Fálkinn - 14.02.1962, Síða 35
T ryggðarpanturinn
Frh. af bls. 18
komunni. Sem betur fór botn-
aði ég ekkert í þeim skýring-
um. Hann notaði svo mikið af
latneskum orðum, að það yfir-
gekk mannlegum skilningi
mínum. Og meðan hann var
að tala benti hann í sífellu á
stóra ljósmyndaplötu, sem mér
skildist að mundi vera rönt-
genmyndin af mér.
Eftir ræðu hans hófust svo-
kallaðar fjörugar samræður.
Mér skildist á þeim, að dag-
inn eftir væri stæði til að
halda sýningu á mér fyrir alla
læknadeild háskólans og síð-
an á ljósmæðraskólanum og ef
til vill ætti að rista mig á
kviðinn til þess að athuga
fóstrið nánar.
Þegar fundarfólkið var í
þann veginn að fara, bað ég
með skjálfandi rödd um að
lofa mér að sjá Ijósmyndina.
Ég fékk það. Yfirhjúkrunar-
konan varð eftir og sýndi mér
hana.
Ég grandskoðaði hana. Þetta
var eins konar skuggamynd.
Svartir skuggar sýndu, að ég
hafði hæfilega mörg rif og að
það var nægilega stórt hjarta
í mér og á réttum stað. Utan
um þessar aðallínur vöfðust
svo ljósari skuggar eins og
vafningsviður. Og þarna
skammt fyrir neðan hjartað
var svolítill kolsvartur skuggi,
sem sýndi greinilega ofurlítið
barn með höndum, fótum og
höfði! Gat þetta verið mögu-
legt?
Allt í einu rann upp fyrir
mér ljós. Allur kvíði minn
sópaðist burt í einu vetfangi,
og ég hló svo óstjórnlega, að
sjúkrastofan hristist, en ljós-
myndaplatan datt úr lúkun-
um á mér niður á gólfið og
brotnaði. Yfirhjúkrunarkonan
rak upp óp og hljóp út. Hún
hélt að ég væri brjálaður.
Ég vaknaði til athafna við
þetta óp. Hurðin var naumast
fallin að stöfum, þegar ég
þreif fötin mín, snaraði mér
í þau, opnaði gluggann og
hljóp út eins og ég ætti lífið
að leysa, framhjá dyraverðin-
um. sem glápti á mig, slöngv-
aði mér inn í bíl, ók heim,
hálfdrap húsmóður mína af
hræðslu, fleygði nokkrum
pjönkum ofan í koffort og fór
í snatri upp í sveit og settist
þar að á afskekktum bónda-
bæ. Þar lét ég skeggið vaxa,
breytti um nafn og hvarf úr
kunningjahóp mínum og úr
sálnaregistrinu og manntalinu.
Skýringin? Það var tryggða-
panturinn. Þið kannizt sjálf-
sagt við þau þessi litlu börn
úr kopar með stóran haus, sem
sumar stúlkur gefa manni
þegar þær elska mann og biðja
mann um að bera um hálsinn
sem tryggingu fyrir því, að
þær skuli alltaf elska mann.
Og svo ber maður náttúr-
lega tryggðapantinn um háls-
inn nótt og dag — og líka eft-
ir að maður hefur frétt að
stúlkan sé gift öðrum.
Hvers vegna maður gerir
það? Æ, eðli mannsins er svo
óbrotið. Röntgenmyndin nægir
til þess að koma upp um, hvað
hann ber við hjarta sér . . .
Jnni á Nausti dldreipver
ánægjunnar sjófar.
hmmaturrnn þykirmér
þjótlegur oy yóður g|"
KAIISI
Hriítsmerkið (21. marz—20. apríl).
Svo virðist sem heldur muni blása byrlega seinni
part vikunnar, bæði hvað viðvíkur fjármálum og ásta-
málum. Vissulega kunnið þér að haga seglum eftir
vindi og það kemur sér oft og tíðum vel, en samt verðið
þér að gæta þess, að tefla ekki of djarft.
Nautsmerkið (21. apríl—22. maí).
Þér ætt.uð að gera yður ljóst hið fyrsta, að allt kost-
ar einhverja fyrirhöfn. Þér þurfið þess vegna að taka
yður mikið á, því að ekkert hefst nema með vinnu.
Enn fremur ættuð þér að huga dálítið að fjármálunum.
Tvíburamerkið (23. maí—21. júni).
Það er sitthvað Skálholt eða Skítholt. Þér æt.tuð að
hafa það í huga, að með samvizkusemi og dugnaði ein-
um saman náið þér hinum mestu mannvirðingum. Þér
hafið áunnið yður talsvert traust upp á síðkastið og
það ríður á því, að þér glatið því ekki.
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
Þér hafið lengi verið heldur gortsamur og raupað af
afrekum, sem þér hafið aldrei unnið. Látið af þessum
ósið, því að hann fer í taugarnar á mörgum, enda þótt
þér séuð bara að gera að gamni yðar. Ástamálin verða
góð þessa viku.
Q
Q
Ljónsmerkið (23. júli—23. ágúst).
Ekki er allt, sem sýnist, enda þótt þér hafið sigrað í
fyrsta áfanga, leikur enginn vafi á því, að næsti
áfangi er ekki eins auðunninn. En ef þér sækið fram
af fest.u og dugnaði, munuð þér vissulega sigra.
Jómfrúarmerkið (2U. ágúst—23. sept.).
Þessi vika verður mjög hagstæð, fjármálin blómstra
og starfið verður leikur einn. Útlit er fyrir, að þér
skemmtið yður mjög vel á föstudag. Gætið hófs í með-
ferð áfengra drykkja, því að Bakkus karlinn getur orð-
ið svolítið skeinuhæt.tur.
Vogarskálamerkið (2U. sept.—23. okt.).
Enginn fær gert við örlögunum. Þessi vika verður
mjög örlagarík. Þér þurfið að taka mikla ákvörðun,
sem ef til vill veldur miklum breytingum á lífi yðar.
Þér skuluð leita ráða vina yðar, því oft er það svo, að
þegar margir leggja saman, tekst vel t.il.
mm
Sporðdrekamerkið (2U. okt.—22. nóv.).
Þessi vika virðist ætla að verða fremur róleg en hag-
stæð. Þér munuð vinna yður talsvert álit í starfi yðar
og ekki er hægt að segja annaQ en þér haldið því, að
minnsta kosti um stund. Hins vegar megið þér vara
yður á, að láta ekki skap yðar bitna á öðrum.
Bogmannsmerkið (23. nóv.—22. des).
Gætið varúðar í öllu, sem viðkemur vélum eða því,
sem reynir á líkamann. Hins vegar segja stjörnurnar,
að þér munuð kynnast nýju fólki og skemmtilegu. Enn
fremur er líklegt, að þér fáið óvænt og gleðileg tíðindi
í bréfi.
Steingeitarmerkið (23. des.—20. jan.).
Vikan verður mjög ánægjuleg framan af og þér
þurfið alls ekki að kvarta yfir því, að lánið leiki ekki
við yður. Það er ekki aðeins í einkalífinu, sem allt leik-
ur í lyndi heldur njótið bér nú góðs af því, sem þér
hafið áður afrekað.
Vatnsberamerkið. 21. jan.—19. febr.).
Þetta verður ekkert sérstaklega viðburðarrík vika, en
hlutirnir taka þó allt aðra stefnu í lok mánaðarins.
Þér skuluð ekki vera hræddur við að t.aka svolitla
áhættu í kaupskap, því að án þess að hætta einnverju
hefst aldrei neitt.
Fiskamerkið (20. febr.—20. marz).
Það hefur verið ljóður á ráði yðar að þér takið ekki
nógu djarfar ákvarðanir. Þér skuluð óhikað leggja út 1
djarfa áætlun, því að stjörnurnar segja, að hún muni
bera þó nokkurn árangur. Gæt.ið yðar á hávaxinni
konu, dökkhærðri.
FÁLKINN 35