Fálkinn - 20.01.1956, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
Mesti glæpur ársins 1955:
Vdri 44 monns nð bono
Ungur Bandaríkjamaður kemur 25 dýnamitstöngum í samband við
vítisvél fyrir í farangri móður sinnar, áður en hún fer í fjölskyldu-
heimsókn flugleiðis. Síðan fylgir hann henni út á flugvöll ásamt
konu sinni og elsta syni. Þrjátíu og níu farþegar og áhöfn flugvélar-
innar — fimm manns — týna lífi í mesta fjöldamorði í sögu
Bandaríkjanna.
Hinn hái, dökkhærSi ungi niaður
stjanaði injög í kringum móður sína.
Hann bar farangur hennar að af-
greiðsluborði flugstöðvarinnar i Den-
ver og varð lienni úti um farmiða og
nauðsynleg skilríki. Ferðatöskurnar
lirjár vógu samtals 39 kíló, 17 kilóum
meira en flugfarþegar mega hafa með
sér endurgjaldslaust. Þegar frú Daisie
Iíing varð þess vísari, að hún yrði
að greiða 27 dollara fyrir yfirvigt á
farangrinum, sagði hún við son sinn:
„Sautján kiló — Iieldurðu, að ég 'hafi
not fyrir þetta allt?“ Og sonurinn,
John Graham, svaraði: „Já, mamma,
ég er viss um það.“ Frú King ætlaði
að heimsækja gifta dóttur sína i
Alaska og þurfti að hafa ýirisan vetr-
arfatnað meðferðis.
Að sögn Gloriu Graham, konu
Johns, lét frú King hann hafa 314
dollar og bað hann um að kaupa
þrjú líftryggingarskírteini út á hana
— eitt handa honum sjálfum, eitt
handa hálfsystur hans í Alaska og
eitt handa móðursystur hans i Miss-
ouri. í öllum flugstöðvum Ðandaríkj-
anna eru sjálfsalar, þar sem hægt
er að kaupa flugtryggingar að upp-
liæð frá C.250 dollurum upp í 02.500
dollara.
Flugvélin, sem frú King fór með,
kom frá Ohicago, og hafði hienni
seinkað um tíu mínútur. I Denver
þurfti að bíða eftir farþega, sem
kom of seint, svo að brottfarartim-
anum seinkaði um 12 minútur i við-
bót. Er frú King hafði kvatt hinn 23
ára gamla son sinn, 22 ára gömlu
tengdadóttur og IVi árs gamla sonar-
Daisic King, móðir Johns Graham.
son (annar 6 mánaða beið heima),
hélt vélin af stað til Portland í
Oregon.
Þegar lijónin og barnið höfðu
borðað hádegisverð á matstofu flug-
stöðvarinnar, ókti þau lieim á leið.
John hafði kvartað um vanlíðan og
varð bumbult af matnum. Fyrir utan
flugstöðvarbygginguna heyrðu þau
ávæning af því, að flugvél hefði hrap-
að og nokkru síðar kom fréttatil-
kynning í útvarpinu, þar sem sagt
var, að farþegaflugvél hefði hrapað
til jarðar 51 kílómeter fyrir norðan
Denver. Allir hefðu farist. Nöfnin
voru lesin upp. Þegar John heyrði
nafn móður sinnar, brast honum
kjarkurinn gersamlega.
Allt frá upphafi þeirrar rannsókn-
ar, sem gerð var vegna flugslyssins,
bcnti margt til þess, að sprenging
hefði orðið. Ymsir þóttust beinlínis
hafa séð flugvélina springa í tætlur,
þar sem hún var á flugi. Rannsókn-
arlögreglan og sérfræðingar í flug-
vélagerð unnu sleitulaust að því að
setja saman brak vélarinnar til þess
að fá sem fullkomnasta mynd af því,
hvernig skrokkurinn liefði liðast i
sundur.
Þegar þeirri rannsókn var lokið,
var Ijóst af öllu, að sprenging hefði
átt sér stað i farangursgeymslu aftar-
lega í vélinni, þar sem engar raf-
magnsleiðslur voru og ekki talin nein
sprengingarhætta. Rannsóknarlögregl-
an skar upp herör til þess að leita
hins sanna í málinu og fortið 100
manna var rannsökuð ýtarlega á mjög
stuttum tíma. Þrettán dögum eftir
slysið — nokkru áður en United
Air Lines hét 25.000 dollara verðlaun-
um — var John Graham handtekinn.
Þó að John væri ungur að árum,
var afbrotaferill hans samt orðinn
töluverður. Hann hafði meðal ann-
ars falsað ávísun upp á 4200 dollara,
lagt bifreið á járnbrautarspor og
fengið tryggingarféð greitt án þess að
vekja nokkurn grun, og loks valdið
sprengingu í veitingakrá, sem liann
rak, og hafði það einnig gefið honum
fé í aðra liönd. Hann hafði lifað of-
stopalifi hins óstýriláta æskumanns,
uns hann kvæntist fyrir þremur ár-
um, og ennþá fékkst hann til að gera
hvað sem var, fyrir peninga. Móðir
hans hafði borgað 2500 dollara upp
í ávisanafölsunina, en afganginn
borgaði hann að mestu sjálfur. Frú
King hafði líka greitt fyrstu útborgun
í húsi, sem hin ungu lijón keyptu, og
auk þess eignast krá þar sem heitar
pylsur og öl var selt, og eftirlátið
Jóhn rekstur hennar. En það var hon-
um ekki nóg. Hann vissi, að hún átti
100.000 krónur í banka.
Eftir yfirheyrslu fyrstu nóttina
undirritaði John Graliam játningu um
morðið á móður sinni og öðrum þeim,
sem i vélinni voru. í Colorado er 'hægt
að dæma til dauðarefsingar (i gas-
klefa) fyrir morð, en aðeins til 10
ára fangelsisvistar fyrir skemmdar-
verk.
Þegar Jolin var tveggja ára, missti
hann föður sinn. Móðir lians var þá
blásnauð, og Jolin var átta ár á barna-
heimili. En svo giftist móðir hans
aftur og tók hann til sin. John var
duglegur i skóla og frábærlega vel að
sér í eðlisfræði.
Hj.ónin komu of seint á hljómleik-
ana, sem voru byrjaðir þegar þau
konmst í sætin. — Hvað eru þcir að
spila? hvíslaði lnin.
— Níundu sinfóníu Reethovens,
hvíslaði liann.
— Þetta er allt þér að kenna, sagði
hún. — Nú höfum við misst af átta
númeruni.
John Graham, hinn 23 ára gamli
ólánsmaður.
Úr lögregluskýrslu:
„Hjónunum lenti saman i skömm-
um. Hann rigsaði út og um leið og
liann skellti lnirðinni, sagði liann
konunni að fara til lie....
Hún tók hann á orðinu og flutti
sig heim til móður sinnar.“
‘Mann leitaði — og fann
Ranier III, fursti í Monaco og ameríska leikkonan Grace Kelly hafa nýlega
opinberað trúlofun sína, svo sem kunnugt er af blaðafréttum. Áður en það
gerðist, hafði furstinn ferðast víða um í leit að konuefni, sem gæti fætt
honum erfingja að hinu rómantíska smáríki við Miðjarðarhafið. — Hér sést
furstinn í hópi amerískra hjúkrunarkvenna.