Fálkinn - 22.04.1960, Page 6
6
FALKINN
HVITA EITRIÐ 3.
———BM—BHBHH—EBSMBaMBmiiirn1 m rfiHWrtrfiffli
Afrek Parkers njósnara
ÁÆTLUNIN GERÐ.
Ameríski njósnarinn þurfti þessa
tvo daga til þess að skreppa til Ist-
anbul og ræða við yfirmenn tyrk-
nesku eiturlögreglunnar og svo vit-
anlega að ganga frá því að þessi 60
þús. pund væru handbær þegar á
þyrfti að halda. En bófarnir máttu
helzt ekki taka eftir að Parker yrði
fjarverandi frá Izmir svona lengi.
Tyrkneska löðreglan var skjót í
vöfunum. Parker talaði við Hayrett-
in Nakiboglu lögreglustjóra og
eiturnjósnara hans og þeir símuðu
til Kamal Aygun yfirlögreglu-
stjóra í Ankara. Hann gerði áætlun
um fyrirkomulagið og lofaði Parker
að hafa peningana tilbúna. Og hann
útvegaði Parker duglegan mann til
fylgdar, Redvan Pehlivanoglu. Þeir
fengu báðir skammbyssur.
Tyrkneskir bófar svífast einskis,
og ekkert ólíklegt að þessum tveim-
ur njósnurum yrði gerð fyrirsás í
einhverju fjallaskarðinu, og pen-
ingunum rænt af þeim.
Þann 21. nóv. kl. 10 stundvíslega
komu þeir báðir að afskekta bæn-
um fyrir utan Izmir, þar sem Park-
er átti að hitta Lazynek og Mayi.
Tyrkirnir urðu tortryggnir þegar
þeir sáu að Parker var með mann
með sér.
— Hvaða náungi er þetta? urraði
Lazynek á tyrknesku.
Honum var sagt að það væri um-
boðsmaður Parkers í Tyrklandi. —
Ég vonast til að geta gert meiri
verzlun við ykkur, sagði Parker. —
Ég vil að þið treystið þessum manni
ekki síður en mér. Hann er áreiðan-
legur. Ég komst í kynni við Faum-
ouk fyrir milligöngu hans.
Þeir virtust róast við þetta. —
Jæja, við skulum þá halda af stað,
sagði Mayi. — Þetta er löng leið,
sem við eigum að fara.
Lazynek og Mayi settust í aftur-
sætið í stóra og sterka vagninum,
sem Parker hafði leigt sér í Izmir,
en sjálfur sat hann hjá Pehlivan-
oglu, sem var við stýrið. Svona var
haldið til fjalla.
ÚT í ÆVINTÝRIÐ.
Fyrstu klukkutímana lá leiðin
um fagurt land, svo að Parker gat
hvílt sig á þvi að dá náttúrufeg-
urðina og safnað kröftum undir
það, sem gerast mundi áður en ferð-
inni lyki. Vegurinn var góður, lág-
ir garðar á báðar hliðar, og í fjarska
sá út yfir Smyrnaflóa.
Ekki var mikið talað á leiðinni,
og Parker hefði viljað borga mikið
fyrir að fá að vita hvað bófarnir
voru að hugsa um því hærra sem
kom því eyðilegra varð landslagið.
Vegurinn lá utan í fjallshlíð, gekk
í bugðum yfir gil og meðfram gjám
— sífellt hærra og hærra.
Á einstaka stað mátti sjá hrör-
leg skýli, sem voru að hálfu leyti
grafin inn í fjallið. Loks var komin
nótt — köld nótt og dimm, en bíl-
ljósin sýndu veginn. Mayi hraut i
aftursætinu.
Rétt fyrir miðnætti, er þeir höfðu
ekið í tólf tíma, beygði Lazynek
sig fram. — Nú stönsum við bráð-
SíðtBWÍ hÍuti
um, sagði hann við bílstjórann á
tyrknesku.
Og bíllinn nam staðar um 300
metra frá stóru, hvítu húsi. Hvergi
sást ljós í glugga, en þegar þeir
klöngruðust út úr bílnum, stirðir
og lerkaðir var varla stætt fyrir
roki.
— Þú verður hérna, sagði Lazy-
nek við bílstjórann. Tyrkneski
njósnarinn leit spyrjandi á Parker,
sem kinkaði kolli til samþykkis.
Svo gengu þeir þrír — Lazynek,
Mayi og Parker þegjandi upp að
húsinu. Það var svo hvasst að þeir
urðu að ganga kengbognir til að
standa. Parker þuklaði á skamm-
byssunni, sem hékk í ól um öxl
hans, undir jakkanum, og hélt sig
jafnan í humátt eftir hinum tveim-
ur. Hann heyrði að förunautur
hans sneri bílnum við, til að vera
viðbúinn að aka til baka fyrirvara-
laust ef þörf gerðist. Ef bófarnir
voru að hugsa um að ræna Parker
yrði það auðvelt, því næsta byggð
var í 70 km. fjarlægð og húsið stóð
á smáhjalla með snarbröttum hengi-
flugum í kring. Þarna var auðvelt
að drepa heilan herflokk — hvað
þá tvo menn, og fleygja þeim fyrir
björg.
EITRIÐ AFHENT.
Þegar kom að dyrunum var
Parker sagt að bíða þangað til þeir
kæmu aftur. Áður. en hann gat
svarað voru þeir báðir horfnir inn
í húsið — og hann stóð aleinn eftir
í myrkrinu. Hann beið tíu mínútur.
Ekkert gerðist. Hvergi sást ljós
kveikt inni. En stormurinn vældi
og veinaði, svo að hann gat ekkert
heyrt innan að, þó eitthvað væri að
heyra. Þarna stóð Parker einn síns
líðs, langt inni í Anatolíu, og hafði
ekkert sér til varnar nema hug-
kvæmni og hlaðna skammbyssu.
Undir slíkum kringumstæðum má
njósnarinn ekki láta hugann hlaupa
með sig í gönur; ekkert er eins á-
ríðandi og að vera rólegur. Ætluðu
þeir að ræna hann — hirða pening-
ana án þess að hann fengi nokkuð
í staðinn? Kannske voru þeir búnir
að setja vörð við veginn, svo að
hann kæmist ekki til baka? Parker
yppti öxlum. Það var til lítils að
vera að brjóta heilann um þetta.
Þarna voru það aðeins staðreynd-
irnar, sem skiptu máli — og hvern-
ig hann ætti að halda á spilunum
sínum. Hann varð að taka afstöðu
til hlutanna jafnóðum og þeir gerð-
ust.
Allt í einu opnuðust dyrnar og
Mayi og Lazynek komu fram með
stórt koffort milli sín. — Hérna er
varan, sagði Mayi stutt. — Það er
bezt að við fáum peningana og
komust svo af stað.
Parker steig skref aftur á bak
til að fá meira svigrúm. — Nei
hægan, hægan! hrópaði hann reið-
ur. — Haldið þið að ég sé óviti?
Ég verð að sjá vöruna fyrst! Ekki
svo að skiija að ég tortryggi ykkur
— en ég vil hafa allt í röð og reglu.
Hann stakk upp á að þeir færu
niður að bílnum og að hann athug-
aði morfínið þar. Þeir féllust á það.
Og á leiðinni niður á veginn gat
hann sætt lagi að líta til baka. Sá
hann þá að gefin voru merki með
rauðu ljósi við húshornið. Og merk-
inu var svarað úr fjallshlíðinni á
móti.
Parker hafði ekki orð á þessu, en
hélt áfram og flýtti sér ekki. Hann
varp öndinni er þeir komu að bíln-
um — Pehlivanoglu undirforingi
sat þar og beið. Svo var kveikt
ljós í bílnum, og einn smápokinn í
kofortinu opnaður og sýrutilraun
gerð á hvíta duftinu.
Parker lést vera ánægður. Eng-
inn vafi á því að efnið var ósvikið.
Meðan hann var að gera tilraunina
sparkaði aðstoðarmaðurinn í fótinn
á honum. Hann leit upp. Tíu eða
tólf manns stóð kringum bílinn!
LEIKIÐ Á BÓFANA.
Foringi hópsins hallaði sér fram
ógnandi, með riffilhlaupið aðeins
fáa sentimetra frá höfði Parkers.
Nú voru góð ráð dýr, annars átti
hann á hættu að missa bæði pen-
ingana og lítið. Parker tók viðbragð,
hratt rifflinum frá sér út úr bíln-
um. Hann baðaði höndunum og
benti æstur á riffilinn.
Tyrkneski aðstoðarmaðurinn kom
út á samri stundu. — Dirfist þið að
ógna okkur svona? hrópaði hann.
— Þessi vinur minn er einn af
frægustu mönnunum í New York,
og þið farið með hann eins og fjalla-
geit. Ef þið hafið ykkur ekki hæga
verður ekki úr neinni verzlun. Það
er hægurinn hjá að finna einhverja
Lögreglumenn frá USA, Hellas og Tyrklandi unnu í nóvcmber
1954 að uppljóstrun smyglmáls og fóru svo leikar að mörg
hundrúð kíló af ópíum voru gerð upptæk samtímis í Tyrklandi,
Libanon og Sýrlandi. — Hér sjást njósnararnir með her-'
fangið.