Fálkinn - 23.11.1960, Qupperneq 16
MEÐAL þeirra fimmtán milljóna Kín-
verja, sem búa utan landamæra komm-
únistaríkisins, er nú óðum að færast í
aukana bófafélag, er helzt mætti líkja
við hið alræmda Mafia glæpafélag á
Ítalíu eða hinn óhugnanlega Ku Klux
Klan, hvað aðferðir og útbreiðslu snert-
ir. Yfir því hvílir hin mesta leynd.
Meðal hins gula kynþáttar í Evrópu,
Afríku og Ameríku, er það þó aðeins
að ná fótfestu, enn sem komið er. En
í Austurlöndum, í Singapore, og ekki
hvað sízt í Hongkong, þar sem höfuð-
stöðvar þess eru, má segja, að félags-
skapurinn sé orðinn stórveldi, er yfir-
völdin eiga í hinum mestu erfiðleikum
með.
Á ensku máli nefnist bófasamlag þetta
„Triad“, er merkir þrenning. En það
nafn varð til þegar við stofnun þess.
Eins og önnur leynifélög starfar það
sem eins konar ríki í ríkinu. Það „vernd-
ar“ vissar götur og bæjarhverfi og
heimtar nánar tiltekna hundraðshluta af
tekjum kaupmanna, skammtar sér skatt
af atvinnu vændiskvenna eða kúgar fé
af efnuðum borgurum með því að hóta
þeim barnaránum. Og loks stendur það
auðvitað fyrir eiturlyfjasölunni.
Bófarnir sjálfir kalla félagsskapinn
bræðralag, og inntaka nýrra „bræðra'*
fer æfinlega fram samkvæmt dularfull-
um siðvenjum.
FYRIR skömmu síðan var enskur
blaðamaður viðstaddur slíka inntöku,
er fram fór í skúr uppi á húsþaki í
Hongkong.
Ungur Kínverji lá á knébeð frammi
fyrir altari, en hjá því stóðu þrír gamlir
Triad-félagar, klæddir gulum og rauð-
um skikkjum. Loftið var þrungið reyk-
elsisilm og olíustækju. Úti í einu horn-
inu klakaði kjúklingur.
Hin kuflklædda þrenning gaf nú ný-
liðanum merki og tók hann þá að mæla
fram hina þrjátíu og níu trúnaðareiða.
Hann vissi, að ef hann ryfi þótt ekki væri
nema einn einasta þeirra, yrði nefið
skorið af honum. Ef hann bryti annan
til, myndi honum verða banað með „þús-
und stungum“.
Þegar maðurinn var þagnaður,
kveiktu þrímenningarnir í þrjátíu og
níu pappírsmiðum, sem eiðarnir voru
á ritaðir. Var talið, að reykurinn stigi
til himins sem boðskapur til Kwan Tung,
guðs þess, er hann skyldi hér eftir helga
líf sitt.
Síðan var kjúklingurinn tekinn og
snúinn úr hálsliðnum. Því næst var
skorið í bringu hans og blóðið látið
renna í bikar, sem hálffullur var af
hrísvíni.
Því næst var gerð skinnspretta á
úlnlið inntökuþega og blóði hans einnig
blandað í bikarinn.
16 FÁLKINN
„Nú hefur blóð þitt runnið saman við
blóð bræðranna,“ tónaði einn hinna
kuflklæddu. „Meðan þeir lifa, lifur þú.
En deyi þeir, munt þú og einnig deyja.“
Bikarinn gekk nú milli manna, og'
allir tóku sér vænan teyg af þessum
beizka drykk.
Með þessum hætti gerðist „Litli 49“
nýliði, og ávann sér með því leyfi til
að stunda vasaþjófnað í vissu hverfi inn-
an umráðasvæðis flokksins.
Fyrir nokkrum mánuðum síðan voru
þrír af meðlimum bófaflokksins leiddir
fyrir rétt. Höfðu þeir þvingað sjö hundr-
uð ungra manna til að selja einkasjúkra-
húsum blóð úr sér. Síðan höfðu þeir
stungið í sinn vasa helmingi af and-
virði hinna tilneyddu blóðgjafa. Meðal
þessara ungu manna var átján ára gam-
all piltur, er á tveim árum hafði verið
neyddur til að láta sextán sinnum af
blóði sínu, enda þótt læknar telji var-
hugavert að gera það oftar en tvisvar
á ári.
Nýlega hefur annað mál verið upp-
lýst. Það var út af „vændarfé“, er kaup-
manni nokkrum var gert að greiða. Upp-
hæðin var fimm Hongkong-dalir á mán-
uði. Yrði hún ekki greidd, var honum
að vísu ekki ógnað með beinum hefndar-
ráðstöfunum, en ýmis óþægindi myndu
þó að honum steðja.
Grænmeti myndi hverfa og viðskipta-
menn kvarta yfir rangri vigt á iðrum.
Ýmsar vörutegundir myndu ef til vill
skemmast, fyrir þá sök, að yfir þær
helltist sýra eða paraffín með dular-
fullum hætti.
Féð var því að jafnaði af hendi greitt,
til þess að fyrirbyggja taprekstur á
verzluninni.
Tveir aðrir Triad-bófar lentu í fang-
elsi fyrir þá sök, að þeir höfðu kennt
börnum, sem bursta skó, að betla við
Fenwikcstreet-skipakvína. En þar ganga
amerískir sjómenn jafnaðarlegast á
land.
Síðan urðu drengir þessir að láta
þriðjung peninganna af hendi við „hjálp-
armenn“ sína.
Eitt sinn stöðvaði bófi nokkur úr '1
flokknum tvo sjö ára drengi á götu, og
heimtaði að þeir gerðust meðlimir i
bræðralagsins.
Kannaði hann vasa þeirra og tók tíu
sent af öðrum drengnum. Hótaði hann
öðrum drengnum barsmíð ef hann ekki
færi heim og útvegaði peninga frá
vandamönnum sínum. Drengurinn hljóp
dauðhræddur heim til sín, stal tíu Hong-
kong-dölum frá ömmu sinni og fékk
bófanum.
Ekki var hann ánægður með það. -—
Heimtaði hann nú vínflösku. En er
drengurinn kom í heimsókn á ný, hafði
þjófnaðurinn verið uppgötvaður, og var
þá piltur tekinn til yfirheyrslu.
Svo vildi til, að faðir barnsins var
lögregluþjónn, og heppnaðist honum að
hafa hendur í hári glæpamannsins. Var
hann síðar dæmdur í þriggja ára fang-
elsi.