Fálkinn - 29.03.1961, Qupperneq 19
t
t
\;
j
sveitina frá samgöngum á landi, og Þangað austur verður
ekki komizt á bifreiðum nema stuttan tíma vor og haust og
þá því aðeins að bifreiðarnar séu byggðar til að svamla yfir
straumhörð vötn og skrönglast á stundum eftir óvissum og
þungfærum götuslóðum.
Sérkennilegu landslagi og náttúrufegurð er við brugðið á
þessari leið og áreiðanlega þess vert, að nokkuð sé á sig lagt
til að sjá það. Og í fjölmennri hópferð kemur líka margt
skrítið og skemmtilegt fyrir. Þegar áð er á sérkennilegum eða
þekktum stöðum, er gjarnan farið í leiki, t. d. er fótboltinn
tekinn fram og leika þá allir knattspyrnu af miklum ákafa
og má oft sjá þar margt glæsilegra tilþrifa og er skaði að yfir-
leitt ekki skuli vera til staðar fulltrúi frá landsliðsnefnd,
þegar þannig stendur á. Á kvöldin er svo gjarnan slegið upp
,,balli“, þar sem áð er, því alltaf er einhver svo forsjáll að
hafa tekið með sér hljóðfæri, gítar eða harmoníku. Og þannig
líður páskahelgin hjá þessum ferðalöngum í glaumi og gleði.
FÁLKANUM fannst tilvalið að birta nokkrar þessara mynda
einmitt nú í páskablaðinu, þegar fjölmennur hópur ferða-
fólks leggur enn af stað í páskaheimsókn til hins fámenna
byggðarlags í Öræfum.
Samkomuhúsið að Kirkjubæjarklaustri er stórt og rúm-
gott og um páskana í fyrra sváfu um 100 manns í svefn-
pokum á góifinu (neðri mynd). Forvitinn ferðalangur
handlangar sig upp á Systrastapa (efri mynd).
spjall um páskaferð
í fyrra með Úlfari