Fálkinn - 24.01.1962, Blaðsíða 26
o.
kvenþjóðin
ritstfon
KRISTJAMA
STEIIMGRÍMSDÓTTIR
Utfehœr er kjctif gegmm Ateikt?
Að vita hvenær steikin er gegnumsteikt, er eitt hið erfið-
ara í matreiðslunni, einkum þegar kjötið er frosið. Þótt kjötið
líti út steikt að utanverðu, getur það vel verið hrátt inn við
beinið. Hér kemur kjötmælir að góðu gagni.
Það hitastig, sem hinar ýmsu kjöttegundir þurfa, er merkt
inn á mælinn, þegar súlan, sem er á þessari gerð mæla, er
komin að því hitastigi, sem við á hverju sinni, er kjötið tilbúið.
Við steikingu á lambakjöti þarf 82° að vera inni í kjötinu,
svínakjöti 85°, nautakjöti 77° o. s. frv.
Hitamælinum er stungið inn í kjötið, þar sem það er þykk-
ast, þannig að öll nálin sé inni í sjálfu kjötinu. Oddurinn
má alls ekki nema við bein eða vera ef til vill í fitulagi, —
þá er mælinum ekki treystandi.
Stórt nef: Greiðið hárið í vöngunum jram
og látið nokkuð stóran ennistopp leggjast yfir
ennið. Hárið á að ná vel niður að eyrum. Greiði
maður hárið aftur, eða setji það upp, sýnist
nefið mun stœrra.
Stuttur hnakki: Hárið á að vera stuttklippt,
fylgja hnakkagrófinni. Aftur á móti á hárið að
fylla mikið á hvirflinum og ná niður að eyr-
um að framan, það gerir hnakkann grennri og
lengri á að líta. Sítt hár, blússur og kragar,
sem eru háir í hálsinn, stytta hins vegar háls-
inn á að sjá.
Stór eyru: Greiðið hárið þannig, að það fylli
mikið, en falli þó slétt, látið það falla í ógreini-
legri bylgju yfir eyrun. Greiðið aldrei hárið
frá eyrunum, og notið ekki eyrnalokka, sem
beina auðvitað athyglinni að eyrunum.
Of stór haka: Hárið á að ná niður að hök-
unni og falla mjúkt og eðlilega fram með vöng-
unum. Sé hárið mjög fínt og þunnt, verður að
þvo það á 5-6 daga fresti, ef vel á að vera. Haf-
ið þunnan ennistopp, greitt til hliðar. Varizt fyr-
ir alla muni að greiða hárið frá andlitinu.
@étt hátytetöMa
getur leifht
atujlitAf&llutn
Nú er svo komið, að flestum er orð-
ið ljóst, hve mikla þýðingu það hefur,
ekki aðeins fyrir hárið og andlitið held-
ur heildarsvipinn, að hárið sé vel klippt
og greitt. Sem betur fer sést nú sjald-
an hálfsítt hár, með ofmiklu og óvið-
ráðanlegu ,,permanenti“, sem ber ekki
aðeins vott um ósnyrtimennsku, en ger-
ir hvern og einn að minnsta k.osti 10
árum eldri í útliti. Auk þess sjá nú
margir, að rétt hárgreiðsla getur hjálp-
að til við að draga úr og jafnvel leyna
ýmsum andlitslýtum, eins og stóru nefi,
of stórum eyrum, stuttum hnakka, svo
eitthvað sé nefnt.
26
FÁLKINN