Fálkinn


Fálkinn - 29.03.1961, Side 10

Fálkinn - 29.03.1961, Side 10
Hún þurfti ekki að líta til dyranna til þess að fá vissu sína fyrir því, að hann var kominn. Enda þótt hurðin opn- aðist í sífellu fyrir þeim, sem komu og fóru, fann hún gegn vilja sínum blóðið streyma örar í æðum sér og allt fá annan blæ við komu hans. Inga sendi honum bros, sem hún hélt að væri töfr- andi, um leið og hún renndi mjólkur- hristing í hátt glas og stakk ofan í það strái. Erna reiddist þessu stórlega, því að hún var farin að líta á hann sem sína einkaeign. Hún setti fyrir hann kaffibollann og tók eftir því um leið, að búið var að gera við rifuna, sem hafði verið á jakkanum hans daginn áður. Eftir handbragðinu að dæma hafði hann gert Það sjálfur. Augu þeirra mætt- ust. Hann virtist ekki taka nærri sér athugun hennar, því að brosi brá fyrir í augum hans, og hún fann hita læsast um sig undir augnaráði hans. — Háspenna, lífshætta, sönglaði Inga og sveiflaði mjöðmunum lokkandi um leið og hún gekk fram hjá þeim. Augna- ráðið, sem hún sendi honum, gaf mörg og stór fyrirheit, en hann sá það ekki. Erna hafði hann á tilfinningunni með- an hú afgreiddi aðra gesti, sem settust við barinn. Hvert smáatriði í útliti hans var henni kunnugt. Sterklegar hendur hans og mikið, brúnt hárið, ásamt þess- um hræðilega jakka og buxum, sem eflaust höfðu ekki komizt í kynni við pressujárn síðasta mannsaldurinn, kom fólki til að gruna, að hann væri lista- maður. Erna andvarpaði þegar hún hug- leiddi þann leiða sannleika, að það væru smámunir þó svo væri, ef hann mál- aði myndir, sem einhver vildi kaupa. En þessir óskapnaðir! Hún andvarpaði aftur, því að henni kom það ekki vit- und við, þótt hann yrði fátækur fram- vegis. Hún ætti að láta sér á sama standa, því að hennar líf yrði á annarri bylgjulengd. Hún var fyrir löngu búin að gera áætlun um framtíðina, og þeg- ar kona gerir áætlun, er það venjulega í sambandi við giftingu. Hún var stað- ráðin í að ná sér í ríkan mann, og þar sem allir karlmenn, sem voru sæmilega laglegir, voru jafngóðir í hennar aug- um, sá hún enga ástæðu til að láta ekki hagsýnina ráða. Og með ákveðn- um vilja, dálitlum yndisþokka og sak- lausum smábrögðum, sem venjulega fylgja slíku, var hún á góðum vegi með að láta drauminn rætast. Draumurinn var Þórir. Hún var alltaf hreykin af honum, þegar hann kom inn á barinn, því að klæðnaður hans var vandaður og laus við spjátrungshátt, og hún hafði gaman af forstjórasvip hans og yfirlæti. ★ Hún veiddi bollana upp úr vaskin- um og horfði áhyggjufull á hendur sín- ar og nýlakkaðar neglur. Þórir hafði minnt hana á það, að rauðar vinnu- konuhendur færu ekki vel við sam- kvæmiskjól, og hún fann að Það var rétt athugað. Inga skellti bakka með vínarbrauð- um á borðið innan við barinn: — Ertu ekki alveg í öngum þínum út af aumingja stráknum? Jeminn, ég dræpist af hræðslu, ef ætti að fara að skera mig upp. Erna gerði smell með tyggigúmmíinu: -—■ O, ég hef nú aldrei heyrt að botn- langaskurður væri lífshætta. — Guð hvað þú ert kaldlynd! Ég gæti bezt trúað þér til að fara á séns meðan hann liggur á spítalanum. Inga gaf glaðlegum svip Ernu gremju- legt augnatillit. Hún beið þess í ofvæni, að Viðar kæmi. Hann virtist skynja þessa eftir- væntingu hennar, þegar hann kom, og enn einu sinni furðaði hún sig á því orðlausa sambandi, sem tengdi þau sam- an. Inga gaf þeim strengilegt augna- skot og vanþóknunin var uppmáluð í svipnum. Viðar virti hana fyrir sér og leit síðan á Ernu og skellti upp úr: — Á hún að gæta dyggða þinna fyr- ir grósserann? Hann hallaði sér að henni og leit djúpt í augu henni. — Það verður erfitt. Ég hef ákveð- ið að leiða þig afvega meðan tími vinnst til. Erna leit á hann með vanþóknun, en fann um leið til ánægju, því að þetta var einmitt í samræmi við hennar eig- in ráðagerðir. Hún sannfærði sjálfa sig um, að þetta væri hið eina rétta. Hún gæti ekki gifzt Þóri meðan hún hugs- aði ekki um annað en Viðar, og eina leiðin til að hún hætti því, væri auð- vitað sú, að hún fengi leiða á honum og sæi með eigin augum, hvað hann væri lítils virði í samanburði við Þóri. Hún andaði djúpt og þandi út brjóstið og fann léttan skjálfta fara um sig við tilhugsunina um þessa ánægjulegu að- ferð til að koma málum sínum á fast- an grundvöll. Þau gengu hægt um mannfáar göt- urnar og nutu návistar hvors annars. Léttar snjóflygsur svifu rólega til jarð- ar og settu hreinleikasvip á umhverfið og Erna hugleiddi, hvort það væri ástæða ánægju hennar, sem minnti hana einna helzt á jólatilhlökkun. Hún tók upp lykilinn eftir óvenju litla leit og benti Viðari að hafa ekki hátt. Konan, sem hún leigði hjá, hafði margoft látið hana vita hverslags álit hún hefði á kvenfólki, sem kom heim með karl- menn um miðjar nætur. Slíkar mann- eskjur fengju ekki leigt hjá sér, og Erna tók álit hennar til greina á þann hátt, sem henni hentaði bezt. Viðar tók hana í fangið, bar hana upp stig- ann og reyndi eftir beztu getu að vera léttstígur. Hún kveikti á gólflampa, sem stóð við lítinn hægindastól, eina stól- inn í herberginu, og benti Viðari á að fá sér sæti, meðan hún hengdi upp kápuna sína og fór úr vinnufötunum. Hún stóð bak við skáphurðina meðan hún hafði fataskipti og klæddi sig í slopp, sem sannarlega var engin tízku- flík. Hún hefði fyrr látið lífið en láta Þóri sjá sig í honum. En hún vissi, að Viðar mundi ekki finna að þessu við hana. Hann reykti í ákafa og virti fyrir sér hreyfingar hennar og dáðist að hvít- um og fallegum fótum hennar með ljósrauðum tánöglunum, þegar hún smeygði þeim ofan í inniskó, sem virt- ust ekki alveg nýir af nálinni. Hún lét fallast ofan í sófann. Ný smásaga eftir nýjan íslenzkan höfund, sem kallar sig Mögnu Lú&víksdóttur. 10 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.