Fálkinn - 23.11.1960, Blaðsíða 17
ÞVÍ er svo varið með þrenninguna
sem fleiri leynisambönd, að það á með
nokkrum hætti rætur að rekja til þjóð-
erniskenndar, og arfsagnir félagsins um
veldi þess standa djúpt.
Uppruna þess má rekja aftur til seytj-
ándu aldar, en þá var hið fyrsta bræðra-
lag stofnað af 108 kínverskum munk-
um. Var því skipt í þrjá hópa, er allir
stóðu saman að því að skipuleggja and-
spyrnuhreyfingu gegn hinni illræmdu
Manchu keisaraætt.
Áttu sumir helgisiðir sambandsins
að minna á píslarvætti munkanna, og
sögur eru til, ærið flóknar, um borg
eina, sem gjörð var af pílviðarteinung-
um, en byggð tveim hershöfðingjum,
nokkrum karlguðum og gyðjum og ein-
um svikara.
Síðar á árinu, eða 1912, hjálpaði Tri-
ad-sambandið til að steypa ætt þessari
af stóli, en í borgarastríðinu kínverska
börðust meðlimir þess í báðum herjum.
Raunveruleg völd fékk það ekki i
hinni brezku krónunýlendu, fyrr en ár-
ið 1949, er kommúnistar höfðu náð mest
öllu Kína á sitt vald og allt að því ein
milljón flóttamanna kom til borgarinn-
ar Hongkong.
Meðal þeirra voru Triad-bófarnir.
Þúsundir flóttamanna þessara voru
auðvitað atvinnulausir, og margir þeirra
eyddu aurum sínum í ávexti, sem þeir
svo reyndu að selja á götunum með
hagnaði. En þeir ráku sig fljótt á þá
staðreynd, að þeir gátu ekki stundað
þessa verzlun, nema með því að borga
bófaflokkinum skatt.
Enginn þorði að segja neitt, af ótta við
fjárkúgun, og lögreglan stóð ráðalaus.
Leynisambandið óx og dafnaði án af-
láts, ekki sízt fyrir þá sök, að hundruð
ungra manna hrifust af dulúð helgisat-
hafna þess, og útlitinu fyrir auðfengna
peninga.
Ýmsar deildir sambandsins lentu oft
MYNDIR: Kínverska bræðralagshreyf-
ingin kúgar fé af efnuðum borgurum
með því að hóta þeim barnaránum. Hún
stendur einnig fyrir allri eiturlyfjasölu.
í slagsmálum sín í milli, um „feita bita“,
svo sem miklar umferðagötur. Komst
slíkt í hámark hinn 10. okt. 1956, en það
er sjálfstæðisdagur þjóðernissinna i
Kína.
Miklar kröfugöngur fóru um götur
borgarinnar og komst lögreglan í kast
við eina þeirra. Greip Triad-sambandið
tækifærið þegar í stað, og breiddi út
þann orðróm, að lögreglan ætlaði sér að
koma í veg fyrir hátíðahöldin.
Af þessu leiddi einhverjar verstu
róstur, sem um getur í sögu Hongkong,
— þriggja daga blóðbað, er kostaði 59
manns lífið, auk þess sem mörg hundruð
manna særðust og limlestust.
Hefndarráðstafanir gegn lögreglunni
drógu dilk á eftir sér, því eftir að upp-
þotið var um garð gengið, hófust hand-
tökur í stórum stíl, sem ekki linnti fyrr
en sex þúsundir manna höfðu verið
teknir fastir, þar á meðal fjöldi Triad-
bófa.
Við þetta minnkaði frægðarorð klík-
unnar um sinn, en nú hefur hún verið
endurskipulögð og er öflugri en nokkru
sinni fyrr.
EITURLYFJASMYGLIÐ, sem Triad-
klíkan rekur, á alveg sérstaka sögu.
Austurlönd komust fyrst í kynni við
eiturlyf árið 1650, er Hollendingar
fluttu ópíum og ópíumreykingar til For-
mósu. En þaðan barst siðurinn til meg-
inlandsins.
Árið 1800 lagði Kínakeisari bann við
því að rækta ópíumjurtina í landinu, og
sömuleiðis við innflutningi eiturlyfja er-
lendis frá. Enska Austurindíafélagið
lagði þegar í stað niður flutning þess á
eigin skipum, en hélt hins vegar áfram
að selja öðrum kaupmönnum eiturlyf,
er smygluðu þeim síðan til Kína.
Þetta ár var um það bil tvö þúsund
kössum af ópíum smyglað inn í landið,
en árið 1836 hafði smyglið aukizt upp í
26.000 kassa.
Árið 1839 hernámu Englendingar
Hongkong-eyjuna og gerðu hana að mið-
stöð ópíumsmyglsins. — Draumsóleyjar,
sem efnið er unnið úr, voru ræktaðar
á Indlandi og greiddar með kínversku
silfri. En brátt varð hinn sífelldi straum-
ur úr landinu af þessum verðmæta
málmi svo gífurlegur, að áhrifa þess tók
að gæta á verðlagsgrundvelli kínverska
ríkisins. Sendi þá Kínakeisari trúan og
öruggan embættismann til Kanton, sem
landstjóra sinn.
Framh. á bls. 34.
I Kína er starfræktur félagsskapur, sem
fremur afbrot r nafní bræðralags og
þjóðrækni og er orðinn geysivohlugur
FALKINN
17