Fálkinn


Fálkinn - 29.03.1961, Blaðsíða 24

Fálkinn - 29.03.1961, Blaðsíða 24
LITLA SAGAN AÐVÖRUN Þegar hinn álitsvaxandi sænski Norr- lands-málari hafði opnað í Stokkhólmi sýningu sem vakti athygli, kynntist hann blóðríkri konu, og skemmtunin nóttina eftir varð taumlaus. Þetta var kringum 1945. Norrlandsmálarinn varð á svipstundu gagnhrifinn af hinni nýju vinkonu sinni, sem kynnti sig undir nafninu „Katja“. Hún talaði svo skemmtilega með einhverjum útlend- um málhreim, en úr hvaða máli hann var, þótti flestum erfitt að gera sér grein fyrir. Hann hafði gaman af öllu þessu fáránlega, sem henni datt í hug. í stuttu máli: hún hafði glensið í augnakrókunum. Morguninn eftir vaknaði Norrlands- listamaðurinn með hræðilegan höfuð- verk. Enda var það ekkert smáræði, sem hann hafði belgt í sig af viskíi um nóttina, ásamt vinkonu sinni, gest- inum hans. Hvar skyldi hún vera núna, hugsaði hann með sér. Þeim hafði þótt svo einstaklega unaðslegt að vera saman. — En svo fór hann að hugsa um ýmislegt annað, sem hafði gerzt í gær. Þetta hafði að flestu leyti verið ein- stakur gæfudagur. Hann hafði selt Þó nokkur málverk á kynningaropuninni, sum þeirra fyrir peninga út í hönd, aðrir höfðu borgað ákveðinn hlut, til þess að tryggja sér listaverkið. Hann mátti til með að líta í veskið. Þar hlaut hann að eiga 30 þúsund krónur, að minnsta kosti. Hann opnaði veskið sitt, og nú var líkast og klakadröngull væri að hrynja niður eftir hrygglengjunni á honum. Ekki nokkur seðill í vasabókinni! Hann leitaði eins og óður maður um alla íbúðina og á öllum felustöðum, ef ske kynni að hann hefði viljað fela veskið einhversstaðar. Árangurslaust. Pening- arnir voru horfnir. Og nú sá hann allt í einu sannleikann. Það hafði ver- ið stolið af honum. Og hver gat þjóf- urinn verið, nema hinn fagri nætur- gestur hans? Hann hringdi niður í gistihússkrifstofuna. Því er ekki að neita, að fólkið þar varð dálítið gramt yfir þessu, en alls Hér birtist lausnin á 10. verðlaunakross- gátunni. Verðlaunin hlýtur: Rósa Jens- dóttir, Laugarnesvegi 102, Reykjavik. X X X Þ J ó F A R X Á X L X X X X X X X X X F Y L L R P X G X X X X X X X S K R A F S E I X X X X X X X X U X X X T I N X X X X X X X A G N A R S K X X s K R Æ L I R X •u R Á Y X H X A R A B I X F X T I N N A N X G A U L X G U S I S E I G A X N U P E X K R A M I N N X L H I P X S Á R X L A G X G A L K R 0 S S G Á T U M A Ð U R X X X X X X X X A T A X X X I N X X X X X X X K X N Á M I N U ekki hissa. Um nokkur skeið hafði oft verið kært yfir þjófnaði, svo að þarna var auðsjáanlega ,,hótelrotta“ að verki. En aldrei hafði hún látið eftir sig verksummerki, sem nokkuð var á að græða. Gistihúsið taldist í flokki al- þjóðlegra gistihúsa — þarna gisti fólk af margs konar þjóðerni, og af því að gistihússtjórnin vildi ekki láta neitt misjafnt verða að þjóðsögu eða kjafta- kerlingamat, hafði hún bitið í súra eplið og kosið að borga bætur fyrir stuldina í kyrrþey. Þetta hafði oftast verið smáhnupl. En 30 þúsund krónur voru alvarlegra atriði. Ekki gat Norrlandslistamaðurinn gef- ið neina lýsingu á þeim, sem hann hefði ástæðu til að gruna. Hann bar því við, að hann væri nærsýnn, og svo hefði áfengisneyzlan vitanlega sljóvgað minnið. Hann vissi ekki ann- að en að hún væri útlendingur, en það voru margir útlendingar í gistihús- inu. Hvern dirfðist maður að gruna? Lögreglan var beðin um að taka mál- ið að sér. Hún hafði aðeins ógreinilega slóð að rekja. Fagra dísin kunni sína iðn vel, en svo uppgötvaðist vísbend- ing. Á pappaspöldunum undir tómu flöskunum á borðinu hans fannst alls konar krot, og sumt af því var ekki listamannsins verk. Það var sams konar krot og margir óþolnir menn gera sér til dundurs þeg- ar þeir eru að bíða eftir að fá samband í