Fálkinn - 20.02.1959, Page 3
FÁLKINN
3
Fyrir enda veitingasalarins er stórt og rúmgott leiksvið.
Cido
siærsti vdtingasalur landsins
Tekið er til starfa liér í bænum
veitingaliúsið Lido, en í því er stærsti
veitingasalur á landinu, tekur 450
manns í sæti. Lido er í sama húsi og
Austurver á horni Miklubrautar og
StakkahlíSar.
Þegai húsið var opnað bauð eig-
andinn Þorvaldur Guðmundsson þang-
að nokkrum gestum, og sagði m. a.
við það tækifæri:
„Mörgum kann svo að finnast, að
borið sé í bakafullan lækinn að opna
þriðja veitingahúsið hér i borg á
þessum vetri, en við nánari athugun
held ég, að flestir geti orðið sammála
um að i okkar ört vaxandi borg sé
rúm fyrir þau öll til viðbótar við þau,
sem fyrir voru. Veitingastarfsemi hef-
ir fleygt ört fram á undanförnum ár-
um hér i borg og mun veitingastaður
sá, sem hér verður starfræktur kapp-
kosta að veita svo góða þjónustu sem
á verður kosið og samanburð getur
staðist við kröfur þær, sem gerðar eru
meðal menningarþjóða.
Þegar hugleitt er hvers konar fyrir-
komulag ríkir í veitingamálum hér á
landi i dag má segja að einkum sé
um tvenns konar fyrirkomulag að
ræða í rekstri veitingastaða. Annars
vegar eru þeir veitingastaðir sem eigi
hafa vínveitingar á boðstólum, þeir
hafa heimild til þess að liafa opið til
klukkan eitt eftir miðnætti alla daga
nema laugardaga, en þá til klukkan
tvö. Hins vegar eru veitingastaðir,
sem leitast við að liafa á boðstólum
fullkomnar veitingar, bæði hvað
snertir mat og drykk, en eigi er
heimilt fyrir gesti að dve.lja lengur
en til klukkan ellefu og hálf að kvöldi,
þar sem reglur mæla svo fyrir um.
Er hér um óskiljanlegt misræmi að
ræða og hljóta allir að skilja að slikt
fyrirkomulag í veitingamálum getur
eigi staðist til frambúðar."
Lido nmn verða opið öll kvöld frá
kh 7—11.30, nema þegar liúsið er leigt
félagssamtökum, og mun hafa á boð-
stólnum fjölbreytta rétti ala carte,
auk matseðils kvöldsins.
Ennfremur mun félagssamtökum
gefinn kostur á að fá afnot hússins
fyrir samkvæmi og hafa nokluir þeg-
ar ákveðið hóf i vetur og var liið
fyrsta þeirra s.l. laugardag er Stang-
veiðifélag Reykjavíkur hélt þar 20
ára afmæli sitt.
Þá mun framhaldsskólum verða gef-
inn kostur á að fá afnot hússins fyrir
skemmtanir sínar, en eigi mun þá
leyfðar vínveitingar.
Loks er hægt á hinu stóra leiksviði
að hafa leiksýningar og kabarett-
sýningar.
IIús þetta er reist af Vegg h.f. og
var þegar i upphafi gert ráð fyrir
því að þar yrði starfræktur veitinga-
staður. Tókust samningar milli Þor-
valdar Guðmundssonar og félagsins
um kaup húsnæðisins og var hafist
handa um innréttingu í júlímán-
uði s. 1.
Auk veitingasalar eru á efri hæð
liússins búningsherbergi fyrir leikara
og bítibúr, en eldhús og matvæla-
geymslur eru í kjallara.
Innréttingar allar eru unnar af ís-
lenskum iðnfyrirtækjum og iðnaðar-
mönnum og bera glæsilegan vott
hæfni þeirra og smekkvísi. Skarphéð-
inn Jóhannsson, húsameistari, teikn-
aði húsið og eru teikningarnar allar
af innréttingu þess unnar á teikni-
stofu hans, en Þórólfur Jónsson,
trésmiðameistari, liafði yfirumsjón
með daglegri verkframkvæmd við
bygginguna.
Framkvæmdastjóri Lido er Konráð
Guðmundsson, sem um árabil hefir
verið bryti á skipum Eimskipafélags
íslands, yfirmatsveinn Halldór Vil-
lijálmsson, sem undanfarið liefir verið
matsveinn í Leikhúskjallaranum og
yfirþjónn Valur Jónsson, sem verið
hefir þjónn i Leikhúskjallaranum.
Neo-kvintettinn undir stjórn Krist-
ins Vilhelmssonar mun leika fyrir
dansi.
Segja má að fulllokið sé allri smíði
hússins. Þó er eftir að setja glugga
í skála, en þeir voru eigi komnir til
landsins i tæka tið, en eru væntan-
legir innan tíðar.
Listamennirnir Ásmundur Sveins-
son og Jón Engilberts vinna nú að
listaverkum sem skreyta eiga skála,
og er það vissa mín að þau verði til
yndis og ánægju gestum Lido.
JÓHANNES XII.
ólst upp í koti.
I elleftu atrennu tókst rúmum 50
kardínálum að kjósa eftirmann Píus-
ar XII. Klukkan 17.10 þriðjudaginn
28. okt. gaus loks hvítur reykur upp
úr strompinum á Sixtínsku kapell-
unni, eftir að svartur reykur hafði
sést tíu sinnum. Þess má geta að nokk-
ur mistölc urðu í fyrsta og síðasta
skiptið, sem atkvæðaseðlum karínál-
anna var brennt: i fyrstu atrennu kom
fyrst hvítur reykur, svo að fólk hélt
að páfinn væri kosinn, og síðast kom
svartur reykur á undan þeim hvita.
Nýi páfinn er 7(5 ára, sá elsti sem
kosinn liefir verið í 209 ár. Hann hét
Angelo Giuseppi Roncalli og var
patríark í Venezia.
Roncalli var aldrei meðal hinna
frægustu kardínála, þótt langan starfs
Framhald á bls. 14.
Þessi skemmtilega mynd var tekin á grímudansleik barna hér í Reykjavík á öskudaginn. Þau klæddust þá
ýmsum afkáralegum búningum, og þar var kátt á hjalla.