt athygli er húri tók þátt í
fegurðarsamkeppni og siðan bef-
ir bún smábækkað í tigninni
jafnt og þétt.
Eddie Fisber fæddist fyrir 27
árum og er í miðið meðal sjö
systkina. Foreldrar bans áttu
heima í fátækrahverfi í Pbila-
delphía og seldi heimilisfaðirinn
grænmeti. Eddie er fallegur pilt-
ur með dökk augu, vinur vina
sinna, viðfelldinn i tali og segist
furða sig á hve miklum frama
liann hafi náð. En leiðin var löng
upp á frægðartindinn og margir
örðugir bjallar á leiðinni.
Debbie og Eddie trúlofuðust i
fyrrabaust og áformuðu ])á að
giftast í júní. En í april lenti þeim
i rifrildi i fyrsta sinn. Eddie
liorfði í augun á Debbie og sagði
henni að Þau yrðu að fresta brúð-
kaupinu, vegna þess að staða
bans leyfði honum ekki að giftast
að svo stöddu, en þau skyldu
beldur vera trúlofuð áfram.
Þetta kom eins og roiðarslag yfir
Debbie og liún fór að efast um
bvort Eddie elskaði leikstarfið
meira en bana sjálfa. Vinir bans
segja að liann mundi ekki bafa
hikað við að giftast, ef bann befði
aðeins átt fyrir sjálfum sér að
sjá, en liann vinnur fyrir fjöl-
skyldu sinni líka. Og nú biða
vinir Debbie og Eddie eftir svari
við spurningunni: Giftast þau eða
fer allt út um þúfur bjá þeim?