Fálkinn - 22.04.1960, Side 10
10
FALKINN
framar. Þeim kom vel saman,
pabba og honum. Pabba leizt strax
vel á hann og hann hafði gaman af
sögunum, sem Kristófer sagði hon-
um úr siglingum sínum og verunni
í öðrum löndum.
Það fór þannig að Kristófer fékk
húsnæði hjá okkur. Honum þótti
gott að fá að setjast að á þurru og
fá vinnu í landi. En deginum sem
okkur kom saman um að giftast,
segi ég ekki frá hérna.
Pabbi dó í fyrra, tæpu ári eftir
að við giftumst. Svo að nú erum við
ein um heimilið, ef svo má segja.
Kristófer er duglegur og laghentur
og hefur málað húsið og gert við
það, sem bóta þurfti við. Það er
orðið svo fínt hjá okkur að ég
þekki þetta ekki fyrir sama hús,
einkum vegna þess að við höfum
fengið ný húsgögn og svo margt
annað.
Jæja, svona fór lífið hjá mér, og
þetta er mín saga. Og Kristófer
sagði einhverntíma dálítið við mig,
sem ég mun aldrei gleyma: — Ég
er ekki hræddur við að giftast þér,
Anna. Ekki eftir að ég hef séð hvað
þú hefur gert fyrir hann föður
þinn.
Svo að það varð þá ekki árang-
urslaust — að ég varð heima hjá
pabba.
FRÁ BELGÍSKA-CONGO. — í
hinn gömlu Congo-nýlendu Belga,
sem nú er að verða sjálfstætt ríki,
hefur verið lögð áhersla á það upp
á síðkastið að gera ekki upp á milli
svarta barna og hvítra. Þau ganga
í skóia saman og lifa í bróðerni.
Af þessu mættu Suður-Afríkúbúar
læra — og enda Bandaríkjamenn
líka.
—★—-
50.000 PUND.
Enskur sérfræðingur hefur reikn-
að út, að það muni kosta kringum
50.000 pund að kaupa sér farmiða
til tunglsins, þegar ferðir hefjast
þangað, en það mun verða fyrir 1970,
segir hann. Ferðin tekur 7 tíma og
42 mínútur.
>f ShrítMwr >f
Hann Erlendur rukkari var allt-
af nokkuð seinn í vöfum. Einu sinni
kemur hann til tannlæknisins, og
þar er enginn fyrir á biðstofunni,
svo að læknirinn kemur strax í
dyrnar og býður honum inn fyrir
og segir honum að setjast í gjörn-
ingastólinn. — Gaptu nú vel, segir
læknirinn, og það gerði Erlendur og
læknirinn rekur töngina á kaf inn
í kjaftinn á honum og kippir úr hon-
um stórum jaxli. „Þetta gekk vel,“
segir læknirinn svo.
„Já,“ svarar Erlendur, „en hvers
á jaxlinn að gjalda, Ég var hérna
með reikning fyrir fimm skippund-
um af kolum.“
★
— Veiztu hve mörg börn hann
Amadeus í Kaplaskjóli á?
— Eftir því sem ég kemst næst,
á hann þrjú, sem hann hefur greitt
við hamarshögg,en tvö upp á afborg-
un.
★
Talsvert góðglaður náungi kem-
ur inn í strætisvagninn, og hlammar
sér niður milli tveggja kvenna. Þeg-
ar þau hafa ekið dálítinn spöl hnipp-
ir hann í aðra og spyr:
— Áttu fimmtíu aura?
— Nei, svaraði hún önug.
Og svo hnippti hann í hina og
hvíslar: „Átt þú 50 aura?“
— Nei, svaraði konan, enn fýlu-
legri en sú fyrri.
Svo kemur vagnvörðurinn til að
innheimta fargjaldið og sá góðglaði
tekur upp budduna og segir:
— Ég ætla að borga fyrir þessar
tvær. Þær eiga ekki fyrir farinu,
aumingjarnir,
★
Gamall prestur hafði lengi legið
veikur, svo að tvísýnt var um líf
hans. En'svo fór, að hann hafði
það af, og læknirinn sagði meðhjálp-
aranum, að nú væri presturinn betri
og úr allri hættu.
