Fálkinn - 14.02.1962, Side 33
í veitingastarfsemina aftur. Það var
ekki fyrr en Bjarni og Birgir komu til
mín og báðu mig að vera með í Klúbbn-
um. Ég var þar aðallega til aðstoðar við
skipulagningu o. fl. Mér er ánægja að
því, að Klúbburinn verður betra og
betra veitingahús því lengur sem hann
starfar, öfugt við það sem ofast hefur
átt sér stað hér á landi og Birgir og
Bjarni eru báðir áhugasamir um rekst-
urinn og vinna eins og þrælar.
— Þér hefur ekki nægt að vera með
1 klúbbnum fyrst þú stofnaðir Glaum-
bæ?
— Gildaskálinn var á sínum tíma
hugsaður sem fyrsta flokks matstaður.
Ég hef alltaf haft áhuga fyrir matstöð-
um, enda talsverður matmaður sjálfur.
í þá daga fékkst ekki vínveitingaleyfi.
Klúbburinn hefur orðið vinsæll
skemmtistaður en skemmtistaður og
matstaður eins og þeir gerast beztir, fer
ekki saman. Þegar það kom til mála að
ég tæki að mér rekstur Framsóknar-
hússins fór ég til Frakklands og talaði
við þekktan sjónvarpsstjóra, Monsiour
Seleber. Hann kom mér svo í samband
við Reymond Oliver, sem er eins og
allir vita frægasti kokkur heims, rekur
einn eftirsóttasta matstað í París og að
auki tilraunaeldhús og hefur færustu
kokka í vinnu. Oliver er lík sjónvarps-
kokkur, og hefur vikulegar útsending-
ar. Hann bauðst til að koma hingað
sjálfur og að senda einn sinn bezta
mann hingað. Framhaldið vita allir.
Það er Glaumbær.
Þegar maður lítur í símaskrána og
ætlar að tala við Ragnar Þórðarson, er
um mörg númer að velja. Þar er fyrst
fyrir Ragnar Þórðarson & Co. h.f. og
síðan Markaðirnir á Laugavegi 89, Hafn-
arstræti 11 og Hafnarstræti 5. Síðast
er Heildverzlunin í Aðalstræti. Samt
er varla erfiðara að ná í nokkurn mann
í síma en hann. Þrátt fyrir það er haft
fyrir satt að hann nálgist nú að verða
hlutfallslega eins ríkur og faðir hans
var á sínum tíma og það eitt nægir til
að vita, að hér er snjall fjármálamaður
á ferðinni. — SvS.
ÁRSHÁTÍÐ
Frh. af bls. 21
litinu á Bessa: — Ja ég hef nú aldrei
verið á seglskipi Gunnar minn. —
Hlátur, skál hlátur.
Svavar Gests sér um restina, stend-
ur á matseðlinum og Svavar Gests sér
um restina — svona hér um bil. Þegar
hlé er á músíkinni slöngvar hann hnit-
miðuðum tilkynningum í undirmeðvit-
und fólksins: — Opna og loka á víxl, —
Tómas. Annarsflokks undirfatnaður, —
Ás. Sveinn er kominn aftur, — Kven-
félag Grímstaðaholts.
Dansinn dunar. Unga stúlkan er
hrædd um að pilsið hoppi uppfyrir
sakleysið í rokkinu og grípur blúnd-
una á fluginu. — Og ég er nú 75 ára
segir peysufatakonan og svífur fram
hjá í mjúkum Vínarvalsi
Klukkan er tvö, — en ballinu er fram-
lengt til morguns. J .1. B.
Kæri Astró.
Mig langar mjög mikið að
vita eitthvað um framtíð
mína. Ég er fædd . . . . Ég
er hrifin af strák, sem er
fæddur . ... Á ég eitthvað
eftir að vera með þessum
strák og hvenær? Ég er að
kveðja hann í Gagnfræðaskóla
og langar að fara út, þegar ég
er búin með skólann, til að
læra ensku. Á ég eftir að fara
eitthvað út? Hvaða vinna
myndi henta mér bezt? Verð
ég hamingjusöm í hjóna-
bandi? Mun ég búa hérlendis
eða erlendis? Vinsamlega
sleppið öllum mánaðardögum
og hvar ég er fædd.
Með fyrirfram þökk.
Inga.
Svar til Ingu.
Það er ágætt samband milli
þíns korts og þess sem þú
gafst mér upp fæðingardag og
ár og þið gætuð áreiðanlega
gifst og orðið hamingjusöm
þess vegna. Hins vegar bendir
kort þitt til að eiginmaður
þinn yerði erlendis þegar þið
kynnist, en það verður í sam-
bandi við dvöl þína erlendis
og þar muntu eignast heimili.
Kort þitt bendir einnig til
að þú verðir hamingjusöm í
hjónabandi, þrátt fyrir að þú
hafir ýmsa eftirþanka til að
byrja með, en það leysist allt
á bezta veg, og björtu hliðarn-
ar munu snúa upp. Hvað störf
áhrærir, þá er þér nauðsyn-
legt að hafa eitthvað starf með
höndum, sem reynir á þig lík-
amlega og helzt þarftu að ráða
meðferð mála, ef þú átt að
vera fullkomlega hamingju-
söm, með öðrum orðum að
vera verkstjóri. Einnig má
segja að þú hefðir prýðis hæfi-
leika til að vera flugfreyja og
þar sem létt liggur fyrir þér
að læra mál þá ætti þér ekki
að verða skotaskuld að ná þér
í slíkt starf, en ég held að það
liggi mikið fremur fyrir þér
að starfa á erlendri grund
heldur en hérlendis. Langferð-
ir eru undir áhrifum Úranús-
ar í korti þínu þannig að þú
leggur í ferðalög þegar minnst
varir og án þess jafnvel, að
þig grunaði að leggja skyldi
í ferð.
Ég vildi einnig taka til um-
ræðu stöðu Sólarinnar, Mán-
ans og Merkúr í áttunda húsi
eða geira korts þíns. Þessar
plánetur eru allar í merki
Tvíburans. Þessar afstöður
munu leiða þig fremur oft í
návist dauðra og ekki er ótrú-
legt að þér verði falið oftar
en einu sinni að sjá um skipt-
ingu dánarbúa. Þessi afstaða
leiðir undantekningalaust til
þess að fólk kynnir sér hið
dulda, lífið eftir dauðann,
heimspeki, dulspeki, spíri-
tisma, sálfræði og önnur fræði
á þessum leiðum. Afstöðunni
fylgir óstjórnleg löngun til að
hafa samband og vita um líð-
an framliðins fólks. Þegar
dauðinn sækir einhvern fjöl-
skyldumeðlim heim, tekurðu
það ákaflega nærri þér. Ég á-
lít að þér sé nauðsynlegt að
kynna þér bókmenntir um líf-
ið eftir dauðann til að þú
skiljir hvað raunverulega á
sér þá stað. Það vill svo ein-
kennilega til að dulfræðingar
telja ekki hollt fyrir fólk að
syrgja dána um of því slíkt
hefti framþróun hinna látnu
og bindi þá við jarðlæg hugð-
arefni. Það vill nefnilega svo
einkennilega til að samkvæmt
indverskum og austurlenzk-
um fræðum þá á hinn eigin-
legi vitundardauði sér stað er
fólk fæðist í ungbarnslíkam-
ann hér inni í okkar skynj-
anaheim, því á því augnabliki
og nokkrum mánuðum áður
missir maður minnið um fyrri
tilveru og reynsla fyrri lífa
fylgir okkar aðeins, sem
vizka, ræktað tilfinningalíf
eða óræktað o. s. frv. Þannig
að í rauninni ætti sorgar-
stundin að vera við fæðinguna
inn í þennan heim, en ekki
þegar maðurinn deyr frá hel-
sjúkum líkama, sem veitti
honum allskyns vandamál og
erfiðleika. í flestum tilfellum
er dauðinn, sem frelsun, þar
sem vitundin íklæðist líkams-
gerfi, sem er flestum siðsöm-
um mönnum mikið meðfæri-
legra heldur en hinn jarðneski
líkami.
FÁLKINN
33