Fálkinn


Fálkinn - 14.02.1962, Qupperneq 32

Fálkinn - 14.02.1962, Qupperneq 32
GABRIELA Frh. af bls. 24. En við ætluðum að dveljast hér í nokkr- ar vikur. Þú sagðir ... — Við erum búin að vera hér í næst- um fjórtán daga. Hefur þér fundizt tíminn líða svona fljótt? Ég er hrædd um, að við verðum að fara strax aftur til Tubingen. Þær buðu hvor annarri góða nótt. Doris vatnaði músum, en Bettina lét sem hún sæi það ekki. Síðan lá hún lengi andvaka í myrkrinu og lét hugann reika. Ef hún hefði vitað, að þær myndu hitta Petro og Felipe á dansleiknum, þá hefði hún aldrei tekið Doris með sér þangað. Það var satt, að Felipe var einn af hennar beztu vinum. Og Pedro var snotur strákur. En hann var alltof kven- samur. Enda þótt hann væri ekki nema tuttugu og tveggja ára gamall, þá hafði hann þegar komið mörgu illu af stað með kvennafarssögum sínum. Nei, hann var tvímælalaust ekki sá maður, sem hún hafði óskað sér að gengi að eiga dóttur hennar . . . Bettina reisti höfuðið frá koddanum. Frá herbergi Dorisar bárust einhver undarleg hljóð. Hún svaf sem sagt ekki. Hljóðið var einna líkast því, sem hún væri að gráta . . . ★ Julian gekk aftur inn í herbergið og féll á kné við hliðina á prinsinum. Hann starði stöðugt á andlit hans og and- varpaði þungt. Hörundslitur prinsins var orðinn grunsamlegur. Og andar- dráttur hans . . . Julian Brandt þekkti vel þessi ein- kenni. Skjálfandi höndum tók hann að stumra yfir honum, greip tvo púða úr sófanum og lét þá undir höfuð hon- um. Þá kom hann auga á símann, senr stóð í gluggahorninu og andartaki síðar hafði hann náð sambandi við lækni, sem lofaði að koma þegar í stað. Fleira gat hann ekki gert. Hann varð aðeins að biða og vona hið bezta. Hann gekk fram og aftur um herbergið, neri höndunum saman í örvæntingu sinni og ásakaði sjálfan sig. Að hann skyldi ekki geta lært að hafa hemil á skapsmunum sínum. Hvers vegna í ósköpunum hafði hann eiginlega kom- ið hingað? Það var fáránlegt að láta sér detta það í hug. Ef hann hafði hugs- að sér að jafna um við alla þá sem baktöluðu hann, þá mundi hann hafa nóg að gera á næstunni. Auk þess var þessi dagur mikilvægur í lífi hans. í dag átti Gabriela að flytja inn í húsið í Bursagasse! Þá heyrði hann að bifreið stanzaði fyrir utan húsið Loksins! Hann hljóp niður tröppurnar og opnaði fyrir lækn- inum, sem var gamall kunningi hans. Meðan þeir gengu upp stigann, út- skýrði Julian í fáum orðum það sem gerzt hafði. Prinsinum hafði skrikað 32 FÁLKINN fótur á teppinu og fallið með höfuðið á skrifborðið! Leiðinlegt óhapp! Læknirinn virtist ekkert sérstaklega undrandi á þessum upplýsingum. Hann gekk inn í herbergið, kraup á kné við hlið prinsins og tók að rannsaka hann. Síðan opnaði hann svörtu læknatösk- una sína og tók að undirbúa sprautu. Nokkrum mínútum síðar kom stuna frá prinsinum og hann byrjaði að hreyfa sig órólega. Loks opnaði hann augun. Læknirinn brosti til hans. Nú líður yður betur, er það ekki? Augu Hohenperch hvörluðu frá lækn- inum og til Julians á víxl Hann svaraði ekki. Hvernig vildi þetta til minn kæri Hohenperch, hóf læknirinn aftur máls. Augu prinsins störðu beint á Julian. Þau lýstu hatri og ótta. Hann vætti þurrar varinar. — Ég hlýt að hafa hrasað, sagði hann hægt og veiklulega. Læknirinn sneri sér við, þar sem hann lá á hnjánum við hliðina á prins- inum. — Eg verð hjá honum um stund . . . Þér þurfið ekki að vera órólegur, sagði hann