Meðhjálparanurh fannst viðeig-
andi að tilkynna þetta á einhvern
hátt, og skrifaði því auglýsingu, sem
hann festi á spjald við kirkjudyrn-
ar. Á spjaldinu stóð þetta:
„Guð er góður, -— presturinn er
betri.“
★
Hann Eyvi var mesti snillingur í
höndunum, enda var mikil eftir-
spurn eftir honum, til að gera að
ýmsu smávegis hjá bændunum í
sveitinni. Einu sinni bar svö við,
að náðhúsið hjá oddvit'anum var
orðið hættulegt, svo að gert var boð
eftir Eyva til að hressa það við.
Undir kvöldið kemur oddvitinn
út til að líta á handverk Eyva.
Hann var ekki sem ánægðastur og
sagði:
— Mér finnst þú hafa haft gatið á
setunum of lítið.
— Nei, það er eins og það á að
vera. Það er eftir mínu höfði, sagði
Eyvi.
— Ég held að það hefði nú verið
betra að þú hefðir notað sitjandann
en ekki hausinn til að taka mál af
gatinu, sagði oddvitinn.
★
Óli í Efribæ hafði farið í höfuð-
staðinn. Þegar hann kom heim
spurði nágranninn: „Náðirðu í nokk-
urn kvenmann í kaupavinnu?“
-— Biddu fyrir þér, svaraði Óli.
— það er allt svo dýrt þarna í höf-
uðstaðnum, að ég fór með kerling-
una með mér.
★
Bóndinn hafði ungan, laglegan
vinnumann. Eitt kvöldið fór hann í
sparifötin, tók stórt vasaljós og
bjóst til að fara út. Þegar bóndinn
spurði hvað hann ætlaði að gera út
með vasaljósið, svarðaði pilturinn,
að hann ætlaði að fara að biðja sér
stúlku.
— Ekki gerði maður það þegar
ég var ungur, að hafa með sér vasa-
ljós, þegar maður fór að biðja sér
stúlku, sagði bóndinn.
— Maður getur líka séð það á
konunni þinni, að þú hefur beðin
hennar í myrkri, svaraði stráksi.
★
Auglýsing.
„Tjald, svo að segja nýtt, aðeins
notað eina nótt, fæst í skiptum fyrir
barnavagn.“
★
„KARTS“ í FRAKKLANDI. —
Litlu kappakstursvagnarnir, sem
ganga undir nafninu „Karts“, hafa
náð mikilli útbreiðslu í Englandi,
af bví að beir eru ódýrir og gaman
að aka í þeim. — Nú eru þessir
vagnar farnir að tíðkast í Frakk-
landi líka og er myndin af þessuin
vögnum tekin í Boulogneskóginum
í París.
Vitið þér ...?
að milljónir kínverskra
kvenna eru enn með kýtta
fætur?
Nálega 50 ár eru síðan hinn æva-
gamli siður, að kýta fætur stúlku-
barna, með því að láta þau ganga
í of þröngum skóm, var afnuminn
með lögum. En á að giska 20—30
milljón kínverskar konur hafa
þrjóskast við að hlýða, og eru enn
„fótnettar“.
að hættan er mörg í heima-
húsum?
Amerísk athugun hefur leitt í
ljós að 4 milljón slys og óhöpp koma
fyrir árlega í U.S.A., og 27.000
þeirra valda bana. — Mörg þeirra
stafa af ógætni við meðferð raf-
magns, en önnur af því að flöskur
og glös eru ekki nógu vel merkt,
svo að fólk lætur ofan í sig eitur i
ógáti.
að „vatnstryggir“ seðlar eru
nú framleiddir í Japan?
í Japan eyðileggjast árlega seðl-
ar fyrir um 6 milljón krónur af
sagga og vatni. En nú hafa Japanar
gert nýja seðla og borið í þá harpix,
svo að þeir eru jafngóðir þótt þeir
vökni.