Fálkinn - 14.02.1962, Síða 25
Nýr
bar
Myndir: Efri mynd-
in: Ragnar Magnússon,
Sigurbjörg Einarsdótt-
ir og Helga Marteins-
dóttir.
Neðri myndin: Jón
Jóhannsson barþjónn
í ríki sínu.
Enn geta vín- og matmenn glaðzt yfir
unnum sigri. Varla líður svo sá dagur,
að eitthvað sé ekki gert fyrir þá. Veit-
ingahúsin keppast við að gera þeim til
hæfis bæði í mat og drykk. Ekki alls
fyrir löngu bauð hinn nýi framkvæmda-
stjóri Röðuls blaðamönnum til kvöld-
verðar. Var þeim boðið þar upp á
gómsæta rétti. En Röðull hefur tekið
upp þá nýlundu í rekstrinum, að fram-
reiða kalt borð milli 7—9 hvert kvöld.
Kalda borðið er undir stjórn Sigur-
bjargar Einarsdóttur, sem hefur unnið
við slík störf um margra ára skeið í
Danmörku og Svíþjóð. enda bar borðið
þess örugg merki, að sérfræðingur
hafði farið höndum um það. Kræsing-
ar voru ljúfengar og ekki er hægt að
segja, að útlit réttanna hafi blekkt
mann.
☆
Frá áramótum hefur starfað að Röðli
ungur vestur-íslendingur söngvari, Har-
vey Árnason að nafni. Hann er fæddur
og uppalinn í Ortonvelle smáþorpi
skammt frá Detroit í Michiganfylki.
Harvey er hér aðallega til þess að læra
íslenzku, en stundar söng í hjáverkum.
Þess má geta hér til gamans, að faðir
hans talar reiprennandi íslenzku.
Harvey hefur ljómandi rödd, kann sig
vel á sviði og ber það með sér, að hann
:
hafi sundað söng sem atvinnu erlendis.
í Bandaríkjunum hefur Harvey sungið
á allmörgum næturklúbbum í og kring-
um Detroit. Einnig hefur hann sungið
á svonefndum „supper — klúbbum".
•k
Árni Elvar, hljómsveitarstjóri á Röðli,
sagði Harvey vera prýðissöngvara, sem
gott væri að starfa með, en Harvey
kemur í stað Hauks, Morthens. sem
stofnað hefur sína eigin hljómsveit og
syngur nú og leikur í Klúbbnum. Har-
vey gat þess, að sér litist vel á íslend-
inga, gestrisnin og alúðin í framkom-
unni væri einstök.
Harvey hafði ekki verið hér lengi, er
hann lenti í heldur óskemmtilegu at-
viki niður í Þjóðleikhúskjallara. Bar
svo við, að Harvey söng nokkur lög til
gamans þar, en var þá stöðvaður af
Jóni Leifs Harvey kvað stúlkurnar
hér vera laglegar margar hverjar, en
benti þó á, að slíkar væru einnig til
vestra. Harvey ei' aðeins 27 ára gamall
og ólofaður. Hann virðist hafa náð
miklum vinsældum á Röðli, því að
þegar tók að líða á kvöldið, hópaðist
fólkið út á dansgólfið og klappaði ó-
spart hinum unga söngvara lof í lófa.
★
Þá er að minnast á nýjan bar, sem
opnaður hefur verið að Röðli. Er hann
á efri hæðinni. Hann er lítill en mjög
smekklegur, staðsettur innst í salnum,
girtur frá með tréverki, rimlum, svo að
gestir geta notið veiganna í næði. Skúli
Norðdahl og Jónas Sólmundsson sáu
um uppsetningu barsins, en þar ríkir
Jón Jóhannsson barþjónn, sem gengt
hefur þjónstörfum í,Reykjavík um ára-
bil. Jón bar ásamt aðstoðarmanni sín-
um blaðamönnum veigar dýrar sem vel
voru drukknar. Framkvæmdastjóri Röð-
uls er Ragnar Magnússon, en staðinn
rekur Helga Marteinsdóttir.
FALKINN
25