Fálkinn - 22.04.1960, Síða 16
Bóh ársins 1900:
VESTUR-ÍSLENZKAR ÆVISKRÁR
Meðal íslendinga hefur frá
fornu fari verið mikill áhugi
á sögu þjóðarinnar og ætt-
fræði. Þeim áhuga má að
verulegu leyti þakka að hin-
ar fornu bókmenntir íslend-
inga urðu til og að síðan
hefur haldizt við þekking á
ættum manna og sögu ein-
staklinga, óslitið að kalla má
til okkar daga. Hefur það
reynzt ómetanlegur styrkur
í baráttu íslendinga fyrir
sjálfstæði sínu og tilveru sem
sjálfstæðrar þjóðar. Og enn
lifir sami andinn. Menn vilja
vita deili á frændum sínum,
þótt fjarskyldir séu og búi
í öðrum löndum. Ef litið er á
það, sem íslendingar vestan
hafs hafa skrifað, sést að
sami áhuginn hefur lifað þar,
enda miklar heimildir um ætt-
fræði og mannfræði í íslenzk-
um ritum og blöðum vestan
hafs.
Sýnishorn uf einni hlaösíön úr hókinni.
'
Vi.ÍM tNZKAK ÆAiSKK.ÁR M
m
Til þess að endurvekja hin
gömlu kynni og skapa ný
tengsl milli frænda báðum
megin hafsins hef ég hafizt
handa um að safna í eina
heild stuttum æviágripum
með myndum sem flestra nú-
lifandi manna af íslenzkum
ættum í Vesturheimi og gefa
út
Eins og að líkum lætur, er
útgáfa slíks ritverks, sem að
miklu leyti hefur orðið að
vinna í annari heimsálfu,
rajöig kostnaðarsöm, og má
segja að framhaldsstarfið
verði því aðeins unnið, að
unnl reynist að tryggja því
fjárhagslegan grundvöll þeg-
ar í upphafi. í því skyni verð-
ur leitað eftir áskriftum að
æviskrám og þess vænzt,
að allir, sem ættfræði og
mannfræði unna gerist áskrif-
endur. Nær sú hvatning jafnt
til íslendinga austan hafs og
vestan. Verða æviskrár þess-
ar mun ýtarlegri en ís-
lenzkar æviskrár, sem Bók-
menntafélagið gaf út fyrir
nokkru, auk mynda af öll-
um viðkomandi mönnum, sera
það leyfðu. Þá verður aftast
í bindinu nafnaskrá yfir alla,
sem þar er getið. En þeir
munu skipta mörgum þúsund-
um. Kemur fyrsta bindið út
í ár. Það verður um 500 bls.
í stóru broti, prentað á
myndapappír. Fræðimennirni-
sr. Benjamín Kristjánsson á
Laugalandi og sr. Jón Guðna-
son þjóðskjalavörður í Reykja
vík, búa æviskrárnar undir
prentun, en útgáfu annast
Bókaforlag Odds Björnsson-
ar á Akureyrí, og er það góð
trygging fyrir vandaðri vinnu.
Verð þessa bindis er ákveðið
til áskrifenda kr. 350,00 í
bandi, en óbundið 320,00. —
Bókhlöðuverð verður kr
450,00 ib. og kr. 420,00 ób
Til þess að iétta undir með
hinum mikla útgáfukostnaði,
fylgir boðsbréfi þessu áskrift-
arseðill, og eru það vinsam-
leg tilmæli mín til þeirra,
sem gerast vilja áskrifendur,
að þeir sendi kr. 50,00 fyrir-
framgreiðslu ásamt áskriftar-
seðlinum.
ÞEIM, SEM GREIÐA
ÞETTA FYRSTA BINDI
AÐ FULLU VIÐ PÖNT-
UN, ERU BOÐIN ÞAU
KOSTAKJÖR AÐ EIGN-
AST BÓKINA „FRÁ
KOTÁ TIL KANADA“
EÐA ÞÁ „DALA-
SKÁLD“ EFTIR EIGIN
VALI, ÁSAMT RITINC
EDDU, ÖLLU SEM ÚT
ER KOMIÐ, FYRIR AÐ-
EINS KR. 20,00. — AT-
HUGIÐ VEL ÞETTA
BOÐ.
Efni þessa boðsbréfs er
fyrst og fremst að kynna
Æviskrárnar og þann tilgang,
sem að baki liggur, að gefa
slíkt rit út. En hann er í
stuttu máli þessi:
1. Skapa grundvöll að per-
sónulegum tengslum milli fs-
lendinga austan hafs og vest-
an.
2. Fá yfirlit um, hvern þátt
fóik af íslenzkum ættum hef-
ur átt í þjóðfélögunum í
Ameríku, þar sem fram kem-
ur, hvaða störf það hefur
unnið og hvert áhugi þess
hefur beinzt.
3. Verða þáttur í ísl. ætt-
fræði og söguleg heimild sem
unnt sé að byggja á í fram-
tíðinni um ættartengsl manna
báðum megin hafsins og vekja
með því áhuga yngri kynslóð-
arinnar vestra og ættarbönd-
unum við fsland.
Það er hugmynd mín að
þarna verði skráð heimild um
menn af íslenzkum stofni sem
hafi varanlegt gildi fyrir sögu
landa þeirra, ekki síður en ís-
lenzka ættfræði, og sýni
hvern þátt hinn litli, íslenzki
þjóðstofn hefur spunnið í líf
hinna fjölmörgu þjóða i
Ameríku. Einnig megi þetta
verða til þess, að efla almennt
menningarsamband milli ís-
lands annars vegar og Canada
og Bandaríkjanna hins vegar.
Að lokum vil ég þakka öll-
um þeim fyrirfram, sem ger-
ast áskrifendur að Æviskrán-
um og leggja þar með fram
sinn skerf til þess, að mynda
meginþráð yfir hafið milli ís-
lendinga austan hafs og vest-
an, og styrkja þannig og
treysta samstarf ■ og kynni
við þessa fjarlægu frændur
okkar og vini.
Akureyri 15. marz 1960.
Árni Bjarnarson.
— — TT^'W.KMB————————I——————————■————*■*"*"
Á§kriftar§e(Mll ad Vestwr-íslenzkuin ævi§krám I.
Ég undirrit gerist hér með áskrifandi að Vestur-
islenzkum æviskrám I., sem koma út í sumar og kosta
til áskrifenda kr. 350,00 ib., og kr. 320 ób. að viðbætt-
um kostnaði. Séndi ég hér með kr.
Pantanir sendist: Bókaverzl. Edda h.f., Akureyri
NAFN: . . ..
HEIMILI: ..
PÓSTSTÖÐ: