Fálkinn


Fálkinn - 29.03.1961, Side 22

Fálkinn - 29.03.1961, Side 22
Tvær glæstar páskakonur Auðvelt er að útbúa þessar tvær kerl- ingar. Málið hár, augu, munn og nef á tvær tómar eggjaskurnir. Látið litina þorna óg klippið bolinn á meðan, notið gylltan pappa. Teiknið hring 30 sm í þvermál, klippið hann út og skiptið honum í tvennt, þannig að nú hafið þið tvo hálfmána, sem brjóta á sem keilur. Límið samskeytin eða festið þau saman með glærum límpappír. Klippið af mjórri endanum, svo að eggjaskurnirnar geti setið. Skreytið svo konurnar eins og mynd- in sýnir. Notið til þess millileggsserví- ettur úr pappír (fást í ritfangaverzlun- um). Límið höfuðskrautið, kragann og leggingarnar á bolinn. Til þess að festa höfuðið skulið þið reka trépinna upp í skurnina, og festið síðan neðri enda pinn- ans með límpappír innan á bolinn að neðanverðu. Til að festa páskaliljunum er skorin rifa á bolinn og þeim stungið þar í. Hafi páskakonurnar nokkuð öryggan sama- stað, er hægt að koma litlu vatnglasi fyrir undir bolnum og þá fölna blómin síður. Ungar í hreiðrum Límið tvö mjó silkibönd innan á hvorn eggjahelming, hnýtið slaufu úr endun- um og hengið skurnirnar á útsprungnar hríslur. Setjið gula unga í hreiðrin. — Ef vill er hægt að byrja á því að mála hreiðrin alla vega lit í fölum litum eða röndótt og doppótt í skærum litum. Eplaábætir 50 g. rúsínur, 8 epli, Sykurlögur, % sítróna, 8 stórar makkarónur, Vanillubráð: 5 dl. mjólk, % tsk. vanilla, 3 egg, 1 msk. sykur, 2 blöð matarlím Hnetur. Rúsínurnar lagðar í bleyti yfir nótt (helzt í madeira). Eplin flysjuð, nudd- uð með sítrónu, kjarnhúsið tekið úr. Soðin í sæt-súrum legi, þar til þau eru meyr en heit. Kæld. Eplin fyllt með rús- ínum, makkarónum raðað í djúpt fat, eplin sett ofan á. — Mjólkin hituð, eggin þeytt með sykrinum, hellið sjóðandi mjólkinni saman við, hrærið vel í um leið. Sett í pottinn á ný á lægsta straum, þeytið stöðugt í, annars getur bráðin meirnað. Þegar bráðin byrjar að þykkna, er potturinn tekinn af og út- bleytt matarlímið og vanillunni hrært saman við. Hrærið í, þar til bráðin hef- ur kólnað dálítið. Brúnið_ 150 g. af sykri á pönnu, hellið IV2 dl. af vatni á pönn- una og sjóðið saman. Þegar karamellan er orðin köld, er henni hrært saman við vanillubráðina. Hellt í fatið, ekki yfir eplin, söxuðum hnetum stráð yfir. Af- gangurinn af vanillubráðinni borin með í könnu.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.