Fálkinn - 20.01.1956, Síða 2
2
FÁLKINN
HSPPDRÆTTl HEIMILSNNÆ
Rinso pvær áva/t
X-R 258:7-1225-55
og kostarySur minna
Þér getið náð dásamlegum árangri með
því að nota Rinso — raunverulegt sápuduft. —
Rinso er ekki aðeins ódýrasta þvottaduftið
heldur einnig það drýgsta og fer vel með
þvott og hendur.
Hið þykka, mjúka Rinso þvæli hreinsar vel
án þess að nudda þurfi þvottinn mikið, en
nuddið slítur þvottinum einna mest.
Best fyrir þvott og Irendur
,Svo er nefnt liappdrætti, sem stofn-
að var skömmu fyrir jól og er til
liúsa i Morgunblaðshúsinu í Aðal-
stræti C. Er þar ihin prýðil'egasta
sýning á happdrættismunum á tveim-
ur hæðum. Vinningar i þessu happ-
drætti eru 10 og er hverjum vinning
vel og skipulega komið fyrir í sér-
stökum básum eða afmörkuðum svæð-
um, þannig að mjög auðvelt er að
skapa sér glöggt yfirlit yfir einstaka
vinninga. ÖIl myndar þessi sýning
samræmda heild, og er þarna mikið
af mjög eigulegum og eftirsóttum lnis-
gögnum, gólfteppum, borðbúnaði,
heimilisvélum og heimilistækjum,
cnda mun verðmæti happdrættismun-
anna vera um 200 þúsund krónur.
Skal þeirra nú getið í fáum orðmn.
Sýning þessi er í Morgunblaðshús-
inu til Iiægri við „Vesturver". Þegar
gengið er inn úr aðaldyrunum verður
fyrst fyrir til liægri mjög stór og
vandaður radiogrammofónn — Ton-
band-Phone-Kombination. (Grundig).
Þetta er í senn, útvarpstæki, plötu-
spilari og upptökutæki, þannig gert
að taka má upp á segulbandið þar
sem tækið stendur, en líka má, með
mjög litilli fýrirhöfn losa upptöku-
tækið og fara með það sérslakt þangað
sem upptaka á að fara fram. Þetta
tæki er af nýjustu gerð og talið að
vera eitt hið fullkomnasta sem flutst
hefir hingað til lands. Þetta fagra og
góða tæki er einn vinningur.
Til vinstri við inngöngudyrnar er
borðbúnaður fyrir 12 manns, bæði
matar- og kaffiborð. Þar eru vandaðir
borðdúkar með pentudúkum, fallegt
og gott postulín, 36 vínglös og skeiðar,
gafflar og hnífar úr ryðfríu stáli af
mjög vand'aðri og fagurri gerð. Allur
þessi borðbúnaður er einn vinningur.
í öðrum bás til hægri eru eldhús-
vélar. Þarna er eldavél með tímastilli
og 4 eldhólfum af nýjustu gerð frá
Raftækjaverksmiðjunni h.f. í Hafnar-
firði, Kelvinator kæliskápur frá
Heklu h.f. Austurstræti 14, uppþvotta-
vél, Crosley frá Jolinson & Kaaber.
Sunbeam hrærivél og stálvaskur, alll
einn vinningur.
í þriðja básnum til hægri eru bað-
herbergisáhöld frá Helga Mágnússyni
& Co., s. s. stórt baðker, hand-
laug á fæti, salerni sambyggt, speg-
Framhald á bls. 14.