Fálkinn


Fálkinn - 29.03.1961, Qupperneq 11

Fálkinn - 29.03.1961, Qupperneq 11
— Ég er satt að segja alveg dauð- uppgefin, sagði hún og' nuddaði á sér fótlegginn. — Guð, ég er svo hrædd um að ég fái æðahnúta af öllu þessu t rölti allan daginn. -— Fyrirgefðu annars. Þetta er víst nokkuð, sem maður talar ekki um við herra og þar að auki um miðja nótt. Hann tók fót hennar í hönd sína og strauk upp fótlegg hennar föstum tök- um. Hún furðaði sig á, að það var ekkert áleitið við snertingu hans, að- eins blíða, og hún fann þreytuna hverfa fyrir þessum sterklegu og þó mjúklegu handtökum. Hann sleppti fót hennar allt í einu: — Ég hafði nú ekki hugsað mér að svæfa þig svona. Þér er alveg óhætt að þvo af þér sminkið, þótt ég horfi á þig. Ég er öllu vanur. — Jæja, sagði hún og sendi honum reiðilegt augnaráð. — Hvar er ég þá í röðinni? Hann hló lágt: — Þér fer ekki vel að vera með af- brýðisemi, góða. Þú veizt að ég er mál- ari, og málarar eru oft neyddir til að hafa kvenfólk sér til aðstoðar. Hún þreif andlitsþurrkuna reiðilega: — Þú ætlar kannski að telja mér trú um að þú málir abstraktmyndir af beru kvenfólki. Hann varð kíminn á svip: — Ég talaði ekkert um bert kven- fólk, en ég á margar systur og þær eru alltaf með þetta snyrtidót á lofti. Ég hélt kannski að þú værir eins. Á Þórir engar systur? Hún leit á hann tortryggnisaugum, en hann var ekkert nema sakleysið á svipinn, og allt í einu sá hún hvað þetta var kjánalegt. — Svei mér, ef við rífumst ekki eins og við værum búin að vera gift í mörg ár. Hann var skyndilega búinn að íá nóg af þessu dundi hennar og tók þurrk- una úr höndum henni: — Þú segir nokkuð, En þegar við verðum búin að vera gift í mörg ár, verðum við alveg hætt að rífast. Hún fann heitar varir hans á hálsi sér og berum öxlum og sloppurinn datt eins og af sjálfu sér á gólfið. Hún fann líkama sinn sveigjast eftir hans, án þess hún réði við gerðir sínar, og henni fannst hann sýna óþolandi seinlæti, Framh. á bls. 30.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.