Fálkinn - 01.04.1960, Side 10
10
FÁLKINN
>f Shrítlur >f
Gesturinn, sem var að fara burt
af gistihúsinu uppgötvar, þegar
hann er kominn út á götu, að hann
hefur gleymt dálitlu, sem fólki
hættir við að gleyma þegar gott er
veður. Hann fer upp í herbergið
en þegar hann kemur að dyrunum,
heyrir hann að nýir leigjendur eru
komnir þangað: „Hver á þetta ynd-
islega nef?“ heyrir hann sagt fyrir
innan dyrnar.
„Vitaniega þú, elskan mín!“
„Og hver á þennan munn?“
„Auðvitað þú, elskan.“
Nú er hinum gestinum farið að
leiðast, svo að hann drepur á dyr
og kallar: „En þegar þið komið að
regnhlífinni, ætla ég að biðja ykkur
. að athuga, að það er ég, sem á
hana.“
— Já, reyktu bara — en þér þýöir
ekkert að koma til mín á eftir og
kvarta yfir að þér hafi orðið illt . . .
♦
Fegurðarlyfin eru meðal, sem
kvenfólkið notar til þess að karl-
mennirnir geti síður lesið á milli
línanna.
Dan Bennett.
þeim — ekki beinlínis, sagði hann.
Hún gat ekki annað en tekið eftir
að það var einhver ókyrrð í rödd
hans.
— Höfðu Benson oð Wilder eng-
an áhuga fyrir þessu? Hún kink-
aði kolli til teikninganna. Það hafði
verið margra tíma verk hjá henni
að gera þessar áætlanir, og henni
fannst súrt í brotið ef þær yrðu
ekki notaðar.
— Þvert á móti. Þeir eru harð-
ánægðir. Hann hnyklaði brúnirnar.
— En þeir vilja láta einn af teikn-
urunum sínum vinna með okkur að
því að fullgera þær.
Hún horfði á hann — vissi hvað
það þýddi.
— Roy Clay? spurði hún hik-
andi.
Hann kinkaði kolli. — Ég hef
ekki svarað þeim ennþá, hélt hann
áfram. — Ég vildi heyra skoðun
yðar fyrst.
— Það er hugsanlegt að Roy
neiti því, sagði Sheiia. Ef til þessa
kæmi yrði hann undir hana settur,
♦
Herra Hansen og frú hans höfðu
farið að rífast út af einhverjum
smámunum og voru bæði komin í
æsing. Eftir dálitla stund snýr Han-
sen sér að konunni sinni og segir:
Jæja, þegar ég athuga þetta betur,
sé ég að þú munir hafa rétt fyrir
þér.“
„Jæja, mikið var! En nú er það
bara of seint. Ég er búin að skipta
um skoðun síðan áðan.“
— Hvernig á maður að geta œft
sig á básúnukonsert Duke Ellingtons
þegar þeir andskotast svona á þilinu
hjá mér?
og vafamál hvort hann sætti sig
við það.
Charles stóð upp og gekk út að
glugganum. Hann sneri bakinu að
henni er hann sagði:
— Nei, ekki hugsa ég það. Roy
Clay vill gjarnan læra meir um
þetta. Charles missti blýant á gólf-
ið. — Vitið þér að hann ætlar að
giftast dóttur Wilders?
Hann var svo nærgætinn að horfa
ekki á hana meðan hann sagði
þetta. Sheila fann að hún fölnaði.
Hún hafði haldið að hún væri farin
að gleyma Roy. Hún gat engu svar-
að strax.
Charles sneri sér að henni. — Mér
þykir leitt að það skyldi lenda á
mér að segja þér þetta, Sheila. Nú
hafði hann allt í einu byrjað að
tala við hana í kunningjatón.
— Eg hefði frétt það fyrr eða
síðar hvort eð var, sagði hún lágt.
— Við verðum auðvitað að óska
þeim til hamingju, hélt hún áfram.
— Þetta er mikilsverður atburður
og við megum ekki láta okkur fat-
ast.
— Dugleg stúlka, sagði Charles.
Það var aðdáun í augum hans, og
henni var stórum léttara en áður
þegar hún fór út frá honum aftur.
Nú var um að gera að sökkva sér
niður í starfið. Það var eina læknis-
lyfið sem hún þekkti, og það hafði
alltaf dugað henni jafn vel.
Hún fór inn í skrifstofuna sína
eins og í leiðslu. Hugulsemi Charles
dró úr sársauka fréttarinnar um að
Roy væri trúlofaður. Nú fyrst skild-
ist henni hve afar umhyggjusamur
Charles var. Henni hlýnaði um
hjartaræturnar við þá tilhugsun.
