Fálkinn - 24.01.1962, Blaðsíða 4
séð & heyrt
Lítil sekt
Alls staðar eru sömu
vandkvæði á að leggja
bílum. Nýlega var 23 ára
gömul kabarettsöngkona,
Carola Mayner, leidd fyrir
rétt í London vegna þess
að hún hafði 54 sinnum
verið skrifuð upp vegna
umferðarbrota. En þessi
snotra ungmær gaf eftir-
farandi skýringu á fram-
ferði sínu: „Alltaf þegar
ég er búin að vinna og ætla
að leggja litla bílnum mín-
um, get ég aðeins lagt hon-
um í rólega götu. Samt
sem áður er þar ekki hægt
fyrir unga konu að ganga
nokkur skref án þess að
einhver komi ekki og bjóð-
ist til að fylgja henni heim.
Einnig hef ég lagt bílnum
í umferðargötum. En þar
er alls staðar klukka, sem
byrjar að mæla tímann kl.
8.30 á morgnana. En því
rnáður sef ég á þeim tíma.“
Hinir átján lögregluþjón-
ar, sem höfðu skrifað
söngkonuna upp og voru
mættir í réttinum, urðu að
viðurkenna, að söngkonan
hefði á réttu að standa. —
Dómarinn dæmdi því hina
fögru söngkonu í lítilfjör-
lega sekt. Og nú leitar
söngkonan eftir íbúð, sem
bílskúr fylgir með leig-
unni.
Enginn er eins alúðlegur í framkomu og Nehru. Einkum
nýtur hann hylli kvenna. Hann hefur nefnilega þann háttinn
á, að hann fullvissar hverja einustu konu, sem hann hittir,
um að hún sé sú fegursta, sem hann hafi séð. Meðan Nehru
var í heimsókn í Bandaríkjunum, gat embættismaður nokk-
ur í bandarísku utanríkisþjónustunni ekki setið á sér að spyrja
hann:
— Meinið þér nú alltaf, hr. Nehru, það, sem þér segið við
konurnar?
— Hm, svaraði hann. Ég ætla að trúa yður fyrir svolitlu.
Trú vor bannar lygi, en veitir þó tvær undantekningar: Þeg-
ar mannslíf er í hættu, og er maður slær konu gullhamra.
★
Einn hinna huguðu St. Bernharðshunda, sem hafa bjargað
lífi svo margra fjallafara með koníakssnaps, fór til dýralækn-
is síns.
— Mér líður alveg hræðilega, sagði hann, hvað getur ver-
ið að mér?
Eftir nákvæma rannsókn sagði dýralæknirinn: — Kæri vin-
ur, lifrin er hræðilega útleikin.
— Jahá, andvarpaði St. Bernharðshundurinn. Ég bjóst við
þessu. Þetta er afleiðingin af því að ég verð alltaf að drekka
meö mönnum, sem ég bjarga.
4
Þar sem John
Kennedy er forseti
verður hann að
gæta stöðu sinnar
og virðingar j hví-
vetna, en nánasti
;amstarfsmaður
íians og bróðir,
rtobert Kennedy
gefur sér oft lausan
tauminn.
Hann er orðinn
Erægur fyrir hinar
kátu veizlur, sem
hann heldur í hinu stóra húsi sínu í Wasing-
ton. í húsinu er að sjálfsögðu sundlaug, þar
sem mörg af skemmtiatriðum í veizlum hans
eiga sér stað. Robert Kennedy hefur nefni-
lega flutt til höfuðstaðarins sið frá Hollywood.
Hann lætur draga herra og dömur meðal
gestanna í samkvæmisklæðnaði út í laugina.
Nýlega lenti hin bráðfallega frú Nancy
Salinger út í lauginni en hún er eiginkona
blaðafulltrúa forsetans.
Hún varð ekkert hrifin af þessum grikk,
því að bæði hinn nýi og glæsilegi kjóll henn-
ar og hinir nýju samkvæmisskór hennar eyði-
lögðust.
Með tárin í augunum hvarf hún til eigin-
manns síns — og Salinger hefur spurt for-
setann , hvort hann geti ekki gefið bróður
sínum smá ráðningu.
★
Eins og kunnugt er,
í Picasso mörg hundr-
uð málverk eftir sig,
en því er ekki þannig
varið með vin hans
frá Parísardögunum,
Marc Chagall.
Hann fékk um dag-
inn heimsókn af
Bandaríkj amanni,
sem dáðist mjög að
málverkasafni meistarans, en sagði samt von-
svikinn:
— En ég sé ekki einn einasta Chagall.
— Chagall? sagði listamaðurinn. Hvert ætl-
ið þér að fara, kæri vinur? Chagall, -— ég
hef alls ekki efni á honum.
★
Fernandel sat dag
nokkurn með vini sín-
um á kaffihúsi í Mar-
seilles og skemmti
honum með því að
segja sögur af fjöl-
skyldunni.
— Skilurðu, mér
og konu minni kem-
ur yfirleitt mjög vel
saman, en um daginn
kom þó babb í bátinn.
Ég vildi skreppa upp
í sveit í hringferð, en
konan vildi fara í bíó.
Hvorugt vildi láta undan og við vorum næst-
um farin að slást.
— Nú, sagði vinurinn og hvernig fannst þér
myndin?
FALKINN