Fálkinn - 01.04.1960, Blaðsíða 3
FALKINN
3
Flugflotinn eykst
Önnur Cloudmaster-flugvél Loftleiða er nýlega
komin til landsins, og hefur þá enn nýr og glœsi-
legur farkostur hætzt í flugflota íslendinga. Vél-
in hefir hlotið nafnið Snorri Sturluson, en fyrri
Cloudmastervélin er Leifur Eiríksson. „Snorri“
var tœpa 9 klukkutíma frá New York, og hefur
flugvél í eigu íslendinga aldrei flogið þá vega-
lengd á skemmri tíma. Flugstjóri var Jóhannes
Markússon. Loftleiðir eiga nú tvœr Skymaster-
flugvélar auk hinna nýju Cloudmastervéla og
hafa einnig haft í þjónustu sinni leiguflugvél-
ar frá Braathen- hinum norska. Mun nú í ráði
að selja aðra Skymasterflugvélina.
Myndin hér að neðan er af „Snorra Sturlu-
syni“ á sveimi yfir Reykjavík.
Gamli Þór á siglingu út ísafjarðardjúp.
Landhelgisgæzlan 40 ára
26. marz s.l. voru liðin 40 ár frá því að fyrsta björg-
unarskipið og jafnframt varðskipið, sem íslendingar
eignuðust, kom til landsins. Var það Þór, eða gamli
Þór, eins og hann var síðar nefndur, sem Björgun-
arfélag Vestmannaeyja hafði fest kaup á í Danmörku.
Það var mikið átak fyrir Vestmannaeyinga fyrir
40 árum að ráðast í kaup á þessu skipi, en nauðsynin
var svo brýn, að segja má að þeir hafi staðið sem
einn maður, og hver og einn, sem aflögufær var, lagði
sitt af mörkum. Þór kom að tilætluðum notum með
að veita aðstoð þeim bátum, sem þess þurftu og einn-
ig varði hann miðin fyrir ágengni erlendra togara,
sem sýndu litlu bátunum stöðugt ofríki.
Björgunarfélag Vestmannaeyja annaðist rekstur
Þórs fyrstu árin, en 1926 tók ríkið við skipinu. Fyrsti
formaður Björgunarfélags Vestmannaeyja var Karl
Einarsson sýslumaður og alþingismaður, en aðrir í
stjórn Jóhann P. Jósefsson, kaupmaður, síðar alþingis-
maður og ráðherra, Sigurður Sigurðsson, skáld og
lyfsali, Jón Bunriksson kaupfélagsstjóri og Gísli Lárus-
son kaupfélagsstjóri. Þeir Karl og Jóhann eru nú einir
á lífi. — Fyrsti skipherra á Þór var Jóhann P. Jóns-
son, sem verið hafði liðsforingi í danska sjóhernum.
Gamli Þór þætti ekki veglegt skip nú, en með
honum var lagður grundvöllurinn að landhelgisgæzl-
unni, sem nú síðustu ár hefur sýnt hvers hún er
megnug í baráttu við erlent ofbeldi.
Norsk listvefnaðarsýmng
Um þessar mundir stendur yfir í Þjóðminjasafn-
inu listvefnaðarsýning Statens Kvinnelige Industri-
skole í Osló. Helen Engelstad skólastjóri kom hing-
að með sýninguna í boði Þjóðminjasafnsins, og hef-
ur sett hana upp.
Munir þeir, sem á sýningunni eru, eru fyrst og
fremst unnir úr ull af hinu norska fjárkyni, sem
nú er fremur lítið um þar í landi. Er ull þessi
sama kyns og ullin af íslenzka fénu og þykir mjög
góð til listvefnaðar. Allir munirnir á sýningunni
eru „frumsamdir“ af nemendum fyrrgreinds skóla,
sem sjálfir skapa verkið frá upphafi, teikna það
og vinna að öllu leyti.
Á sýningunni eru ofnir saumaðir hlutir, efni,
prjónles og dúkar, auk fagurra ofinna listmuna,
svo sem hökla og fleiri muna kirkjulegs eðlis. —
Meðal sýningargripa er teppi, sem Vigdís Kristjáns-
dóttir hefur ofið. Gerði hún það þegar hún var
nemandi skólans, en hann mun fremsti skóli á
Norðurlöndum fyrir listvefnað, listiðnað og handíð-
ir kvenna.
Á myndinni eru sendiherrahjón Norðmanna,
Bjarne Börde og frú, frú Helen Engelstad og Krist-
ján Eldjárn, þjóðminjavörður.
r' : ?
;