Hún vissi að hann hafði tekið
nærri sér að segja henni frá skil-
yrðum Wilders, og þótti vænt um
að henni hafði tekizt að æðrast ekki
er hún heyrði þau.
En þegar hún kom inn í skrif-
stofuna sína bilaði hún. Það var
erfitt að skilja að maðurinn, sem
hún hafði elskað svo heitt, skyldi
vera trúlofaður annari stúlku. Nú
hafði hann sagt sömu orðin við hana
og kysst hana eins og forðum....
Hún tók báðum höndum fyrir
andlitið, varirnar skulfu. Allt í
einu mundi hún orð Charles: Dug-
leg stúlka! Hún rétti úr sér og dró
djúpt andann. Loks fór hún að
vinna og nú gleymdi hún bæði
Charles og Roy.
DAGINN sem Roy kom til að
byrja að vinna, lá við að þyrmdi
yfir Sheilu, þó hún hefði einsett
sér að vera róleg.
Til þess að stappa í sig stálinu
hafði hún reynt að útmála sér Roy
sem harðsvíraðan og metnaðar-
gjarnan hrotta. En hann drap laust
á dyrnar, beið rólegur þangað til
svarað var „kom inn“ og var
hæverskur og heillandi, alveg eins
geðslegur og vant var.
— Komdu sæl, Sheila. Hann gekk
til hennar, hálf feiminn og hikandi
og rétti fram höndina. Hún heilsaði
vingjarnlega.
— Ég vona að ég sé ekki of nær-
göngull, sagði hann.
— Æ, það er allt í lagi.
— Þú ert afbragð!
— Auðvitað. Sheila brosti. — Og
nú er best að byrja.
— Teikningarnar eru mjög góð-
ar, sagði hann.
— Þökk fyrir.
— Og svo settust þau við aff
vinna.
Og svo kom dagurinn sem Sheila
og Roy urðu að vinna yfirvinnu til
að Ijúka verkinu.
— Ert þú til í það, Roy?
— Allt í lagi ,svaraði hann, —
ég verð bara að láta Elsu vita að
ég geti ekki borðið miðdegisverð
með henni. Þetta var fyrsta skiftið
sem Roy minntist á unnustu sína,
og Sheila fann sér til undrunar að
hún kveínkaði sér ekkert við það.
Þau urðu að vinna yfirvinnu
marga daga og verkinu miðaði vel
áfram. Þau töluðu ekkert um einka-
mál en eínbeittu sér að teikning-
unum.
— f kvöld ættum við að verða
búin, sagði Sheila og varp öndinni.
Við höfum verið dugleg, Roy, þó
ég segi það sjálf.
— Það finnst mér líka, svaraði
Roy. Hann roðnaði ofurlítið. — Af
því að þetta er síðasti dagurinn
sem við erum saman, þætti mér
Framh. á bls. 15.
Vitið þér ...?
að Canadamenn nota talsím-
ann allra þjóða mest?
Að meðaltali notar hver Canada-
búi símann 511 sinnum á ári, en
næstir koma íslendingar, sem nota
486 samtöl á mann. — Bandaríkin
hafa allra þjóða flesta talsíma, 66—
67 milljón tæki, en það er meira en
helmingur allra talsímatækja í ver-
öldinni.
að árið 1474 verpti hani í
Basel í Sviss eggi?
En það hafði hann ekki átt að
gera, enda gerði hann það ekki oft-
ar. Hana-garminum var sem sé
stefnt fyrir galdra, og dæmdur til
dauða og brenndur að viðstöddum
miklum mannfjölda á torginu.
að smádýr og þörungar, sem
festast á skipsbotna, kosta
útgerðarfélögin stórfé?
f hitabeltinu dregur þetta sem
svarar 5/1000 úr hraða skips á sól-
arhring, svo að eldsneytiskostnaður-
inn hækkar um 50% á hverjum 6
mánuðum. — Á leiðinni frá Cape
Town til London verður 7.500 tonna
vöruskip fyrir yfir 1000 punda aukn-
ingu á eldsneytiskostnaði, vegna
gróðursins, sem festist á það. — Og
svo kemur kostnaðurinn við að taka
skipin á þurrt og hreinsa botninn.
otioíííiooíjíiíltiíiísoísoíiíiíiíioöoooooíiíxioíiíioíiísíiísöíisiíioíiíiooísíiíiíiíxsoíx