Fálkinn - 14.02.1962, Page 20
Höskuldur Ólafsson bankastj. Guðmundur Garðarsson, formaður Verzl- Guðmundur Ingimundarson, formaður Fé- Viggó Sigurðsson formaður
Verzlunarbanka íslands, og frú. unarfélags Reykjavíkur, og frú. lags matvörukaupmanna, og frú. Félags kjötverzlana, og frú.
KÁTT HJÁ KAUPMC
Um nokkurt skeið hefur ötullega
verið unnið að félagsmálum kaupsýslu-
manna.
Mörg ný sérgreinafélög smásala hafa
verið stofnuð víðs vegar um landið,
sem ásamt öðrum mynda Kaupmanna-
samtök íslands.
Höfuðmarkmið allra þessara félaga
og heildarsamtakanna er að veita hin-
um almenna neytenda sem fullkomn-
asta þjónustu fyrir lægst verð.
Stjórn Kaupmannasamtaka íslands
situr í Reykjavík, en stjórnarformaður
er ungur og ötull matvörukaupmaður,
Sigurður Magnússon forstjóri Austur- v
ver h. f., en framkvæmdastjóri sam-
takanna er Sveinn Snorrason hæsta-
réttarlögmaður. Stærstu sérgreinafé-
lögin innan Kaupmannasamtaka íslands
eru félag Matvörukaupmanna, formað-
ur Guðmundur Ingimundarson í Búr-
inu, og Félag Kjötverzlana, formaður
Viggó Sigurðsson í Hlíðarkjöri.
Hæst af öllum málefnum ber stofn-
un Verzlunarbanka íslands, en að hon-
um standa Kaupmannasamtök íslands,
Félag Islenzkra Stórkaupmanna og
Verzlunarráð fslands. Þar heldur traust
um stjórnvölinn Höskuldur Ólafsson
bankastjóri.
TV
Undanfarin ár hefur Félag Matvöru-
kaupmanna og Félag Kjötverzlana hald-
ið sameiginlega árshátíð með pomp og
pragt.
Sveinn Snorrason, framkvæmdastjóri
Kaupmannasamtaka íslands, og frú.