Fálkinn - 24.01.1962, Síða 35
— Getur verið, ef ég er heppinn. Ég
held, að ég geri það ekki. Ég hef smogið
undan svo oft, en ég held hann nái
í mig núna. Ég vona, að ég hafi ekki
ónáðað þig mikið, Herb.
—• Þú hefur ekki ómakað neinn,
fjandinn hafi það. Hringdu í mig aftur.
— Ég skal reyna . . .
Herb Thompson fór aftur að spila-
borðinu. Kona hans starði á hann.
— Hvernig líður Allin, vini þínum?
spurði hún. Er hann ófullur?
— Hann hefur aldrei bragðað áfengi
á ævi sinni, sagði Thompson ólundar-
lega og-settist niður. — Ég hefði átt að
fara fyrir þrem stundum.
— En hann hefur hringt á hverri
nóttu í sex vikur og þú hefur verið þar
að minnsta kosti tíu nætur og ekkert hef-
ur komið fyrir, sagði kona hans.
— Hann þarfnast hjálpar. Hann get-
ur meitt sig.
— Þú varst þar í fyrrakvöld, þú getur
ekki alltaf verið á eftir honum.
— Hið fyrsta, sem ég geri á morgun,
er að fara með hann á geðveikrahæli.
Mig langar ekkert til þess. Hann virðist
vera svo heilbrigður annars.
Klukkan hálf ellefu var kaffi borið
fram. Herb Thompson drakk kaffið sitt
hægt og horfði á símann. Mér þætti gam-
an að vita, hvort hann er í kjallaranum
núna, hugsaði hann með sjálfum sér.
Herb Thompson gekk að símanum og
lyfti tólinu. Hann kallaði í miðstöð og
gaf upp númerið.
— Mér þykir það leitt, sagði síma-
stúlkan. — Það eru allar línur slitnar í
þessu héraði. Þegar búið er að gera við
línurnar, þá getum við gefið yður sam-
band.
— Svo að símalínurnar eru slitnar,
hrópaði Thompson. Hann lét tólið á.
Hann sneri sér við, reif upp klæða-
skápshurðina og dró út frakkann sinn.
— Guð minn góður, guð minn góður,
sagði hann við undrandi gestina og
konu sína, sem var með kaffikönnuna í
hendinni. — Herb, hrópaði hún. — Ég
verð að fara þangað, sagði hann og
smeygði sér í frakkann.
Það heyrðist þrusk við dyrnar.
Allir stirðnuðu upp í herberginu.
— Hver getur þetta verið? spurði
kona Thompsons.
Þruskið heyrðist aftur mjög lágt.
Thompson flýtti sér fram forstofuna.
Þar stanzaði hann og hlustaði.
Fyrir utan heyrði hann niðurbældan
hlátur.
— Fjandinn hafi það, sagði Thomp-
son. Hann tók um húninn og hann varð
bæði glaður og áhyggjufullur í senn. —
Ég þekki þennan hlátur hvar sem er.
Allin hlær svona. Hann hefur komið
hingað í bílnum sínum. Hann hefur ekki
getað beðið með að segja þessar skramb-
ans sögur sínar, Thompson brosti dauf-
lega. — Sennilega hefur hann komið
með einhverja vini sína með sér. Það
heyrist eins og hópur manna . . .
Hann opnaði aðaldyrnar.
Það var enginn fyrir framan.
Thompson sýndi ekki nein merki
undrunar, hann brosti undirhyggjubrosi.
Hann hló. — Allin? Engin hrekkjabrögð
núna. Komdu inn.
Thompson kveikti á útiljósinu og litað-
ist um. — Hvar ertu, Allin? Komdu
strax.
Golan straukst um vanga hans.
Thompson beið andartak, skyndilega
rann honum kalt vatn milli skinns og
hörunds. Hann steig út á stéttina og lit-
aðist órólega en vandlega um.
Vindhviða lyfti frakkalöfum hans og
ýfði hárið. Honum fannst hann heyra
hlátur aftur. Vindurinn blés allt í kring-
um húsið og þrýsti alls staðar á í einu og
síðan fór mjög hvöss vindhviða hjá.
Vindinn lægði aftur og hann heyrði
hvernig ýlfraði dapurlega í trjátoppun-
um og laufinu. Vindurinn lagði aftur á
stað út á hafið til Celebes, Fílabeins-
strandarinnar, til Sumatra, fyrir Horn,
til Cornwall og Filipseyja. Hann hvarf,
hvarf smátt og smátt.