síma. Ýmsir sálfræðingar halda því fram, að þetta séu skilaboð frá undir- meðvitundinni, og á þeirri kenningu gat lögreglan byrjað leitina. Krotið og párið gat túlkazt sem frumdrættir að flöggum eða einhvers konar táknum. Lögreglan veitti einni gerðinni sérstaka athygli, því að hún kom aftur og aftur: þetta var tvískipt- ur rétthyrningur með jafnhliða þrí- hyrningi í annan enda myndarinnar. Tékkneska flaggið er þannig gert. Kona af þessu Þjóðerni var þarna í gistihúsinu, en aldrei hafði hún verið grunuð um neitt misjafnt. Hún hagaði sér jafnan hæversklega, bjó í einu af ódýru herbergjunum og borgaði alltaf stundvíslega í lok hverrar viku. Þegar leit var gerð í herbergi henn- ar fundust þar 30 þúsund krónur í óhreinum sokkbol. Og á minnisblokk- inni hennar sáust margar myndir sömu tegundar og verið höfðu á pappahlíf- inni undir flöskum listmálarans. Nú var hægt að byrja að draga saman nótina. Konan var handtekin og bar það, að hún hefði fengið peningana að gjöf áður en glaumnóttinni lauk. Norr- landsmálarinn varð að biðja um að hætta málarekstrinum. En það bjarg- aði ekki konunni. — Öryggislögreglan hafði skorizt í leikinn og von bráðar höfðu fengizt sannanir til að dæma hana fyrir „ólöglega fréttasöfnunar- starfsemi“. Hún var njósnari og var síðan gerð landræk, en andstæðingar hennar skutu hana í styrjaldarlokin. í lok síðustu styrjaldar hitti ég ungan bandarískan fallhlífarhermann í Eng- landi. Eins og margir fallhlífarhermenn var hann fremur grannvaxinn, en stælt- ur og herðabreiður. Þó að hann væri varla tvítugur hafði hann þegar fengið margar orður. Ég gaf mig á tal við hann, og spurði hvort hann hefði ekki frá neinu óvenjulegu að segja. Hann var ofurlítið feiminn til að byrja með, en það leið ekki á löngu áður en við töluðumst við eins frjálslega og gamlir vinir. Og síðan sagði hann mér óvenju- lega sögu, þar sem hann fór með eitt að- alhlutverkið. Sólarhring fyrir „innrásina“ var flokkur valdra manna sendur niður í fallhlíf yfir Normandí. Þessi ungi Bandaríkjamaður var einn þeirra. Hann var óheppinn og bar af leið marga kílómetra frá staðnum þar sem þeir áttu að safnast saman á. Þetta var rétt fyrir dögun. Hann fann ekkert þeirra kennileita, sem hafði verið lýst nákvæmlega fyrir honum áður en ferð- in hófst. Enginn félaga hans var sjáan- legur. Hann blés í flautu, sem átti að kalla saman flokkinn í slíku tilfelli. Hann hlustaði eftir svari. Það kom ekki. Hann beið taugaóstyrkur í nokkrar mín- útur og flautaði síðan aftur. Ekkert svar. Nú vissi hann að áætlunin hafði mistekizt. Hann var einn, aleinn í landi hersetnu af óvinum. Hann vissi að hann yrði að leita skjóls. Hann hafði komið niður við vegg í fallegum velhirtum á- vaxtagarði. í grárri morgunskímunni sá hann lítið sveitabýli rétt hjá. Rautt þakið stóð upp fyrir trén. Hann hafði ekki hugmynd um hvort heimilisfólkið var á bandi Þjóðverja eða bandamanna, en hann varð að freista gæfunnar. Hann hljóp í áttina að húsinu, og æfði sig á þeim frönsku setningum sem hann hafði lært, og myndu koma að haldi í neyðar- tilfelli sem þessu. Hann barði að dyrum, og kona um það bil þrítug opnaði dyrnar. Hún var engin fegurðardís og hún var ekki bros- leit, en augu hennar báru vott um ró- lyndi og vináttu. Fjölskyldan sat við morgunverðarborðið, og minnsta barn- ið sat í háum stól og starði undrandi og hissa á ókunna manninn. „Ég er bandarískur hermaður," sagði fallhlífarhermaðurinn. „Viljið þér fela mig?“ „Já, auðvitað," svaraði konan og dró hann innfyrir. „Fljót, við verðum að flýta okkur, sagði maður hennar. Hann tróð her- manninum inn í stóran skáp við hliðina á eldavélinni. og lokaði hurðinni á eftir honum. Fáeinum mínútum síðar komu Þjóð-

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.