Fálkinn - 14.02.1962, Síða 11
Á þessu nýbyrjaða ári hefur margt
merkilegt gerzt bæði úti í hinum stóra
heimi og líka á okkar ástkæra hólma.
Undrun og ugg vakti það í heimsmál-
unum, að Krúsjeff hafði ekki sézt í ell-
efu daga, og setti að mörgum stjórn-
málamanninum á Vesturlöndum beyg.
Þetta gæti þótt skrítið í fyrstunni, að
ógnvaldsins skyldi verða svo sárt sakn-
að i ellefu daga fjarveru, en það verð-
ur þó að taka með í reikninginn, að
Krúsi kallinn er talinn með þeim ró-
lyndari og skynsamari af kommum þar
austur frá, svo að uggur' kapítalistanna
er skiljanlegur, því ekki langar þá að
fá einhvern, sem er harðsvíraðri en
Krúsi.
Eftir ellefu daga kom hann svo aftur
í ljós, frískur og fjörugur, og sagðist
hafa verið úti við landamæri á veiðum.
Ekki var þess getið, hvaða veiðidýr
hann var að kljást við, en kaldrifjaður
kunningi minn gat sér þess til, að hann
hefði verið að skjóta flóttamenn við
landamærin.
Önnur heimsfrétt snerti ísland og
vakti hér nokkurt umtal. Það var stað-
hæfing vísindamanna, að heimskúlan
væri að klofna í tvennt, og svo hörmu-
lega vill einmitt til, að sprengjan ligg-
ur endilega um mitt fósturlandið. Þetta
voru náttúrulega hin verstu tíðindi, því
við verðum að fara að búa okkur undir
það, að eyjan klofni í tvennt, og ekki
gengur þá betur að varðveita eininguna
eftir en áður. Vestfirðirnir og Suðvest-
urlandið verður þá sérstök eyja, en af-
gangurinn önnur eyja. Við verðum þá
að stofna ríkjabandalag, því annars
fara hlutarnir að heimta sjálfstæði, þar
sem hér er svoddan feikn af mönnum,
sem haida, að þeir geti stjórnað landi.
Svo slæmt sem þetta er nú, þá verðum
við að vona af alefli, að vísindamenn
heimsins finni ekki líka sprungu eða
brest í alheimsskapgerðinni, því hún
væri þá vis til að liggja þvert gegnum
skapgerð íslendingsins.
Tvær farsóttir eru mjög á dagskrá.
Víðtækar ráðstafanir hafa verið gerðar
til að önnur þeirra nái ekki til íslands.
Landsmenn hafa líka verið ofsahrædd-
ir, og lagt það á sig að standa í biðröð-
um til að láta bólusetja sig gegn veik-
inni. Með hina farsóttina gegnir nokk-
uð öðru máli. Þar hefur ekkert verið
gert til að hefta útbreiðslu veikinnar,
heldur reynt að auðvelda mönnum að
taka sýkilinn. Þar hafa þegnarnir, þeir
sömu, sem mikið lögðu á sig til að forð-
ast hina fyrri, staðið í biðröðum til að
komast í sýkingu. Enda hefur veikin
breiðzt út sem eldur í flugvallarbrögg-
um.
Sóttir þessar eru bólusóttin og bingó-
farsóttin. Hvar sem bingó er spilað, eru
hús fullsetin og meira en það. Verð-
laun eru líka svo glæsileg, að fátt er
það, sem ekki er hægt að vinna í þessu
spili. Svo helteknir verða menn, að
undrun sætir. Kunningi minn kom um
daginn inn á veitingahús, þar sem bingó
var spilað. Hann átti frátekið borð, og
kom ekki fyrr en spilið var hafið. Þeg-
ar hann kom í salinn, stóðu veitinga-
þjónarnir við barborðið og — spiluðu
bingó í ákafa! Kunningi minn spurði
um borðið sitt, en þjónarnir sussuðu á
hann og báðu hann bíða, þar til hlé yrði
á spilinu. Loks þegar hléið kom, gaf
yfirþjónninn sér tíma til að sinna gest-
inum. En ekki fékkst hann til að fara
að leita borðsins fyrr en gesturinn hafði
lofað að standa við barborðið á meðan
og leika bingóið, meðan hann yrði
burtu!
Nú er talað um það meðal kenni-
manna þjóðarinnar, að hér mundi ef til
vill vera komið vopnið, sem muni geta
tryggt betri kirkjusókn, kirkjubingó.
Mun biskup þjóðarinnar snúa sér að al-
efli að þessu bráðaðkallandi vandamáli,
þegar hann hefur gert út af við vottana
hans Jehóvas. Það var annars alveg
snilldarlegt, hvernig hann brást við
þessum villutrúarmönnum. Það hefði
auðvitað verið eitthvað meira bragð að
þessu, ef enn þá væri leyft að brenna
villitrúarmenn eins og í gamla daga, en
það þýðir nú ekki að tjóa um það.
Svo var það að lokum hinn hörmu-
legi bruni á Reykjavíkurflugvelli.
Skelfing var það lúalegt af eldinum, að
koma upp í sjálfri slökkvistöð vallar-
ins, og alls ekki við því að búast, að
þar gæti komið upp eldur. Þetta varð
feiknarmikið bál, og bezt logaði í koní-
akinu og viskíinu. Margir templarar
lofuðu guð í lágum hljóðum, enda var
þetta tollfrjálst brennivín, sem þeir fá
ekki neinar prósentur af eins og af öllu
sem selt er í ríkinu.
Flugmálastjórnin vill láta byggja allt
upp í grænum kvelli, en ekki eru allir
á einu máli um það. Vel er hægt að
skilja flugmálastjórnina, því hvað
skyldi eiga að gera við nýja flugturn-
inn, ef flugvélarnar hætta hér um bil
alveg að lenda á vellinum?
Dagur Anns.
9 dagAihA öm
MINNISVERÐ TÍÐINDI
FALKIN
N 11