Fálkinn - 29.03.1961, Qupperneq 5
' p
j// ■
að þung refsing getur legið
við letinni?
Letin hefnir sín að jafnaði
sjálf, á þann hátt að sá lati
fe.r á mis við þau lífsins gæði,
sem hann að öðrum kosti
hefði getað aflað sér. En aðra
refsingu sleppur sá lati við,
það er að segja á VesturlöncL
um. En þar sem kommúnist-
ar ráða er þessu öðruvísi var-
ið. Þar verða menn að vinna,
annars kemur refsingin í
Praha var t. d. fyrir skömmu
maður dæmdur í 12 mánaða
fangelsi fyrir leti.
að ein fegursta og dýrasta
bygging veraldar er í Burma?
Shwedagon-pagóðan í
Rangoon er Búdda-musteri,
og á hárlokkur af Búdda að
vera í hornsteininum, sem
var lagður fyrir 2500 árum.
Síðan hefur musterið verið
stækkað sí og æ. Turninn á
því er 110 metra hár og al-
þakinn gulli, en í toppinum
eru kynstur af eðalsteinum.
GAMLAR
AUGLÝSINGAR.
Það getur oft verið gaman
að blaða í gömlum blöðum,
sérstaklega, ef þau eru nógu
gömul. Eftirfarandi auglýs-
ingar eru úr dagblöðum frá
1907:
Thomsens Magasin, Vefn-
aðarvörudeildin, mælir með
sér sjálf. Búðin er einhver
sú skrautlegasta hér á landi.
Hún er 50 álna löng, þó áttar
hver og einn sig strax, þegar
hann kemur inn í dyrnar og
ekki þarf að villast úr einu
horninu í annað. Vörurnar
eru bæði miklar og marg-
breyttar og sérstaklega vand-
aðar og ódýrar. Þetta getur
hver sannfært sig um sjálf-
ur, með því að koma þangað
og skoða sig um.
Thomsens Magasin.
Hótel ísland. Veitingastof-
an Dagsbrún er opnuð til af-
nota. Frá klukkan 6 á morgn-
ana til klukkan 10 á kvöldin
fæst þar:
Kaffi .......verð 10 aurar
Kaffi með brauði— 15 —
Glas af mjólk . . — 10 —
Glas af mjólk
með brauði . . — 15 —
700 króna stórþjófnaður
var framinn nýlega hjá kaup-
manni G. Zoéga. Það er eng-
in gróðavon að slíkum skolla.
Ef þið viljið verulega græða,
þá komið þið um hádegisbil-
ið inn um búðardyrnar og
kaupið nauðsynjar ykkar hjá
B. H. Bjarnason.
Kína-lífs-elixír Vald Pet-
ersens. Taugaveiki, svefn-
leysi og lystarleysi. Hefi leit-
að margra lækna en árang-
urslaust. Fór því að reyna
ekta Kína-lífs-elixír Valdi-
mars Petersens og fór að
batna til muna, er ég hafði
tekið inn úr 2 flöskum.
Smiðjustíg 7, Reykjavík,
Guðný Aradóttir.
— 1246 á sjálfan páskadag-
inn hittu kaþólski prelátinn
Caprini og tveir af meðhjálp-
og bræddan snjó og það hef-
ur rómverskum preláta þótt
rýr kostur.
— 1721, um það leyti senei
páskahátíðin gekk í garð,
varð óskaplegur jarðskjálfti
í Persíu. Heilir bæir jöfnuð-
ust við jörðu, hrundu í einu
vetfangi eins og spilaborgir
og óttaslegið fólkið reyndi að
flýja. Samtímis þessum
hörmungum geisaði hið
versta fárviðri og gerði það
að verkum að eldsvoðar
breiddust út víða um hinar
urum hans herdeildir tatara-
höfðingjans Batusar við
Volgu. Þessir menn voru
komnir alla leið frá Róm og
voru á leið til stórkansins til
þess að ræða við hann um
hinn ískyggilega framgang
Mongólanna. Hjá Batusi áttu
þeir félagar náðuga dag, átu
og drukku eins og þeir gátu
í sig látið. Það veitti sannar-
lega ekki af þessari hress-
ingu, því að næsti áfangi tók
þrjá og hálfan mánuð og sú
för einkenndist af sulti og
öðrum hörmungum. Lengi
vel höfðu þeir ekki annað
sér til matar en eilítið korn
hrundu borgir. Munu hafa
farizt í þessum jarðskjálfta
tugþúsundir manna.