Fálkinn - 29.03.1961, Síða 26
PASKA-
LEIFTUR
Hún er svo lánssöm þessi litla
stúlka að eiga heima á stórum
bæ uppi í sveit. Faðir hennar á
stórt og myndarlegt hænsnabú og
stundum, þegar ungarnir eru að
koma úr eggjunum, fær hún að vera
viðstödd, og fátt þykir henni
skemmtilegra. En henni geðjast ekki
að því, þegar ungarnir eru teknir og
settir í litla kassa með loftgötum á.
Hún vatnar jafnvel músum, þegar hún
heyrir hræðslulegt tístið í þeim, litlu
greyunum. En brátt er allt gleymt, og
hún færnýja ungatil að leikasérmeð.
Ofurlág hljóð innan úr egginu
eru vísbending þess, að eitt-
hvað sé í vændum. Og mikið
rétt: Nú þeytast brot úr eggja-
skurninni í allar áttir og ofurlítill
fótur kemur í ljós. (Fyrsta mynd).
Nú gerist margt í einni svipan.
Eftir örfáar sekúndur sjáum við
ofurlítinn hnoðra, sem tístir ámát-
lega. Fátt er aumkunarverðara en
ungar, sem eru nýkomnir úr eggj-
unum eins og raunar allt annað
ungviði, jafnt dýra og manna.
(önnur mynd). — Og þá er þetta
allt um garð gengið. Unginn hvíl-
ir sig andartak, unz hann tekur
að svipast um í þessari stóru og
undarlegu veröld. (Þriðja mynd).
Frú Viola Ross í Stokkhólmi
settist til borðs og ætlaði að
gæða sér á soðnu eggi. Hún sló egg-
inu við og þá kom dálítið óvenjulegt
í ljós: Það var annað lítið egg innan
í því. Hún sendi þegar eftir ljós-
myndara og hér er ein af myndunum.
Frændur okkar Norðmenn njóta páskasólarinnar með því að fara á skíði
upp um f jöll og firnindi, á sama hátt og við hér heima gerum í stórum stíl.
Að öðrum íþróttagreinum ólöstuðum er fátt hressilegra og heilnæmara en
vel heppnuð skíðaferð.
»***