Thompso'n stóð þarna, kaldur. Hann
fór inn og lokaði dyrunum og hallaði
sér upp að þeim, hreyfingarlaus með
lokuð augun.
Hvað er að . .. ? spurði kona hans.
Kæri Astró.
Viltu gjöra svo vel og segja
mér afstöðu stjarnanna til
framtíðar minnar. Ég hef num-
ið aðeins skylduskólann og
húsmæðraskóla, annars unnið
fyrir mér. Hef oft verið hrifin
af piltum, eins og gerist og
gengur, aldrei verið trúlofuð
né átt barn. Þykist ákaflega
ástfangin, sem stendur. Hann
er fæddur í júní 1940. Ég vona,
að þess verið ekki langt að
bíða, að ég fái svar. Til ör-
yggis, ef þarf, sendi ég nafn
og heimilisfang.
Gríma.
Svar til Grímu.
Pilturinn, sem þú gefur upp
fæðingardag, mánuð og ár á,
er fæddur undir merki Tvíbur-
anna. Þú ert hins vegar fædd
í 28° Ljónsmerkisins, þanníg
að þið eigið mjög vel saman.
Hins vegar hættir Tvíburan-
um til að reiðast, ef Ljónið
dansar ekki eftir fyrirmælum
hans. Það getur því komið til
smá valdabaráttu stundum, en
geðrænt eðli beggja þessara
merkja er létt. Þó er hætt við
að þér muni aldrei finnast
hinu blíða eðli þínu fullnægt,
þar sem Ljónsmerkið er kær-
leiksríkasta merki dýrahrings-
ins. Þetta er atriði, sem þú
þarft að gera þér fyllilega
ljóst. Það mun firra þig miklu
hugarangri og vonbrigðum.
Það er mjög algengt, að Ljóns-
merkisfólk giftist fólki undir
Tvíburamerkinu, en ég álít að
vandamálin séu svipuð hjá
öllu þessu fólki. Ljónsmann-
eskjunni finnst hún aldrei
njóta sömu blíðu og hún veit-
ir og Tvíburamanneskjunni
mundi finnast sér misboðið
þegar Ljónið vill ráða, sem
venjulegast er. Einnig er Tví-
buramerkisfólkið oft léttlynt
og öðrum finnst það taka líf-
inu með of lítilli ábyrgðartil-
finningu.
í þínu stjörnukorti fellur
Máninn í Hrútsmerkið þannig
að hugur þinn hneigist mjög
að því að stjórna öðrum, þú
skalt gæta þín vel að láta
þessa yfirráðahneigð ekki
bitna of mikið á fólki, því þér
mun verða falin mannaforráð
í félagslífinu. Ráðsmennska
verður oft leiður galli. Hins
vegar hneigist hugur þinn
einnig mjög að heimilislífinu.
Mér þykir mjög trúlegt að
þáttaskil verði á sviði ástamál-
anna á þessu ári hjá þér, og að
þú takir endanlega ákvörðun
í ástamálunum og giftist þess-
um pilti.
í marz 1962 gengur Júpiter
inn í ellefta hús fæðingarkorts
þíns. Þar verður hann fram í
apríl 1964. Undir þessum á-
hrifum muntu finna að vina-
og kunningjahópur þinn mun
stækka og að þú munt sjá
margar óskir þínar rætast.
í júlí 1964 gengur Júpiter
yfir Saturn-Júpiter samstæðú
þína í Nautsmerkinu, þessi
afstaða gerir þig mjög hag-
sýna og heilbrigða í skoðun-
um fjárhagslega og ekki er
ólíklegt að einmitt undir þess-
um áhrifum muni eigur þinar
aukast. Undir þeim áhrifum er
mjög hentugt að leggja út í
fjárfestingar og byggja. í maí
1963 eru áhrif einnig heppileg
til þess arna.
í september 1964 gengur
Júpiter yfir Úranus, og undir
þeim áhrifum máttu reikna
með skyndilegum ágóða eða
hagræði.
Þegar þú ert 28 ára er Sól-
in í slæmum afstöðum við Úr-
anus, sem bendir til þess að
þú munir verða vör tauga-
þreytu, og ættirðu helzt að
taka lífinu með ró.
FALKINN
35