Fálkinn - 22.04.1960, Side 3
FALKINN
3
ÍSLENZK HÖSGÖGN
Fyrir nokkru var opnuð hér í Reykja-
vík fyrsta húsgagnasýning, sem Félag
húsgagnaarkitekta stendur fyrir hér á
landi. Hefur félagið lengi haft hug á að
efna til húsgagnasýningar og gefa al-
menningi kost á að kynnast nýjunum í ís-
lenzkri húsgagnagerð.
Undirbúningur að sýningunnj var haf-
inn fyrir tæpu ári og var þegar ákveðið
að það yrði samsýning húsgagnaarki-
tekta, húsgagnasmíðameistara og bólstr-
ara,
Á sýningunni eru eingöngu húsgögn,
sem ísl. húsgagnaarkitektar hafa teikn-
að og framleidd eru af húsgagnasmíða-
meisturum og bólstrurum. Arkitektarnir
eru: Halldór Halldórsson, Hjalti Geir
Kristjánsson, Kjartan Á. Kjartansson,
Gunnar H. Guðmundsson, Árni Jónsson,
Helgi Hallgrímsson, Sveinn Kjarval,
Gunnar Theódórsson og Páll Guðmunds-
son.
Skarphéðinn Jóhannsson arkitekt sá
um fyrirkomulag sýningarinnar og hefur
hver húsgagnaarkitekt afmarkað svæði.
Smíðisgripirnir á sýningunni hafa ekki
verið framleiddir áður og því um algera
nýjung að ræða. Á sýningunni eru teppa
frá Teppagerðinni Axminster, lýsingu sá
Lýsing h.f. um, en Völundur lánaði efni.
Þá eykur það á fjölbreytni sýningar-
innar, að þar verða einnig til sýnis nokk-
ur málverk eftir Jón Stefánsson. Eru það
málverk, sem aldrei hafa verið sýnd hér
á landi fyrr.
Félag húsgagnaarkitekta var stofnað
fyrir fimm árum og eru félagsmenn 13
að tölu. Flestir eru þeir lærðir húsgagna-
smiðir, sem síðan hafa stundað framhalds-
nám erlendis í húsgagnateikningum og
teikningu innréttinga. Megintilgangur fé-
lagsins er að stuðla að bættri híbýla-
menningu og vinna að því að hér séu ætíð
á boðstólum innlend húsgögn, sem ekki
standi þeim erlendu að baki. Hyggst fé-
lagið gangast fyrir sýningu sem þessari
með ákveðnu millibili.
Sýningunni lýkur n. k. sunnudag. Hver
aðgöngumiði gildir jafnframt sem happ-
drættismiði og eru vinningarnir húsgögn
að verðmæti um 9 þús. kr.
Á neðstu hæð Hrafnistu, dvala rheimilis aldraðra sjómanna er
vinnusalur fyrir netahnýtingar menn. Vinna margir vistmenn
fyrir sér með netahnýtingum og öðriun störfum. — Vinnu-
gleði er þar mikil.
Kappdrættí DAS fjölgar vinningum
Stytta Jóns Sigurðssonar
lýst upp.
LJÓSYIKA í REYKJAVÍK
Aðalfundur Ljóstæknifélags íslands
var nýlega haldinn og mjög til hans vand-
að. Meðal annars kom formaður sænska
ljóstæknifélagsins, Ivar Folcker, en hann
er jafnframt nýkjörin formaður alþjóða-
ljóstæknisambandsins CIE. Flutti hann
aðalerindj fundarins.
Auk ársfundarins beitti Ljóstæknáfé-
lagið sér fyrir eins konar ljósviku 3.—9.
apríl. Var ætlunin með henni að örva
sem flesta til átaka á sviði bættrar lýsing-
ar og aukinnar fræðslu um fyrirkomulag
og meðferð lampa, Félagið beitti sér og
fyrir flóðlýsingu nokkurra bygginga
einkum við Austurvöll. Einnig var stytta
Jóns Sigurðssonar lýst með bráðabirgða-
Ijóskösturum. Sá Rafmagnsveita Reykja-
víkur um þessar framkvæmdir.
í lok vikunnar var kennslustofa í lýs-
ingartækni, sem Ljóstæknifélagið og raf-
magnsdeild Vélskólans starfrækja, opin
almenningi. Þar var sýnishorn alls konar
lampa og upplýsingar gefnar um ljós og
lýsingu. Þá var og reynt að vekja áhuga
fólks á bættri lýsingu með sérstakri
skreytingu í sýningarglugga málarans
við Bankastrætá.
Ákveðið hefur verið að fjölga
vinningum í happdrætti dvalar-
heimilis aldraðra sjómanna úr 20 í
50 á mánuði en tala útgefinna miða
helzt þó óbreytt. Hins vegar hækk-
ar endurnýjunargjald úr 20 krón-
um í 30 á mánuði.
Vinningar í happdrættinu verða
þessir: 24 íbúðir, 12 fullgerðar og
12 tilbúnar undir tréverk, 24 bif-
reiðar, 4 píanó, 12 saumavélar og
536 aðrir vinningar, svo sem hús-
búnaður eftir eigin vali fyrir 5—10
þús. kr. hver. Heildarverðmæti
vinninganna verður 13,3 millj. kr.
Eignir dvalarheimilisins nema nú
25 millj. kr., og verður í sumar
byrjað á að reisa nýja álmu við
heimilið fyi'ir um 65 vistmenn.
Samkomuhús dvalarheimilisins
verður tekið í notkun um næstu
mánaðamót. Verður þar fullkomn-
asta kvikmyndahús hér á landi.
Verður það útbúáð með svonefndu
Todd-AO kvikmyndatjaldi, sem
framkallar þrívíddaráhrif ári þess
að sérstök gleraugu séu notuð. Er
það nýjung hér á landi og aðeins
mjög fá kvikmyndahús erlendis eru
þannig útbúin. Aðgangseyrir að
slíkum kvikmyndahúsum er mun
dýrari en í venjulegum kvikmynda-
húsum og verður svo hér. Fyrsta
myndin, sem sýnd verður, er óper-
ettan South Pacific. Framkvæmda-
stjóri kvikmyndahússins verður
Valdimar Jónsson.
Vistmenn Dvaldarheimilisins eru
nú 80 og 44 sjúklingar, en sjúkra-
deildin var tekin í notkun í febrúar
á s.l. ári.
Vríanerhjasöfnun
Áhugi er nú mjög mikill hér á
landi á frímerkjasöfnun ekki sízt
meðal unglinganna, og á starf- j
semi Æskulýðsráðs Reykjavíkur
sinn þátt í því. Nú nýlega voru
gefin út hér eins og í fjölmörgiun
öðrum löndum svonefnd flótta-
mannafrímerki. Þröngin hefur
aldrei verið jafnmikil í pósthúsi
Reykjavíkur og þá. Langar bið-
raðir mynduðust af fólki, sem var
með umslög álímd þessum nýju
frímerkjum og beið þess að fá þau
; stimpluð með útgáfudagsstimpli.
Þarna mátti sjá marga þekkta
safnara en unglingamir voru samt
í miklum meirihluta. Rauði kross-
inn gaf út sérstök útgáfudagsum-
slög, sem margir keyptu og not-
færðu sér.
Myndin hér að neðan er úr póst-
íwwwuwwvwvwtfwww^vuwwwwwiftjwwwwwvw,húsinu útgáfudag frímcrkjanna.