stuttlega. Julian hikaði. — Jæja, sagði hann. — Það er víst ekki meira fyrir mig að gera hér. Það er víst bezt að ég fari . . Hann kvaddi og fór eldrjóður í fram- an. Læknirinn hafði ekki sagt neitt, en það fór ekki hjá því að hann hafði tekið eftir áverkunum á andliti Hohen- perch eftir slaginn . .. Itagnar Þórðarsiou Frh. af bls. 15 in og hefur verið þar lengi, skoða ég sem fjölskyldumeðlimi. Ég vona líka að það líti eins á mig. — Þú hefur sama fólkið í mörg ár. Borgar þú hærra kaup en aðrir? — Nei, það held ég ekki. En okkur er það sameiginlegt áhugamál að fyrir- tækin gangi og ef eitthvað er í húfi vinnur fólkið á hvaða tíma sólarhrings sem er. Við erum eins og ein stór fjöl- skylda og ég segi þér satt, að ef starfs- fólk og atvinnurekandi eru ekki sam- hent og hafa sameiginlegan áhuga fyrir viðgangi fyrirtækjanna, þá er voðinn vís. Hér á landi er hvort sem er engin stéttaskipting og það er eðlilegt að at- vinnurekandi og starfsfólkið líti á sig sem samstarfsfólk. — Fólk furðar sig oft á verði á útsöl- um, sem er allt að 75% afsláttur frá búðarverði. Hver er skýringin? — Skýringin er einföld. Tízkuvörur hafa þá sérstöðu að annaðhvort slá þær í gegn og seljast þegar í stað, eða þær seljast alls ekki. Hugsum okkur að við kaupum hundrað tízkukjóla. Enginn veit hvort þeir seljast. Venjulega slá 10—20 í gegn og seljast strax og maður pantar aftur til viðbótar hliðstæða. Svo getum við hugsað okkur að aðrir tuttugu seljist líka. Þá eru 60 eftir. Þessa kjóla verður að losna við fyrir eitthvert verð, Kannski kostar kjóll eittþúsund krónur. Ekki fæst fyrir hann nema 100 kr. en samt verður hann að seljast. Fólk sem hefur peningaráð vill margt kaupa sér tízkuföt og vill borga fyrir þau og veitta þjónustu í sambandi við það. Síðan, þegar séð verður hvað þetta fólk, sem vill kaupa fljótt og borga vel, hefur keypt, þá kemur útsal- an og verðrlækkun langt niður fyrir það sem kostar að framleiða vöruna. Þarna kemur tækifæri þeirra, sem annaðhvort vilja spara eða hafa tak- mörkuð auraráð. Með verðlagsákvæðum og tollum var þessi þróun alveg úr sög- unni og hreinskilnislega sagt stórtap- aðist á t. d. tízkukjólum, enda þótt búð- irnar sjálfar bæru sig Þetta sem ég hef nú sagt á eingöngu við um tízkufatnað. Ég fullyrði að af nám verðlagsákvæða og lækkun tolla á þessum vörum er mesta kjarabót sem fólk hér hefur fengið í lángan tíma. — Þú segist hafa tapað á tízkuvör- um. — Ég hef ekki grætt á verzluninni frekar en aðrir kaupmenn og ekki stað- ið í braski. Alveg síðan í stríðinu hefur þjóðfélagið hjálpað bröskurum til þess að féfletta þá, sem unnu eða áttu aura í banka. Þeir sem bröskuðu græddu. Að sjálfsögðu hef ég ekki farið eins illa út úr þessu og ýmsir aðrir því eign- ir mínar hafa einnig hækkað í verði, eins og aðrar fasteignir. Það eru skatt- arnir. sem hér eru allt að drepa og sem engum hjálpa nema bröskurum. Stór- eignaskatturinn t. d. og allt sem hon- um fylgir. Allt t. d. þetta hjálpast að því að sá maður, sem hóf verzlun fyrir tutt- ugu árum og átti skuldlausan lager, t. d. 400 einingar, sá hinn sami ætti nú eftir tuttugu ára strit ekki nema ca. 160. Og Ragnar útskýrði þetta frá tölu- legu sjónarmiði, sem ekki varð á móti mælt. — — Þú hefur ekki misst áhugann fyrir veitingamennsku þótt þú seldir Gilda- skálann á sínum tíma? — f sannleika sagt ætlaði ég ekki út

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.